Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
É
g skal fúslega viðurkenna að eitt það alskemmtilegasta sem ég
veit er að baka. Kannski ætti ég þó að umorða þetta því í
rauninni finnst mér gaman að skreyta. Ég er nefnilega enn
sem komið er frekar lélegur bakari en þó að Svava Gunn-
arsdóttir haldi því fram hér í
blaðinu að það sé ekkert mál
að baka þá vil ég bara rétta
upp hönd fyrir okkur sem
eigum í mesta basli með það.
Sjálf skil ég ekkert í þessu.
Bakstur heppnast yfirleitt
fremur illa hjá mér og á dög-
unum var ég að baka pakka-
köku (ég baka aldrei frá
grunni) sem minnkaði við
bakstur. Slíkt er auðvitað fá-
heyrt en engu að síður hefur
mér tekist það.
Það er oft sagt um ljótar
kökur að það vilji þeim til
happs að þær bragðist vel.
Þetta er hins vegar ekki rétt
því það er nákvæmlega engin
gæðatrygging á köku að hún sé ljót. Það getur dóttir mín staðfest en
sex ára afmæliskakan hennar var bæði ljót og vond.
Ég var þó ekki af baki dottin og fór á námsleið hjá Berglindi Hreið-
arsdóttur sem heldur úti matarblogginu Gotteri.is. Berglind tók mig
undir sinn verndarvæng og kenndi mér allt sem hún kann. Eða
reyndi það að minnsta kosti. Nú get ég allavega bakað afmæliskökur
handa börnunum mínum án þess að þau fari að gráta og í sumar bak-
aði ég brúðartertu og fyrir mér var klappað. Það var mjög merkilegt
augnablik í mínu lífi því mér leið eins og lúsernum sem fékk loksins
uppreisn æru. Sjálfsagt er heiðarlegt að geta þess að Berglind á 92%
heiðurinn af kökunni en samt... mér fannst ég hafa gert hana. Það eru
einmitt svona árangurssögur sem gera það að verkum að mig langar
að ganga skrefinu lengra og ætlum við Berglind að kenna landanum
hvernig á að baka alvöru kökur og uppskera einlæga aðdáun sam-
ferðarmannanna. Ég hef nefnilega komist að því að fátt er líklegara
til að tryggja vinsældir en að mæta einhvers staðar með vel bakaða
köku.
Þóra Sigurðardóttir
umsjónamaður Matarvefjar mbl.is
Konan sem kunni
ekki að baka
Til er það leyndarmál sem er svo vel geymt að
sjálf komst ég ekki að því fyrr en í fyrra!
Leyndarmálið er að setja súkkulaðibúðing frá
Royal saman við súkkulaðikökuna og verður
hún þá að sögn sérfróðra miklu betri. Hér er að
sjálfsögðu átt við búðingsduftirð – beint úr
pakkanum – en ekki tilbúinn búðing eins og ein-
hverjir gætu haldið. Er þetta sérstaklega vin-
sælt meðal Betty-bakaranna eða þeirra sem
nota tilbúin köku-mix almennt. Þá er duftinu
hreinlega blandað saman við kökuduftið og út-
koman verður hreint út sagt stórkostlegt.
Frægir matarbloggarar á borð við Berglindi
Hreiðars (sem bakaði forsíðukökuna) á
Gotteri.is nota þessa aðferð alltaf og fullyrða að
kakan verði enn betri fyrir vikið. Ljóst er því að
Royal klikkar aldrei! – Þóra
Best geymda
leyndarmál
ofurbakaranna
Þjóðargersemi Hver
elskar ekki gamla góða
Royal-búðinginn?
Þessi forkunnarfagra kaka var bökuð af Berglindi
Hreiðarsdóttur sérstaklega fyrir þessa myndatöku.
Pælingin var að hafa hana virkilega háa sem getur
vissulega verið vandamál. Það sem Berglind gerði
hinsvegar (og er afar snjallt) var að setja pappa-
spjald í miðja kökuna þannig að í raun voru þetta
tvær kökur settar saman. Fyrir vikið var líka mjög
auðvelt að skera hana. Kakan er 15 sentimetrar í
þvermál og litasamsetningin var eiginlega bara al-
veg út í bláinn og kom vel út. Punkturinn yfir i-ið
var síðan lógó Matarvefsins sem Hlutprent skar út
fyrir okkur. Kakan er djöflakaka frá Betty
Crocker – bragðbætt að sjálfsögðu með Royal
súkkulaðibúðingi. Á milli er kaffismjörkrem og
kakan var algjörlega dásamleg á bragðið. Á þess-
ari mynd má sjá forsíðuljósmyndarann okkar,
Kristin Magnússon, stilla upp í stúdíóinu áður en
kakan var mynduð.
Morgunblaðið/Þóra Sigurðardóttir
Forsíðukakan
ikea kökudiskur
Mig langar í...
... þennan forláta kökudisk úr
IKEA sem var rétt í þessu að koma
til landsins. Um er að ræða þriggja
hæða kökustand sem ber heitið
VINTER 2018 og kostar 3.490
krónur.
Bókina Bee’s Adventures in Cake Decorating: How to make cakes with the
wow factor. Eitthvað segir mér að lífið verði töluvert betra eftir lestur þess-
arar bókar, hvað þá ef maður fer að iðka kúnstirnar sem í henni eru kenndar.
Amazon.co.uk. 1.500 kr.
Mig dreymir um...