Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2018, Side 40
SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2018 Fanney Eiríksdóttir greindist með leghálskrabbamein á 21. viku meðgöngu en um síðustu helgi sögðu hún og eiginmaður hennar, Ragnar Snær Njálsson, frá baráttu Fanneyjar í forsíðuviðtali Sunnudagsblaðs Morgun- blaðsins. Taka þurfti son þeirra með keisaraskurði á rúmlega 29. viku meðgöngu en drengurinn, sem hlaut nafnið Erik Fjólar, er nú á vökudeild og Fanney í hörðum lyfja- og geislameðferðum. Fyrir eiga þau hjónin fjögurra ára dóttur Emilý Rósu. Hressleikarnir, góðgerðarverkefni heilsuræktar- stöðvarinnar Hress í Hafnarfirði, styrkja í ár fjölskyld- una en þeir fara fram í dag, laugardaginn 3. nóvember. Þeim sem ekki komast á Hressleikana og vilja styrkja fjölskylduna er bent á söfnunarreikninginn 0135-05- 71304, á kennitölu 540497-2149. Ragnar Snær og Fanney Eiríksdóttir ásamt syni sínum sem kom í heim- inn undir lok september. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Komið að hápunktinum Hressleikarnir, þar sem safnað er fyrir Fanneyju Eiríksdóttur og fjöl- skyldu hennar, fara fram um helgina, laugardaginn 3. nóvember. „Fróðir menn segja: Ef þú hefir sjeð London þá hefir þú sjeð heiminn.“ Þetta var fullyrt í aug- lýsingu með hálfgerðu stríðsletri sem birtist á forsíðu Morgun- blaðsins fyrir réttum 90 árum, 4. nóvember 1928. Á þeim tíma skrapp landinn vitaskuld ekki á hverjum degi til útlanda, hvað þá til London. „Það er mikill sannleikur í þessu,“ hélt auglýs- andinn, Knattspyrnufjelag Reykjavíkur, áfram. „Stórkost- leg hlutavelta verður haldin í dag í stórhýsi að Þormóðs- stöðum við Skerjafjörð. (Gengið fram hjá Loftskeytastöðinni suð- ur fyrir Grímstaðaholtið. – 15 mínútna gangur úr miðbænum). Hlutaveltan hefst kl, 2 e. h. Margir afskaplega spennandi drættir. Þar á meðal einn sem gildir alla leið suður til Lund- únaborgar og aftur heim til gamla Fróns. Þá er ferð upp til skýja með flugvjelinni næsta sumar.“ Almennilegt að bjóða upp á flug heim líka. Ekki nóg með það. „Hvað seg- ið þjer um það að fá fyrir 50 aura Ljósakrónu, sem er 75 króna virði, eða þá kol í tonnatali; tunnu fulla af olíu, hvort heldur þjer viljið Mjallhvít eða Sunnu.“ Drátturinn kostaði aðeins 50 aura og inngangur sama. Eftir hlutaveltuna átti að vera dans, veitingar, gosdrykkir og fleira. GAMLA FRÉTTIN Lundúna- ferð í boði Lundúnaborg á því herrans ári 1928, þegar drátturinn fór fram. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Júlíus Jónasson handboltakappi Bjarni Friðriksson júdókappi Sean Bean kvikmyndaleikari GM 9900 Verð frá 450.000,- GM 3200 Verð frá 595.000,- GM 2100 Verð frá 556.000,- GM 7700 Verð frá 639.000,- GM 3300 Verð frá 685.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CONDEHOUSE TEN Borðstofuborð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.