Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Blaðsíða 8
Enda þótt þeir búi við fimbulkulda á norðurhjara veraldar láta íbúar í þorpinu Ittoqqorto-
ormiit á Grænlandi það ekki stöðva sig í að hengja út þvottinn. Og það um hávetur. Hermt
er að þvotturinn verði svo harður í kuldanum að hæglega megi rota mann með honum;
jafnvel ísbjörn, en þeir kíkja reglulega í heimsókn þarna í fásinninu. Hvað sem því líður er
þvottasnúra þessi vegleg og augljóslega vel að henni staðið á alla lund. Ætli þetta sé mögu-
lega nyrsta þvottasnúra í heimi? Hver veit?
RAX
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018
Við eigum það til að kvarta undan erlendum áhrifum áallt mögulegt. Allt frá skiltum á ensku (í miðbæ þarsem varla sést Íslendingur) til siða sem við tökum
frá öðrum þjóðum. Ég hef lengi verið pínu sammála en mér
hefur hægt og rólega snúist hugur.
Helsta ástæðan er hrekkjavaka. Furðulegur siður, í síð-
ustu viku október, sem við erum ekki einu sinni með á
hreinu fyrir hvað stendur. Vitum það bara að börn (þessi
sömu og við erum alltaf að vernda fyrir öllu hræðilegu)
klæða sig upp í furðubúninga sem tákna verri hluti en við
myndum nokkurn tímann sýna þeim. Sumir hneykslast á
þessu og finnst við hafa gengið fyrir þjóðernislegan ætt-
ernisstapa. Þeim finnst allt sem felur í sér eitthvað villtara
en að hengja öskupoka á einhvern vera einhverskonar „am-
eríkansering“.
Auðvitað er eitthvað klikkað að við skulum selja grasker í
tonnavís í lok október. Grænmeti (eða er þetta kannski
ávöxtur?) sem við sáum í fyrsta sinn fyrir nokkrum árum.
Og auðvitað er það bilun að senda börn út í næfurþunnum
kjólum og göllum þegar allra veðra er von. Og síðan hvenær
þótti það alveg eðlilegt að senda börn út í myrkrið að banka
upp á hjá ókunnugum til að sníkja nammi sem heilu seríurn-
ar af Latabæ hafa sagt okkur að sé eitur? Það er bók-
staflega allt rangt við þetta.
Þetta eru engin geimvísindi. Þetta er gaman. Það er bara
nóg. Á mínu heimili er spenningur í margar vikur fyrir
þennan dag og miklar vangaveltur um búninga. Hér hefur
verið boðið upp á ýmislegt og okkur fannst fullkomlega eðli-
legt þegar þá fimm ára dóttir okkar ákvað að vera „dauð
ballerína“.
Þau eiga líka þennan dag í friði. Um leið og þau eru kom-
in með einhverja tilfinningu fyrir umhverfinu eru foreldrar
óþarfir. Næstyngsta dóttir mín svaraði spurningu minni um
hvort ég ætti að koma með henni út með: „Það er bara
krípí.“ Allt eðlilegt við það.
En það sem er merkilegast við þetta er óumbeðna mann-
fræðirannsóknin sem maður tekur þátt í. Dæmigerður
strákur veður upp tröppurnar og spyr bara: Hvað má fá
mörg? áður en hann dengir lúkunni í skálina. Dæmigerð
stelpa býður jafnvel gott kvöld og spyr svo: Grikk eða gott?
Tekur svo eitt og þakkar fyrir sig. Svo eru náttúrlega marg-
ar undantekningar og sumir strákarnir voru mjög kurteisir.
Mér sýndist reglan vera nokkurn veginn kurteisi í öfugu
hlutfalli við stærð hóps.
Annar hluti af rannsókninni
er spenningurinn. Hann er
skiljanlega mestur fyrst en svo
dregur úr honum. Undir það
síðasta eru krakkarnir orðnir
eins og þreytulegur starfs-
maður í Ríkinu á föstudegi fyr-
ir verslunarmannahelgi, búnir
á því og eiginlega komnir með
ógeð á nammi. Láta sig þó hafa
það enda ekki víst hvenær þeir
komast í svona veislu næst.
Mér er venjulega treyst fyrir nammiinnkaupum á þessu
heimili og mælieingin sem ég notaði var „Shitload af
nammi“. Það breytti þó ekki því að venju samkvæmt pan-
ikkaði eiginkona mín, rauk út í búð og keypti enn meira.
Þannig að ef þið komið í heimsókn þá get ég lofað ykkur
nammi með kaffinu.
Grikk er gott
’Undir það síðasta erukrakkarnir orðnir eins ogþreytulegur starfsmaður í Rík-inu á föstudegi fyrir versl-
unarmannahelgi, búnir á því
og eiginlega komnir með ógeð
á nammi. Láta sig þó hafa það
enda ekki víst hvenær þeir
komast í svona veislu næst.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma