Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018VIÐTAL upp á mikla sérsmíði og þjónustu en það er líka nýtt fyrir okkur að standa í eigin framleiðslu.“ Annað sem er nýtt við Stoð er að félagið er með tvær verslanir í Danmörku. „Þó að við séum í miklum samskiptum við erlendu birgjana okkar, sem eru á bilinu 2-300 talsins, höfum við fram að þessu ekki verið með starfsemi erlendis.“ Eins og fyrr sagði stendur yfir þarfagreining fyrir öll fyrirtæki Veritas, þar á meðal Stoð. „Það er margt spennandi hægt að gera með Stoð. Öldrunarmarkaðurinn er einhver mest vaxandi markaður í heimi. Svo er lífsstíllinn að breytast og fólk er virkara fram eftir aldri. Við teljum okk- ur geta styrkt og stækkað starfsemi Stoðar tölu- vert mikið, hvort sem það verður á sviði fram- leiðslu eða almenns vöruframboðs.“ Hrund segir að Stoð veiti mikla persónulega þjónustu. „Þetta er skemmtilegur og gefandi bransi.“ Starfað í einkeypisumhverfi Talið berst nú að því einkeypisumhverfi af hendi hins opinbera sem lyfjaheildsölum á Íslandi er búið, en lyfsala stendur undir meirihluta af heildartekjum Veritas-samstæðunnar, sem eru rúmir 17 milljarðar á ári. Í umhverfinu er víða pottur brotinn að sögn Hrundar. Það að vinna í umhverfi þar sem hið opinbera setur umgjörð, hefur eftirlit og er stærsti – og stundum eini – kaupandinn geti verið snúið. „Það er allt í lagi ef ríkið er sanngjarnt og heiðarlegt í sinni aðferða- fræði en stundum hefur okkur þótt skorta á skiln- ing á aðstæðum.“ Eftir að blaðamaður hafði komið sér vel fyrir á skrifstofu Hrundar í Veritas við Hörgatún í Garðabænum lék honum fyrst forvitni á að vita hvort fyrirtækið sæi framtíðina fyrir sér áfram þarna í Garðabænum eða á einhverjum allt öðr- um stað. „Þetta er töluverð starfsemi hjá okkur í dag og svona atvinnustarfsemi á í sjálfu sér ekki heima á þessum stað, í miðbæ Garðabæjar, til lengri tíma. Á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að þetta er mikilvæg lóð fyrir Garðabæ,“ segir Hrund og bætir við að ekki sé ólíklegt að ein- hvern tíma verði fundin ný staðsetning fyrir Veri- tas-samstæðuna. Þarfagreining standi yfir fyrir öll dótturfyrirtækin, horft sé til líklegs vaxtar hverrar einingar fyrir sig. Þar komi húsnæðis- málin einnig til skoðunar enda eru fyrirtækin á fjórum stöðum í dag. Akkur væri í því að koma starfseminni allri undir eitt þak, eða a.m.k. færri. „Svo á borgarlínan að fara hér framhjá, sem minnkar ekki mikilvægi lóðarinnar. En okkur líð- ur ákaflega vel hér og enn er ekki farið að þrengja verulega að okkur. Hins vegar erum við farin að hafa áhyggjur af þrengslum í vöruhúsinu fyrir aðrar vörur en lyf í Suðurhrauni, enda hefur fyrirtækið verið í miklum vexti í þeim hluta. Það sama má segja um Stoð í Trönuhrauni.“ Auk Distica samanstendur Veritas af stoð- tækjafyrirtækinu Stoð, sem Veritas festi kaup á sl. haust, lyfjaheildsölunni Vistor, sölu- og mark- aðsfyrirtækinu Artasan og lækningatækja- fyrirtækinu Medor. Að auki hefur fasteignum fyrirtækisins verið komið fyrir í systurfélagi. Það sama má segja um einstakar fjárfestingar félags- ins. „Við seldum reyndar stærstu fjárfestinguna fyrr á þessu ári, 12% hlut í Festi. Við fylgdum þar fjárfestahópi sem við tengdumst og N1 keypti all- an hlutinn. Sú fjárfesting var ótengd kjarna- starfsemi okkar og í raun meira á forræði aðal- eiganda Veritas, Hreggviðs Jónssonar.“ Keyptu lítil sprotafyrirtæki Hrund segir að töluvert sé leitað til fyrirtækis- ins hvað fjárfestingar varðar. „Við erum almennt ekki í sprotafyrirtækjum en gerðum samt undan- tekningu á því og fjárfestum nýlega í litlu sprota- fyrirtæki sem heitir Lumina. Það auðveldar læknum sjúkraskráningu og eykur öryggi við skráninguna.“ Spurð nánar út í starfsemi dótturfyrirtækj- anna fimm segir Hrund að Artasan sérhæfi sig í samheitalyfjum, lausasölulyfjum og heilsuvöru og hefur að hennar sögn verið í mikilli sókn. „Artasan hefur bætt við sig heilsuvörum, sem falla vel að innviðum okkar og dreifineti. Það er ofboðslegt framboð af vörum í þessum heilsu- geira og við leggjum mikla áherslu á gæðavörur. Reynsla okkar úr lyfjageiranum gerir okkur auð- veldara fyrir að greina og finna réttu vörurnar.“ Medor sérhæfir sig í lækningatækjum, sem fara mikið inn á spítalana. „Þetta er allt frá ein- földum rekstrarvörum upp í háþróuð lækninga- tæki og -tól. Við sjáum svo um uppsetningu og eftiráþjónustu við tækin. Medor selur líka mikið inn á rannsóknarstofur, bæði efni og tæki.“ Distica sjái hins vegar um innflutning, vöru- húsastarfsemi og dreifingu fyrir samstæðuna og aðra viðskiptavini. Stoð er „nýjasta barnið“ í hópnum, eins og Hrund orðar það. „Sú starfsemi er að sumu leyti nýlunda fyrir okkur þar sem Stoð er í smásölu. Það selur stuðningstæki, hjólastóla og vörur til eldri borgara og fatlaðra m.a. Fyrirtækið býður Hrund lýsir því hvernig ríkið hafi ákveðið árið 2004 að kaupa lyf af heildsölum samkvæmt með- altalsverði á Norðurlöndum. Í hruninu árið 2008 hafi syrt í álinn þegar ríkið ákvað að ganga enn lengra hvað varðar S-lyfin svokölluðu, lyfin sem oftast eru gefin á sjúkrahúsunum og eru gjarnan þau dýrustu og þyngstu í lyfjakaupum lands- manna. „Þá var ákveðið að miða við lægsta verð á Norðurlöndum.“ Hrund segir að lögmál hagfræðinnar eigi ekki við í umhverfi íslenskra lyfjaheildsala. „Það er skrýtið að vera að selja vöru sem kaupandinn, í þessu tilfelli ríkið, ákveður sjálfur verðið á. Þetta er mjög langt frá eðlilegum og fullkomnum mark- aði eins og hann er skilgreindur í hagfræðinni.“ Ísland er jafnframt örmarkaður, að sögn Hrundar, og lyfjaframleiðendur flokka landið í „minnsta forgang“, að hennar sögn. „Er í ljósi þessa eðlilegt að kalla hér eftir lægsta lyfjaverði á Norðurlöndum?“ spyr Hrund. „Við höfum eins og önnur íslensk fyrirtæki þurft að fylgja launaþró- un í landinu, og erum með mjög vel menntað fólk. Við höfum enga möguleika á að velta kostnaðar- hækkunum út í verðlagið, enda ráðum við ekki verðinu, heldur ríkið,“ útskýrir Hrund. Annað sem geri hlutina enn verri er að lyfja- verðið er háð gengi erlendra gjaldmiðla og breyt- ist mánaðarlega samkvæmt því. „Þannig að und- anfarið, þegar krónan hefur verið í einhverju sínu sterkasta gildi, höfum við þurft að selja jafnmikið eða meira fyrir lægra verð án þess að nein leið- rétting komi til.“ Hrund segir að reyndar sé sumt í umhverfinu ekki ákvarðað í krónutölu eða slíku heldur sé ákveðin umbun gefin fyrir ákveðin verk. „Sem dæmi um þau viðmið sem við vinnum eftir eru þau sem lögð voru til grundvallar í breytingu lyfjalaga árið 2004. Við höfum ekki fengið hið opinbera til að endurskoða það þrátt fyrir ítrek- aðar umleitanir þar um. Mér þætti gaman að sjá ef ríkisrekstur væri rekinn með sömu krónutölu og árið 2004.“ Apótekum tókst að hækka álagningu Hrund segir að apótekunum hafi hins vegar tekist það sem lyfjaheildsölum hafi ekki tekist – að fá að hækka álagningu á smásöluverði lyfja eftir ákveðnum reglum sem taka sanngjarnt mið af íslenskri launa- og verðlagsþróun. „Við erum orðin langþreytt á ástandinu.“ Hún segir að sér finnist ósanngjarnt þegar lyfjaheildsalar eru gagnrýndir fyrir að koma ekki lyfjum á markað hér á landi til jafns við saman- burðarlönd. „Hljóð og mynd þurfa að fara saman. Þegar þú setur svona ofboðslegan þrýsting á verð á örmarkaði eru stóru lyfjafyrirtækin ekkert að stökkva til og skrá hérlendis lyf. Þróun nýs lyfs kostar í dag um 140 milljarða króna. Þegar dreif- ing og markaðssetning á alþjóðamarkað bætist við er sú tala komin upp í 290 milljarða. Lyfjaverð þarf því ekki bara að standa undir beinum fram- leiðslukostnaði heldur líka þessum mikla rann- sóknar- og þróunarkostnaði. Í raun má segja að það að koma ákveðnum lyfjum hér á markað fyrir þessa aðila sé eins konar þróunaraðstoð. Hér búa 350 þúsund manns og kannski 10 sjúklingar sem Markaðssetning sumra lyf Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sú staðreynd að meirihluti allra lyfjabirgða Íslendinga er geymdur í vöruhúsi í miðbæ Garðabæjar er líklega ekki á allra vitorði en er engu að síður sannleikur. Birgðirnar eru geymdar í húsakynnum lyfjadreif- ingarfyrirtækisins Distica, dótturfyrirtæki Veritas, sem Hrund Rudolfsdóttir veitir forstöðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.