Morgunblaðið - 13.12.2018, Page 1

Morgunblaðið - 13.12.2018, Page 1
SPENNTUR FYRIR JÓLATÖRNINNIÞARFAÞING ÁVINNUSTÖÐUM JI Osmo Pocket tekur myndbandsupptökur upp á næsta stig. 4 Unnið í samvinnu við Flow VR lítur á hugleiðslu í sýndarveruleika sem gott og öflugt verkfæri til að hlúa að vellíðan starfsfólks í fyrirtækjum. 14 VIÐSKIPTA D Miklar breytingar hafa átt sér stað í tískuheiminum segir framkvæmdastjóri H&M á Íslandi. Kauphegðun neytenda færist nær stafrænni notkun. 4 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta Veltan minnkar í Kauphöll Útlit er fyrir töluverða veltu- minnkun í Kauphöll Íslands ef árið í ár er borið saman við árið í fyrra. Fram að 11. desember á þessu ári nemur heildarvelta hlutabréfa- viðskipta í Kauphöllinni 488 millj- örðum króna. Árið 2017 nam veltan 632 milljörðum króna og því þyrfti fjárfestingu upp á tæpa 144 millj- arða króna á þeim rúmu tveimur vikum sem eftir lifa af árinu til þess að jafna þá tölu. Rétt tæplega einn fimmti hluti allra hlutabréfaviðskipta í Kauphöll- inni var með bréf í Marel og námu þau 92,5 milljörðum króna en fyrir- tækið stefnir á tvíhliða skráningu er- lendis á næstu misserum. 11% af heildarhlutabréfaviðskiptum voru með bréf Icelandair Group, eða um 55 milljarðar króna. Velta með bréf í fasteignafélaginu Reitum nam 40 milljörðum, en viðskipti með bréf í Festi 37, Högum 34 og Símanum 33. Samanlagt nemur velta með bréf þessara fyrirtækja 60% af heild- arveltu Kauphallarinnar á árinu. Páll Harðarson, forstjóri Kaup- hallarinnar, segir þessa þróun ekki komna til að vera. „Eitt af því sem hefur verið nefnt í þessu samhengi og er án vafa mikilvægt er að lífeyr- issjóðirnir hafa beint sjónum sínum meira að erlendum kaupum. Síðan hefur dregið úr innflæði vegna fjár- festinga erlendra aðila. Hvort tveggja eru þetta tímabundnir þætt- ir,“ segir Páll en líkt og fram kom í Morgunblaðinu í gær telur Páll að áhyggjuefni sé hversu einsleitt eign- arhaldið í Kauphöllinni er þar sem lífeyrissjóðirnir eiga um 50% af skráðu markaðsvirði samkvæmt nýtútgefinni hvítbók. Óvissa haft letjandi áhrif „Varðandi erlenda fjárfesta og fleiri markaðsaðila hefur verið óvissa og markaðurinn verið til- tölulega flatur. Það hefur ekki virk- að hvetjandi til þess að koma inn á markaðinn. Ég held að það hafi haft letjandi áhrif,“ segir Páll sem á ekki von á öðru en að þetta breytist. Hann reiknar með að erlendir aðilar komi í auknum mæli inn. „Þetta eru alveg örugglega tímabundnir þættir sem þarna hafa áhrif,“ segir Páll. Aðspurður segir hann afskráningu Össurar í fyrra ekki skipta verulegu máli í þessu sambandi enda hafi fyrirtækið ekki verið á meðal veltu- mestu fyrirtækja á síðasta ári. „Það verður nokkur lækkun á milli ára. En við höfum ekki áhyggjur af þró- uninni í ár sem einhverri vísbend- ingu um langtímaþróun. Þetta eru fyrst og fremst skammtímaþættir.“ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Velta í Kauphöllinni er langt frá því að vera jafn mikil og í fyrra. Forstjóri Kauphall- arinnar segir að um tíma- bundið ástand sé að ræða. Morgunblaðið/Kristinn Velta hlutabréfaviðskipta í Kauphöll Íslands mun dragast töluvert saman á milli ára en þróunin er ekki komin til að vera að sögn Páls Harðarsonar. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.400 13.6.‘18 13.6.‘18 12.12.‘18 12.12.‘18 1.739,78 1.610,43 140 135 130 125 120 125,35 140,1 Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veri- tas, segir að kostnaður í lyfjageir- anum muni aukast vegna nýrrar reglugerðar ESB sem innleiða á hér á landi. Hún segir að ESB vilji tryggja að fölsuð lyf komist ekki á markað, en freistandi sé fyrir óprúttna aðila að skipta dýrum lyfj- um út fyrir lyfleysu. Hrund segir að um vaxandi vandamál sé að ræða, sem þó hefur ekki orðið vart við hér á landi ennþá. Við þessu hafi lyfjaiðnaðurinn brugðist með því að tryggja rafræna skráningu á hverri einustu pakkn- ingu. Við það aukist kostnaður í greininni gróft áætlað um eina evru á hverja einustu pakkningu. Eitt af því sem felst í reglugerð- inni er að erlendir lyfjaframleið- endur verða að prenta íslenska fylgi- seðla, en þar sem Ísland er örmarkaður þá séu ekki allir fúsir til þess. Þar með gæti lyfjum fækkað á markaðnum. Lyfjakostnaður mun aukast Morgunblaðið/Hari Hrund segir að fölsuð lyf séu vax- andi vandamál um alla Evrópu. Ný reglugerð ESB um föls- uð lyf gæti aukið kostnað allra lyfja um eina evru. 8 Öflug kínversk tæknifyrirtæki eins og Alibaba, Baidu og Ten- cent standa öll frammi fyrir mjög alvarlegum áskorunum. Tæknirisana gæti dagað uppi 10 Slack er sennilega á leið á hlutabréfamarkað, en fyrst þarf að ákveða hvort skiptir meira máli: vöxtur eða hagnaður. Slack fær ekki að slaka á 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.