Morgunblaðið - 23.11.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2018
Sveitarfélagið Vogar er staðsett á Suðurnesjum, í u.þ.b. 20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í Reykjanesbæ og á Keflavíkurflugvöll. Íbúar
sveitarfélagsins eru nú um 1.300 talsins, og hefur fjölgað talsvert að undanförnu. Búist er við áframhaldandi vexti og mikilli uppbyggingu í sveitarfélaginu næstu árin,
með tilheyrandi fjölgun íbúa. Nemendur í grunnskólanum eru um 175 talsins, og rúmlega 60 börn eru í leikskólanum. Áhersla er lögð á fjölbreytt og metnaðarfullt
félagsstarf eldri borgara í samstarfi við félag eldri borgara í Vogum. Sveitarfélagið starfrækir einnig félagsmiðstöð unglinga, þar sem börn og ungmenni finna ýmsa
afþreyingu og tómstundastarf við sitt hæfi. Ungmennafélagið Þróttur rækir öflugt íþrótta- og ungmennastarf í sveitarfélaginu. Fjölmörg frjáls félagasamtök starfa í
sveitarfélaginu, m.a. á vettvangi líknarmála, menningarmála og tómstunda. Sveitarfélagið skerpir nú áherslur í starfseminni, og leitar að traustum og öflugum liðsauka
til að takast á við þau fjölmörgu og krefjandi verkefni sem framundan eru.
Sveitarfélagið auglýsir nú laust til umsóknar ný störf
menningarfulltrúa og íþrótta- og tómstundafulltrúi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja. Um fullt starf er að ræða í báðum tilvikum.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri, netfang asgeir@vogar.is
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2018. Umsóknum skal skilað á netfangið skrifstofa@vogar.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og þeim svarað þegar gengið hefur verið frá ráðningu.
Menningarfulltrúi
Verksvið:
Menningarfulltrúi hefur yfirumsjón með menningartengdri starfsemi á vegum
sveitarfélagsins. Hann undirbýr, skipuleggur og sér um framkvæmd árlegra
fjölskyldudaga, í nánu samstarfi við starfandi félagasamtök í sveitarfélaginu.
Menningarfulltrúi veitir jafnframt félagsstarfi eldri borgara forstöðu, og er næsti
yfirmaður starfsfólks félagsstarfsins. Hann ber ábyrgð á að starfsemi sem
undir hann heyrir sé í samræmi við fjárhagsheimildir og innan samþykktrar
fjárhagsáætlunar. Menningarfulltrúi annast samskipti við félagasamtök á vett-
vangi menningarmála og er tengiliður við félögin á grundvelli samstarfssamninga
við þau. Menningarfulltrúi er starfsmaður Frístunda- og menningarnefndar og
kemur að undirbúningi mála í samstarfi við formann nefndarinnar ásamt íþrótta-
og tómstundafulltrúa sveitarfélagsins. Menningarfulltrúi hefur starfsaðstöðu á
bæjarskrifstofu, auk þess sem hann hefur aðstöðu í Álfagerði þar sem félagsstarf
eldri borgara hefur aðstöðu sína. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri.
Hæfniskröfur:
• Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Menntun á sviði menningarstjórnunar er kostur.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Áhersla á færni og lipurð í samskiptum.
• Góð almennt tölvukunnátta og tölvufærni.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi
Verksvið:
Íþrótta- og tómstundafulltrúi veitir félagsmiðstöð unglinga forstöðu. Hann er
næsti yfirmaður starfsfólks félagsmiðstöðvarinnar og ber ábyrgð á rekstur
hennar sé í samræmi við fjárhagsheimildar og innan samþykktrar fjárhags-
áætlunar. Íþrótta- og tómstundafulltrúi starfar jafnframt náið með stjórnendum
grunnskólans, um málefni ungmenna. Íþrótta- og tómstundafulltrúi annast
samskipti við íþrótta- og æskulýðsfélög innan sveitarfélagsins og er tengiliður
við félögin á grundvelli samstarfssamninga við þau. Íþrótta- og tómstundafulltrúi
situr fundi Frístunda- og menningarnefndar og kemur að undirbúningi mála í
samstarfi við formann nefndarinnar og menningarfulltrúa sveitarfélagsins (starfs-
manns nefndarinnar). Íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur starfsaðstöðu bæði í
félagsmiðstöð unglinga og í grunnskólanum. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri.
Hæfniskröfur:
• Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Menntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræða er kostur.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Áhersla á færni og lipurð í samskiptum, ekki síst við börn og unglinga
• Góð almennt tölvukunnátta og tölvufærni.
Viltu vaxa með okkur?
Gert er ráð fyrir 505 milljóna
króna afgangi af rekstri Sveitarfé-
lagsins Árborgar á næsta ári, sam-
kvæmt fjárhagsáætlun sem var til
fyrri umræðu í bæjarstjórn í vik-
unni. Samkvæmt áætluninni eru
álagningarprósentur skatta á íbúð-
arhúsnæði lækkaðar umtalsvert til
að mæta þeirri miklu hækkun sem
orðið hefur á fasteignamati í sveitar-
félaginu. Lækkar fasteignaskattur
úr 0,325% í 0,275%, eða um 15,4%, að
því er fram kemur í frétt frá sveitar-
félaginu.
Skuldaviðmið skv. sveitarstjórn-
arlögum, eins og það hefur verið
reiknað á undanförnum árum, nær
nýju lágmarki á næsta ári miðað við
framlagða áætlun og verður 122,7%.
Breyting hefur þó orðið á lögum um
þetta viðmið og reiknast það 106,7%
samkvæmt nýjum reglum.
Auka velsæld og ánægju
„Bættur rekstur mun gera kleift
að bæta þjónustu við íbúa og auka
þannig velsæld og ánægju í sveitar-
félaginu. Myndarlegur rekstrar-
afgangur er einnig nauðsynlegur svo
sveitarfélagið hafi aukna getu til
fjárfestinga í nauðsynlegum inn-
viðum á borð við leikskóla, grunn-
skóla, íþróttahús og fráveitu,“ segir í
tilkynningu.
Í Árborg verður fjárfest í inn-
viðum fyrir rúmlega 10 milljarða
króna á næstu fjórum árum. Upp-
bygging íbúabyggðar í Björkur-
stykki, með um 650 íbúðum og nýj-
um grunnskóla, uppbygging
íþróttamannvirkja við Engjaveg á
Selfossi, nýr leikskóli og hreinsistöð
fráveitu verða stærstu einstöku fjár-
festingarnar á komandi árum. Í sögu
sveitarfélagsins hefur aldrei áður
verið farið í jafn miklar fjárfestingar
í innviðum og nú stendur fyrir dyr-
um, en á slíku er mikil þörf nú vegna
íbúafjölgunar. Af henni leiðir jafn-
framt að nú verður settur kraftur í
orku- og vatnsöflun fyrir veitukerfi
sveitarfélagsins.
Miklar fjárfestingar
Fjárhagsáætlun Afgangur í Árborg Fasteignagjöld
lækkuð Nýtt hverfi og skólar byggðir á næstu árum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selfoss Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar í bænum, þar fjölgar fólki
nú jafnt og þétt sem kallar á ýmsar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins.
Áherslu þarf að leggja á jöfnun
launa í komandi kjarasamningum
og vinda ofan af því launaskriði
sem hefur verið í efstu lögum
samfélagsins.
Þetta segir í stjórnmálaályktun
haustfundar Framsóknarflokks-
ins sem haldinn var um síðast-
liðna helgi.
„Hér á landi eiga að vera jöfn
tækifæri og samtal stjórnvalda
við aðila vinnumarkaðarins um
stefnu í húsnæðismálum, launa-
þróun, atvinnuleysistryggingar,
stefnu í menntamálum, samspil
launa, bóta og skatta er lykillinn
að farsælli lausn fyrir allt sam-
félagið,“ segir í ályktuninni.
Vikið er að menntamálum í
ályktun Framsóknarflokksins og
ríkisstjórnin þar hvött til þess að
halda áfram þeirri sókn sem sé
hafin í menntamálum landsins.
Mennta- og atvinnustefna verða
að haldast í hendur enda geti
skortur á vinnuafli í ýmsum fag-
stéttum haft neikvæð áhrif á
verðlagsþróun og hagvöxt í land-
inu.
„Í því samhengi þarf að halda
áfram að efla sérstaklega verk-,
iðn-, og starfsnám á landinu öllu
og auka nýliðun í kennarastétt.
Mennta- og námslánakerfið á að
tryggja jöfn tækifæri fólks til að
auka færni sína og þekkingu.
Klára þarf heildarendurskoðun
námslánakerfisins á kjörtíma-
bilinu með það að markmiði að
skapa jákvæða hvata fyrir náms-
menn til náms og vinnu.
Huga þarf að vellíðan nemenda
á öllum skólastigum og tryggja
greiðan aðgang þeirra að nauð-
synlegri sérfræðiþjónustu,“ segja
framsóknarmenn.
Tækifæri verði jöfnuð og verkmenntun efld
Áætlað er að 204.700 manns á
aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði
verið á vinnumarkaði í október
síðastliðnum, samkvæmt nýrri
vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu
Íslands. Það jafngildir 81,2% at-
vinnuþátttöku. Af þeim voru
198.700 starfandi og 6.000 án
vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall
starfandi af mannfjölda var 78,9%
og hlutfall atvinnulausra af vinnu-
afli var 2,9%.
Samanburður mælinga fyrir
októbermánuð í fyrr og í ár sýnir
að vinnandi fólki fjölgaði um 3.900
manns milli ára, en hlutfall þess af
mannfjölda lækkaði um 0,6%.
Starfandi fólki fjölgaði um 5.200
manns en hlutfall starfandi af
mannfjölda var nákvæmlega það
sama. Atvinnulausir í október 2018
mældust 1.400 færri en í sama
mánuði í fyrra þegar þeir voru
7.400 eða 3,7% af vinnuaflinu.
Störfum fjölgar en atvinnuleysið 2,9%