Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Ljósmynd/Hróbjartur Sigurðsson
Þessi ómótstæðilega franska súkkulaðikaka
kemur úr smiðju sjálfrar Evu Laufeyjar
sem útbjó hana ásamt fjölda annarra girni-
legra uppskrifta fyrir kökubækling Nóa-
Síríusar í ár. Bæklingurinn er sneisafullur
af góðgæti eins og búast mátti við og ljóst
að Eva er sífellt að toppa sig í gæðum.
Frönsk súkkulaðikaka
fyrir 8-10
Botn
200 g sykur
4 egg
200 g Síríus-suðusúkkulaði
200 g smjör
1 dl hveiti
Sósa
150 g Síríus-pralín-karamellu-
súkkulaði
70 g smjör
2 msk. síróp
Vanillurjómi
250 ml rjómi
2 msk. sykur
2 tsk. vanilludropar
fræ úr einni vanillustöng
Aðferð:
Botn
Forhitið ofninn í 180°C. Þeytið saman sykur
og egg þar til blandan verður létt og ljós.
Bræðið saman smjör og súkkulaði við væg-
an hita. Blandið hveitinu saman við eggja-
blönduna, sumir vilja sleppa hveitinu en þá
verður kakan sérstaklega blaut. Bætið
súkkulaðiblöndunni varlega saman við í lok-
in. Smyrjið bökunarform eða setjið
bökunarpappír í botninn á forminu og hellið
deiginu í það. Bakið kökuna í 30 mínútur.
Sósa
Saxið pralínsúkkulaði og bræðið saman við
smjörið við vægan hita, ekki fara frá pott-
inum. Það er mjög auðvelt að brenna þessa
góðu blöndu. Hrærið vel og bætið sírópinu
saman við í lokin. Hellið yfir kökuna. Þessi
sósa er ómótstæðilega góð og það er tilvalið
að bera hana fram með fleiri kökum eða ís-
réttum. Skreytið kökuna gjarnan með
ferskum berjum, það gerir hana enn betri.
Vanillurjómi
Setjið sykur, vanillu, fræin úr vanillustöng
og rjóma í skál og þeytið þar til rjóminn er
silkimjúkur. Berið kökuna fram með
vanillurjómanum.
Frönsk súkkulaðikaka
með gómsætu pralín-karamellukremi og vanillurjóma