Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2018 LESBÓK Bækurnar mínar eru svo sem allar mis-munandi og margar mjög mismunandi.En ætli þær fjalli ekki allar í grunninn um sjálfsmyndina, þetta hvernig maður upp- lifir sjálfan sig í heiminum. Meira að segja Plokkfiskbókin sem er matreiðslubók fjallaði um sjálfsmyndina,“ segir Eiríkur Örn Norð- dahl, höfundur bókarinnar Hans Blær. „Hans Blær fjallar kannski um hvernig manni sé ætlað að vera eitthvað sem maður streitist gegn og hvernig maður fær að gegna sumum hlutverkum en ekki öðrum og átökin, óþolið, narsissisman og reiðina sem getur brostið út. Tilgangurinn að svo miklu leyti sem ég vissi hvað ég var að fara út í, eða hvar ég myndi enda var bara að halda áfram að kanna þessa þræði,“ segir Eiríkur. Misheppnuð bók í æðiskasti Áður en Hans Blær kom út í bókaformi flutti leikhópurinn, Óskabörn ógæfunnar leikritið Hans Blær í Tjarnarbíói í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar. „Það atvikaðist bara. Ég byrjaði að skrifa skáldsögu og hélt svo að ég hefði skrifað mig út í horn. Um svipað leyti báðu Óskabörnin mig um leikrit og ég stakk upp á þessari hug- mynd, því ég hélt að ég ætlaði ekki að nota hana í bók. Svo lifnaði bókin bara við þegar ég fór að skrifa leikritið,“ segir Eiríkur, sem not- ar mismunandi aðferðir við að skrifa bækur. „Ég hef byrjað á ótal bókum sem leiddu einfaldlega ekki neitt og sumar þeirra hef ég meira að segja klárað án þess að gefa út. Fyr- ir fjórum árum skrifaði ég svona misheppnaða bók í algeru æðiskasti á einum mánuði. Í henni var ein lítil aukapersóna, Hans Blær Viggósbur, sem lét mig ekki í friði og skreið á endanum aftur upp úr ruslafötunni. Og á nú sína eigin bók. Yfirleitt hefst þetta á því að ég fer að toga í einhverja þræði og rekja þá upp. Grunnhugmyndin að Illsku snerist bara um mann sem kveikti í húsinu sínu,“ segir Eiríkur og bætir við að auðvitað sé þetta ekki leið sem spari vinnu, að vaða svona um í myrkrinu. Hann hendi reiðinnar býsn af texta. En sé frekar vinnusamur og finnist þetta skemmti- legt á sama tíma og slíkt vinnulag sé óþolandi og taugatrekkjandi. Þegar ég var að skrifa Illsku rak ég mig á það hvernig öfgahægrið aðlagar sig samtím- anum og notar öll tækifæri til þess að fjar- lægja sig klassískri öfgahægristefnu. Þannig eru nasistar samtímans ekki í leðurstígvélum þrammandi um og gargandi á fólk a.m.k. ekki þeir hættulegu. Heldur tala þeir mjúkmálir um mjúk gildi og flokkarnir vilja gjarna tefla fram ólíklegum kandídötum í forgrunni,“ segir Eiríkur og bætir við að Pia Kjærsgaard sé kona, Siv Jensen líka, í Svíþjóð séu gyð- ingar framarlega, svartir séu í Front Nation- al, Pym Fortuyn hafi verið hommi og svo framvegis. „Einhverjum misserum eftir að ég byrjaði á bókinni rak ég mig á fyrirbærið Milo Yiannapoulus, sem er samkynhneigður karl- maður, giftur svörtum manni, stuðnings- maður Trumps og hrikalegt nettröll sem gerir í því að sjokkera. Þarna var búið að taka þessa sjálfsmyndarpólitík og vopngera hana, aðlaga hana öfgahægrinu,“ segir Eiríkur. „Hans Blær varð á endanum ekki beinlínis nasisti eða öfgahægrimaður, heldur fyrst og fremst ofbeldisfullt viðbragð. Taugaveiklað reiðiöskur sem á meira skylt við æsingalýð allra tíma, bæði þá ranglátu og þá réttlátu og þá sem einfaldlegu eru athyglissjúkir narsiss- istar, en hán sprettur samt úr þessum hug- myndaheimi og nýtir sér hann,“ segir Eiríkur og bætir við að hán þoli ekki vinstrimenn. Hán skrifar bókina sjálft Í bókinni eru notaðar þéranir þegar Hans Blær talar til eða um móður sína. Eiríkur seg- ir það vera vegna þess að Hans Blær sem skilgreinir sig sem hán „skrifi“ bókina sjálft. „Hán er sögumaður, og ávarpar móður sína með þérunum, af sömu ástæðum og hán skrif- ar um sjálft sig í þriðju persónu til þess að skapa ákveðna fjarlægð, til að fjarlægja sig, kæla sig niður og til þess að vera með stæla. Það er grunnstilling í persónuleika hánar að vera með stæla við allt og alla. Þá fannst mér sem höfundi líka áhugavert að spegla þéran- irnar og hánanirnar. Þetta eru bæði fornöfn sem vefjast fyrir sumu fólki og ólíkum hópum. Yngra fólk á auðveldara með hánanir og eldra með þéranir. Mér fannst þéranirnar ríma betur við tungumál bókarinnar,“ segir Eiríkur. 17 ára þunglyndur unglingur „Ég hóf skriftir 17 ára sem þunglyndur ung- lingur og gaf út fyrstu ljóðabókina 23 ára. Eftir það hef ég gefið út átta ljóðabækur, sex skáldsögur, tvö ritgerðasöfn og eina mat- reiðslubók. Auk þess hef ég þýtt tíu til fimm- tán bækur og ritstýrt þremur,“ segir Eiríkur, sem vinnur nú að hugmynd sem hann segir á viðkvæmu stigi. „Ég vil sem minnst um hana segja. En hún gerist á Ísafirði. Það er raunar óvenjulegt að ég sé ekki með margar bækur í smíðum og einhverjar langt komnar. Fyrir nokkrum vik- um var ég ekki með neitt í vinnslu og það hef- ur sennilega ekki gerst síðan ég var einmitt 17 ára þunglyndur unglingurinn,“ segir Eirík- ur, sem tilnefndur var til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs fyrir Illsku og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir sömu bók árið 2012. Í ár fékk hann Menningar- verðlaun DV 2017, fyrir ljóðabókina Óratorrek. Auk þess hlaut Eiríkur Íslensku þýðingarverðlaunin árið 2008, fyrir þýðinguna á bókinni Móðurlaus í Brooklyn. Eiríkur hef- ur hlotið margvíslegar aðrar viðurkenningar, meðal þeirra má nefna Ljóðstaf Jóns úr Vör; Rauðu hrafnsfjöður lestrarfélagsins Krumma fyrir bókina Eitur fyrir byrjendur; frönsku Tranfuge-verðlaunin auk tilnefninga til Medici-verðlaunanna og Prix Meilleur Livre Étrange. Næsta verkefni Eiríks Arnar Norðdahl tengist heimabæ hans, Ísafirði. Ljósmynd/Baldur Pan Speglar þéranir og hánanir Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, þýðandi og ljóðskáld, hóf skriftir sem 17 ára þunglyndur unglingur. Sjötta og nýjasta skáld- saga Eiríks, Hans Blær, kom út nýlega. Í henni er fjallað um sjálfsmyndina og hlutverk sem einstaklingnum er ætlað að gegna. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is ’Fyrir fjórum árum skrifaði égsvona misheppnaða bók í al-geru æðiskasti á einum mánuði. Í henni var ein lítil aukapersóna, Hans Blær Viggósbur, sem lét mig ekki í friði og skreið á end- anum aftur upp úr ruslafötunni. Og á nú sína eigin bók.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.