Morgunblaðið - 13.12.2018, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 5FRÉTTIR
Ferðaþjónustan
á Hveravöllum til sölu
Gistiskálar, tækjabúnaður, innviðir og öll önnur aðstaða á Hveravöllum
er til sölu. Til staðar er ný vatnsveita og ný afkastamikil fráveita.
Ferðaþjónusta er rekin allan ársins hring á Hveravöllum á 50 ha leigulóð.
Fyrir liggur tillaga að deiliskipulagi um uppbyggingu nýrrar
hálendismiðstöðvar á Hveravöllum.
Fasteignasala Mosfellsbæjar Sími 586 8080
Nánari upplýsingar veita:
Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali, sími 899 5159, einar@fastmos.is
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Hveravallafélagsins, sími 660 1304, thorir@grayline.is
FJÁRMÁLAMARKAÐUR
Háskólinn í Reykjavík hefur stofnað
nýtt rannsóknarsetur á sviði fjár-
tækni. „Fjártækni er eitthvað sem
hefur vaxið mjög hratt á aðeins örfá-
um árum,“ segir Kolbrún Eir Ósk-
arsdóttir, verkefnastjóri fjártækni-
setursins, í frétt á vef skólans. Hún
segir viðfangsefni fjártækni vera að
veita notendum fjármálafyrirtækja
og stofnana betri þjónustu, einfalda
greiðslukerfi og auka gagnsæi.
Ein af áherslum fjártækniseturs
verður fræðsla og umræður um
bálkakeðjur, eða blockchain. „Flest
fyrirtæki áætla að bálkakeðjur verði
orðnar hluti rekstrarins árið 2020.“
Í fréttinni segir einnig að HR sé
meðlimur í Fjártækniklasanum sem
rekur nýsköpunarsetur og hefur það
að markmiði að efla nýsköpun í fjár-
málum og fjártækni.
Kolbrún ásamt tveimur nemendum
sem hafa verið ráðnir í Fjártækni-
setrið, Sigurði Helgasyni og Brynju
Dagmar Jakobsdóttur.
Fjártækni-
setur stofn-
að við HR
SJÁVARÚTVEGUR
Verðmæti sjávarafla íslenskra skipa
nam tæpum 11,9 milljörðum króna í
ágúst síðastliðnum skv. nýjum tölum
frá Hagstofu Íslands. Eru það jafn
mikil verðmæti og í sama mánuði í
fyrra. Þar af nam verðmæti botnfisk-
aflans að þessu sinni 6,9 milljörðum
króna en uppsjávaraflans 3,2 millj-
örðum. Aflaverðmæti þorsks nam 4
milljörðum króna og því reyndist
hann sem fyrr langverðmætasta teg-
undin sem dregin var úr sjó. Næst-
mest veiddist af makríl eða fyrir
tæpa 3 milljarða króna.
Botnfiskaflinn jókst um 2,9% frá
því í ágúst í fyrra. Uppsjávaraflinn
dróst hins vegar saman um 13,6%.
Verðmæti flatfisktegunda stóð í 1,3
milljörðum króna nú og verðmæti
skel- og krabbadýraafurða nam 385
milljónum króna.
Á 12 mánaða tímabili, frá sept-
ember 2017 til ágústmánaðar 2018,
nam aflaverðmæti úr sjó rúmum 125
milljörðum króna sem er 12,9%
aukning miðað við sama tímabil ári
fyrr.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Þorskurinn er sem fyrr verðmætasta
tegundin sem veidd er við landið.
Komu með
11,9 ma. að
landi í ágúst
VAXTAÁKVÖRÐUN
Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís-
lands ákvað í gær að halda stýrivöxt-
um bankans óbreyttum og haldast
þeir því áfram í 4,5%. Í ávarpi Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra
við vaxtaákvörðunina greindi hann
frá því að taumhald peninga-
stefnunnar hefði heldur losnað á ný
eins og það mælist í raunvöxtum
Seðlabankans. Verðbólgan hefur
aukist eftir því sem liðið hefur á árið
og mældist 3,3% í nóvember, þar
sem þyngst vegur hækkun innflutn-
ingsverðs undanfarna mánuði en
gengi krónunnar hefur lækkað um
liðlega 11% frá áramótum. Már
greip til kunnuglegs orðalags er
hann lýsti því að nefndin hefði „bæði
vilja og þau tæki sem þarf til að
halda verðbólgu við marmkið til
lengri tíma litið,“ og haldi verð-
bólguvæntingar áfram að hækka
umfram markmið muni það kalla á
„harðara taumhald peningastefn-
unnar“. Már nýtti þó einnig tæki-
færið til þess að greina nánar frá
stöðu mála er varða losun síðasta
hluta aflandskrónueignanna sem
lokuðust inni við innleiðingu fjár-
magnshafta í kjölfar fjármálahruns-
ins. Ítrekaði hann að frumvarp af
þessu tagi yrði ekki samþykkt fyrir
áramót og að það mundi ekki hafa
áhrif á gengi krónunnar á næstunni.
Sagði hann enn fremur að af þeim 84
milljörðum aflandskrónueigna sem
eru til staðar væru 64 milljarðar sem
gætu farið úr landi á nokkurra vikna
tímabili. Sagði hann Seðlabankann
ráða vel við það að standa við þau
orð að „láta ekki þennan fortíðar-
vanda verða til þess að lækka gengi
krónunnar“ og að gjaldeyrisinn-
gripum yrði beitt en gjaldeyrisforði
Seðlabankans nemur 770 millj-
örðum. peturhreins@mbl.is
Fortíðarvandi mun ekki veikja krónuna
Morgunblaðið/Hari
Már segir Seðlabankann ráða vel
við aflandskrónueignavandann.