Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018 5
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
RB leitar að metnaðarfullum forstjóra. Horft er til leiðtoga sem hefur drifkraft til framkvæmda, finnur sig í hröðu og
síbreytilegu umhverfi og leiðir metnaðarfullt starfsfólk af krafti. Forstjóri stýrir daglegum rekstri og skapar sterka
liðsheild. Hann mótar stefnu í samráði við stjórn og ber ábyrgð á að settum markmiðum sé náð.
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun
• Árangursrík stjórnunarreynsla
• Hæfni til að leiða tækniframfarir sem bæta rekstur
• Kraftur og áhugi á að skapa sterka liðsheild
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Stefnumótandi hugsun
• Framsýni og þor til að ná árangri í starfi
FORSTJÓRI RB
Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2018.
Umsókn og fylgigögn sendist á sverrir@hagvangur.is merkt
Forstjóri RB.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
RB er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem hefur þróað helstu grunnkerfi fyrir íslenskan
fjármálamarkað frá 1973. Framtíðarsýn RB er að auka gæði og hagkvæmni fjármálaþjónustu með samþættum
og samnýttum lausnum. Gildi fyrirtækisins eru fagmennska, öryggi og ástríða.
RB er framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2018.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi