Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Síða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018 É g gleymi því aldrei þegar ég heyrði fyrst að lagið væri komið í fyrsta sætið á vinsældalista,“ segir Craig Reid, annar tvíburanna í The Proclaimers. Hann hlær að minn- ingunni. „Ég var á veitingastað í London með vini mínum, að borða karrý, þegar falleg, ljós- hærð kona kom yfir til mín og spurði hvort ég væri ekki annar af The Proclaimers? Ég svar- aði því játandi og þá sagði hún: „Þið eruð núm- er eitt í heimalandinu mínu!“ Ég hugsaði með mér að það gæti ekki staðist, hún gæti ekki verið að segja satt. Ég spurði hvaðan hún væri og hún svaraði „Íslandi“ svo ég bara þakkaði henni fyrir og fannst þetta forvitnilegt, fór svo næsta dag til útgáfufyrirtækisins okkar og þar komu allir af fjöllum og tóku að hringja til að spyrjast fyrir. Einhvern veginn komust þeir svo fljótlega að því að þetta væri satt, við átt- um vinsælasta lagið á Íslandi!“ Craig er að sjálfsögðu að tala um stórsmellinn „I’m Gonna Be (500 Miles)“, sem hefur verið langvinsælasta lag The Proclaimers í 30 ár. Craig og tvíburabróðir hans, Charlie, stofnuðu The Proclaimers árið 1983, eftir að hafa prófað sig áfram í nokkrum skólapönksveitum fram að því. Þar tóku þeir alveg nýja stefnu í tónlistar- sköpun, en lögin eru undir sterkum áhrifum skoskrar sveita- og þjóðlagatónlistar. Þeir eru enda mjög stoltir af uppruna sínum, ákafir stuðningsmenn sjálfstæðis Skotlands og hafa aldrei séð neina þörf á því að syngja með öðrum hreim en sínum eigin, sem er meðal annars það sem vakti athygli á þeim í upphafi. Skoskur aðdáandi þeirra átti líka sinn þátt í henni þegar hann sendi kassettu með tónlist þeirra til hljóm- sveitarinnar The Housemartins, sem leist svo vel á að þeir buðu The Proclaimers að hita upp fyrir þá á tónleikaferð um Bretland árið 1986. Afkastamiklir og spilaglaðir Ári síðar gáfu tvíburarnir út fyrstu breiðskífu sína, This Is the Story, en á henni má finna lag- ið „Letter from America“ sem náði talsverðum vinsældum á Íslandi og lenti í 3. sæti á breska vinsældalistanum. Þar er einnig sungið um erfiðleikana við að vera með sterkan, skoskan hreim sem þótti ekki par fínn í laginu „Throw the ‘R‘ Away“ og hið þjóðlagaskotna „Make My Heart Fly“ lifir enn góðu lífi. Önnur breiðskífa þeirra Craig og Charlie varð þó sú sem kom þeim á kortið um allan heim. Platan í heild sinni er nokkurs konar óður til bæjarhlutans Leith, sem var áður sérstök hafnarborg, þar sem tví- burarnir ólust að mestu upp og hvar þeir búa enn þann dag í dag. Á þeirri plötu má finna vin- sæl lög á borð við „Oh Jean“, titillagið „Sun- shine on Leith“ og „I’m on My Way“ að ógleymdum stórsmellnum „I’m Gonna Be (500 Miles)“ sem hefur fyrir löngu skipað sér sess með ódauðlegum smellum tónlistarsögunnar. Sex ár liðu þar til þriðja breiðskífan kom út, „Hit the Highway“, þar sem enn einn smell- urinn, „Let’s Get Married“, leit dagsins ljós. Þótt Íslendingar hafi kannski lítið heyrt af The Proclaimers frá því á tíunda áratugnum hafa Skotarnir söngglöðu síður en svo setið auðum höndum og gáfu þeir nýlega út elleftu breið- skífu sína, Angry Cyclist, en sjaldan líða fleiri en þrjú ár milli platna. Þess á milli fara þeir í tónleikaferðalög um allan heim en í Skotlandi eru þeir fyrir löngu orðnir þjóðhetjur. Söng- leikur byggður á plötunni Sunshine on Leith var fyrst settur á svið árið 2007 og hefur verið sýndur reglulega víða um Bretland síðan og árið 2013 var gerð söngvamynd upp úr honum. Þreytast aldrei Platan Sunshine on Leith átti 30 ára afmæli í ágúst síðastliðnum og 11. nóvember verða akk- úrat 30 ár frá því að smellurinn „500 Miles“ komst í toppsæti Vinsældalista Rásar 2 og Ís- lendingar urðu þar með langfyrsta þjóðin til að velja lagið það vinsælasta í sínu landi. Í tilefni þeirra tímamóta sníkti blaðakona símanúmerið hjá Craig Reid og sló á þráðinn, en þurfti að viðurkenna í upphafi símtalsins að hún hefði ekki hugmynd um við hvorn tvíbur- ann hún væri að tala. „Ég er sá sem heldur á kassagítar á tónleikum,“ svarar Craig léttur, augljóslega vanur því að þurfa að útskýra hvor væri hvað enda eru þeir bræðurnir eineggja. Þeir eru nýkomnir úr tónleikaferðalagi um Kanada og við tekur túr um Bretland og Ír- land fram að jólum og þar sem þeir voru á tón- leikaferðalagi um Bandaríkin á síðasta ári er fyrsta spurning hvort þeir séu ekkert farnir að þreytast. „Þreytast? Neinei. Við kláruðum Bandaríkin í október 2016, þá fengum við nokkurra vikna frí og ég hélt að við myndum svo taka tíu mánuði í að semja næstu plötu en hún tók aðeins lengri tíma, rúmt ár, svo að tón- leikafríið varð lengra en það átti að vera. Við þekkjum ekki annað en að semja tónlist, taka upp tónlist eða spila á tónleikum. Við semjum ekki í törnum heldur höfum við tamið okkur síðustu fimmtán árin eða svo að setjast niður á hverjum degi og semja tónlist. Ég sem meira af henni en Charlie og er ekkert sérstaklega fljótur að semja en er búinn að komast að því að ef ég sit við á hverjum degi er ég kominn með efni í heila plötu eftir rétt rúman mánuð.“ Hann segir að þegar á þessu tímabili standi hittist þeir bræður 2-3 sinnum í viku, bara til að halda sér í söngformi og syngja saman eldri lögin sín. „Svo þegar við byrjum á nýja efninu þá höldum við áfram að hittast reglulega til að pússa lögin til, vanalega tvö til þrjú í senn, og stilla saman raddirnar. Þannig syngjum við lögin yfir aftur og aftur og aftur þar til við er- um sáttir við endanlega útgáfu. Þá tökum við næstu tvö til þrjú lög og svo framvegis. Þannig höfum við bara vanist því að vinna, svo tökum við upp „demó“ með einn kassagítar og hljóm- borð og látum svo hljómsveitina okkar hafa,“ segir Craig, en þeir hafa haft fastan hóp hljóð- færaleikara með sér á plötum og tónleika- ferðalögum frá árinu 2007. Smellur á 45 mínútum Eins og áður segir er Craig aðallagahöfundur dúettsins og á heiðurinn af smellnum „I’m Gonna Be (500 Miles)“ en hann man enn vel hvernig lagið varð til. „Við vorum að spila á tón- leikum hingað og þangað til að fylgja fyrstu plötunni okkar eftir og vorum að fara til Aber- deen að spila, sem er um 130 mílur norður af Edinborg þar sem við búum. Ég var tilbúinn og enn um klukkutími þar til ég yrði sóttur svo ég settist við hljómborðið og byrjaði að spila af fingrum fram og eftir 45 mínútur var lagið tilbúið, bæði textinn og hljómarnir. Ég hef aldr- ei verið svona fljótur að semja lag, það var bara eins og það hefði dottið af himnum ofan, nánast tilbúið. Við byrjuðum að spila það á tónleikum áður en við tókum upp plötuna – við Charlie fluttum það tveir einir órafmagnað – og það fór mjög vel í mannskapinn. Svo þegar við tókum það upp voru allir á því að þetta yrði fyrsta smáskífan, við töldum nokkuð víst að það fengi útvarpsspilun og þá yrði það nokkuð vinsælt. Og svo varð það svo sannarlega smellur. Það varð talsvert vinsælt í Bretlandi en í raun miklu stærri smellur í öðrum löndum, og á öðrum tíma því það var notað í þessari kvikmynd [Benny & Joon], svo að lagið ferðaðist um allan heim og náði vinsældum á mismunandi tíma.“ Öllum þessum árum síðar eru The Proclaim- ers enn að leika „500 Miles“ á tónleikum og þá ætlar þakið af húsinu. Craig segir að þeir verði þó aldrei þreyttir á laginu því þeir gæti sín á því að breyta lagavalinu og -röðinni fyrir hverja einustu tónleika. „Við höfum vanalega úr 35-40 lögum að velja og það eru ekki nema 8-9 lög sem við spilum örugglega á hverjum tónleikum svo við höldum spilagleðinni með því að skipta restinni út og endurraða efninu. Þannig leikum við aldrei sama settið tvisvar í röð og höfum alltaf gaman af tónlistinni sjálfir.“ Skálar fyrir Íslendingum En þrátt fyrir að 30 ára sigurganga „500 Miles“ hafi í raun hafist á Íslandi hefur The Proclaim- ers aldrei komið til Íslands. „Nei, ég þekki marga sem hafa farið þangað í frí en ég hef aldrei komist sjálfur. Okkur hefur verið boðið að halda tónleika þar en það hefur aldrei hent- að. Við ætluðum að reyna að koma því að áður en við fórum til Kanada, til að ná afmælisárinu, en það gekk bara ekki upp,“ segir Craig og hik- ar en bætir svo leyndardómsfullur við: „Ég tel það reyndar mjög líklegt að við spilum á Íslandi innan skamms, við viljum það mjög mikið.“ Ég tjái honum að lagið hafi náð toppsætinu á Íslandi nákvæmlega 11. nóvember 1988 og spyr hvort þeir bræður ætli að minnast þeirra tímamóta á einhvern hátt? „Ég er ekki alveg viss hvar við verðum þá, ég held að við verðum með tónleika einhvers staðar í Skotlandi en þarf að fletta því upp. En jú, núna ætla ég að reyna að muna dagsetninguna og skála fyrir Íslendingum þá og færa þeim þakkir fyrir að hafa verið fyrstir í heiminum til að setja lagið okkar í sæti númer eitt!“ Aðalstuðlag Skota Skosku tvíburarnir sem mynda dúettinn The Proclaimers hafa sungið í 30 ár um að arka 500 mílur og svo aðrar 500 mílur til viðbótar til að geta verið með ástinni sinni. Lagið „I’m Gonna Be“ kom út í ágúst 1988 og var fyrsta smáskífa plötunnar Sunshine on Leith, sem var önnur breiðskífa þessara ungu tónlistarmanna frá Leith í Edinborg. Á henni mátti jafnframt finna smellina „I’m on My Way“, sem yngri kynslóðir þekkja vel úr teiknimyndinni Shrek, og titillagið sjálft sem fyrir löngu er orðið fagnaðarsöngur stuðningsmanna skoska fót- „Aldrei verið svona fljótur að semja lag“ Um þessar mundir eru 30 ár síðan lagið „500 Miles“ með skosku hljómsveitinni The Proclaimers heyrðist fyrst, en segja má að Íslendingar hafi verið fyrstir til að uppgötva snilldina í þessum ódauðlega smelli. Ingibjörg Rósa ingibjorgrosa@gmail.com Bræðurnir Craig og Charlie ætla að skála fyrir Íslendingum 11. nóvember þegar 30 ár verða liðin frá því að þekktasti smellur þeirra náði fyrsta sæti á vinsældalista, sem var Vinsældalisti Rásar 2.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.