Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 9
Morgunblaðið/Eggert
Hnallþóra Þessi dásemd-
arberjabomba Gígju er ekk-
ert annað en hreinræktuð
hnallþóra eins og við elsk-
um svo heitt.
„Þessi kaka er dásamlega góð og ekki
skemmir það fyrir hvað hún er falleg.
Æðisleg í veisluna og fyrir hvaða til-
efni sem er. Kökubotnarnir eru afar
auðveldir og það er sniðugt að gera þá
daginn fyrir og eiga þá bara eftir að
setja kökuna saman svo að berin séu
sem ferskust.“ – Gígja.
Kaka:
3 bollar hveiti
3 bollar sykur
1 1/2 bolli kakó
1 matskeið espresso duft
1 matskeið matarsóti
1/2 matskeið lyftiduft
1 teskeið salt
4 egg
300 g grísk jógúrt frá
Gott í matinn
2 bollar vatn
1/2 bolli olía
1 matskeið vanilludropar
Rjómi:
500 ml rjómi
1/2 flórsykur
1 teskeið vanilludropar
Súkkulaðibráð:
200 g súkkulaði
150 g smjör
Ber:
Jarðarber, bláber og hindber eða þau
ber sem ykkur finnst góð.
Aðferð:
Kaka:
Öll þurrefnin eru sett í hrærivélina og
þeim létt blandað saman með sleif.
Næst fer allt blauta innihaldið í
hrærivélina og allt hrært saman.
Kökudeiginu er skipt jafnt á milli í
þrjú smurð hringform og inn í ofn í 30-
35 mínútur.
Rjómi:
Rjóminn er þeyttur og flórsykri og
vanilludropum er bætt við í lokin og
hrært.
Súkkulaðibráð:
Smjörið er brætt í potti þar til það
byrjar að búbbla, þá er því hellt yfir
mulið súkkulaðið í hitaþolinni skál og
hrært þar til það verður silkimjúkt. At-
hugið að útbúa ekki súkkilaðibráðina
fyrr en þið eruð tilbúin að stafla kökunni
upp, því súkkulaðið stífnar.
Ber:
Berin eru skorin niður að vild, best að
hafa þau frekar smátt skorin fyrir miðj-
una en hægt að hafa þau heil á toppnum.
Þá þarf bara að stafla kökunni:
Kökubotn / súkkulaði / rjómi / ber …
og svo koll af kolli.
Súkkulaði- og berjabomba