Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 11

Morgunblaðið - 13.12.2018, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 11FRÉTTIR Ert þú að spila í myrkri? Borgartúni 20 105 Reykjavík sími 585 9000 www.vso.isV E R K F RÆÐ I S T O F A Af síðum Það góða við notendur Slack er að þeir eiga það til að eiga ágætis vel- gengni að fagna á vinnumarkaði. Helsti keppinautur Slack, vinnustaða- spjallforritið Microsoft Teams, er með meiri útbreiðslu, en í notendahópi Slack virðist hægt að finna meira af forriturum, tæknifyrirtækjum og fjölmiðlasamsteypum sem hafa gaman af að hreykja sér af þeim tólum og tækjum sem þau nota. Þetta kann að skýra bæði hversu áberandi Slack er orðið og hve hátt fyrirtækið er verðmetið. Boðar þetta tvennt gott fyr- ir þá hrinu frumútboða sem von er á á næsta ári. Það er skiljanlegt að sumir hafi brugðist við með „hissa“-brosköllum þegar Slack var metið á 7,1 milljarð dala í síðustu fjármögnunarlotu enda er það á við 36-faldar tekjur fyrirtækisins. En fastar tekjur félagsins vaxa hratt, og tvöfaldast á milli ára. Þegar kemur að því að Slack reyni að fá kauphallarfjárfesta á sitt band má reikna með að tekjumargfeldið verði komið niður í 18 eða jafnvel enn lægra en það. Verðmiðinn virðist samt nokkuð hár, í ljósi samkeppninnar. Það væru ýkjur að segja að Slack sé að „gera út af við tölvupóst“ – spjallforrit á vinnustöðum eru notuð samhliða tölvupósti, en koma ekki í staðinn fyrir hann. Og þó svo að Slack kunni að hafa laðað til sín 8 milljónir notenda frá því forritið fór í loftið árið 2014 þá borga aðeins 3 milljónir þeirra áskriftargjald fyrir þjónustuna. Jafnvel þó að notendurnir verði orðnir meira en 10 milljónir talsins á næsta ári þá verður Slack bara búið að ná til lítils brots af þeim hundruðum milljóna vinnandi fólks sem situr fyrir framan tölvuskjá alla daga og langar að eiga í betri samskiptum við koll- ega sína. Af þessum hundruðum skrifstofumanna er líklegt að meirihlutinn temji sér að nota Microsoft Teams frekar en Slack. Teams er kannski ekki jafn „kúl“ en er ókeypis fyrir þá sem þegar nota Office 365 pakkann. Slack getur ekki boðið neitt sem jafnast á við hugbúnaðarpakka Micro- soft, á borð við t.d. Excel og Skype, og fyrirtæki sem eru þegar í áskrift að Office 365 hafa litla ástæðu til að borga í ofanálag fyrir áskrift að Slack. Markaðsgreiningarfyrirtækið Spice Works spáir því að árið 2020 verði meira en 40% allra fyrirtækja í Bandaríkjunum, Mið-Austur- löndum, Afríku og Evrópu farin að nota Microsoft Teams en minna en 20% muni nota Slack. Er best að segja sem minnst um Workplace frá Facebook sem er spáð aðeins 1% markaðshlutdeild. Ef Slack vill hella sér í slaginn um stærri markaðshlutdeild þá þýðir það mikil útgjöld vegna auglýsingakaupa og afsláttartilboða. Það myndi valda því að rekstrarkostnaðurinn hækkaði svo að ganga þyrfti á það sem enn er eftir af þeim 1,3 milljörðum sem fjárfestar hafa lagt í fyrirtækið. Slack stendur því frammi fyrir erfiðu vali: að ráðast í mikil útgjöld til að reyna að vaxa hraðar, eða draga saman seglin, fara sparlega með pen- ingana og reyna að sýna fram á að fyrirtækið geti byggt upp arðbærðan rekstur og þá gert það hraðar en ella. Við getum reiknað með að fyrri kosturinn verði ofan á. LEX Slack og Microsoft: markaðsspjall Fjögur stærstu endurskoðunar- fyrirtæki Bretlands hafa upplýst að tugum háttsettra starfsmanna hafi verið vikið frá störfum vegna ósæmilegrar hegðunar á borð við einelti og kynferðislega áreitni. EY greindi frá því á fimmtudag að á undanförnum fjórum árum hefðu fimm meðeigendur verið látnir taka pokann sinn vegna „hegðunar sem ekki er í samræmi við siðareglur okkar, s.s. að áreita kynferðislega eða níðast á koll- egum sínum“. PwC, sem hefur á að skipa 915 meðeigendum í Bretlandi, kveðst hafa rekið fimm á síðastliðnum þremur árum. KPMG segir að á undanförnum fjórum árum hafi sjö af 635 með- eigendum í Bretlandi sagt skilið við fyrirtækið vegna óviðeigandi hegðunar, s.s. kynferðislegrar áreitni og eineltis. Þeim sem til þekkja í geiranum þykir ánægjuefni að félögin auki með þessum hætti gagnsæi í mála- flokknum, nú þegar misbeiting valds og kynferðisleg áreitni eru undir smásjánni. Deloitte reið á vaðið Endurskoðunarstofurnar upp- lýstu um brottrekstrana eftir að David Sproul, forstjóri Deloitte, tjáði Financial Times að á undan- förnum fjórum árum hefði fyrir- tæki hans rekið 20 meðeigendur vegna ósæmilegrar hegðunar. Hin endurskoðunarfyrirtækin vildu í fyrstu ekki veita upplýs- ingar um brottrekstur meðeigenda en hafa greint frá sínum tölum eftir að ummæli Sproul voru birt. Justine Campbell, yfirmaður mannauðsmála hjá EY – sem er með samtals 681 meðeiganda Bretlandi – sagði: „Ásakanir um ósæmilega hegðun eru alltaf tekn- ar mjög alvarlega og rannsakaðar í þaula. Gripið er til agaaðgerða, þar á meðal brottreksturs, eins og við á í hverju tilviki fyrir sig.“ Í tilkynningu frá PwC sagði: „Við leggjum okkur fram um að skapa vinnustað þar sem fjöl- breytni, jafnræði og sanngirni ráða för, og leyfum ekki áreitni eða einelti að líðast. Ef fólk hegð- ar sér ekki í samræmi við þær kröfur sem við gerum þá tökum við það mjög alvarlega og bregð- umst við með viðeigandi hætti.“ Grant Thornton, fimmta stærsta endurskoðunarfyrirtæki Bretlands mælt í tekjum, segir að á undan- förnum fjórum árum hafi félagið ekki þurft að reka neinn meðeig- anda „vegna áreitni eða eineltis af nokkru tagi“. BDO, sjötta stærsta endurskoð- unarstofan, kveðst á undanförnum fjórum árum hafa beðið einn með- eiganda um að taka sér frí frá störfum fyrir að hafa brotið gegn „gildum fyrirtækisins og þeim siðareglum sem meðeigendur þurfa að fylgja“. Má ekki fara leynt Í bloggfærslu sem hann birti á LinkedIn á mánudag sagði Sproul að hann hefði viljað hafa allt uppi á borðum um hvernig fyrirtæki hans tekur á vandamálum á borð við áreitni, „svo að ekki fari milli mála vilji okkar til að skapa uppbyggilega menningu á vinnu- staðnum“. Bætti hann jafnframt við: „Vita- skuld hefði léttari leiðin verið að gera sem minnst úr ósæmilegri hegðun starfsmanna og fást við þessi mál í kyrrþey. En ég tel brýnt að ganga hreint til verks og gera það með sýnilegum hætti – og þar á meðal að víkja úr starfi almennum starfsmönnm og með- eigendum ef þeir gerast uppvísir að hegðun sem gengur þvert á það sem við ætlumst til hjá Deloitte.“ „Til skemmri tíma litið þýðir þetta að taka þarf erfiðar ákvarð- anir og eiga erfið samtöl, en ef á að takast að gera gagnkvæma virðingu og sanngirni að ófrávíkjanlegum þáttum í menn- ingu fyrirtækisins þá þurfa stjórn- endurnir að bregðast við með við- eigandi hætti, láta verkin tala þegar þess er þörf og segja hlut- ina tæpitungulaust – og koma því skýrt til skila hvaða máli vinnu- staðamenningin skiptir og hvaða gildi hún hefur fyrir starfsfólkið.“ „Það er ekki líklegt til árangurs að ætla að innleiða góða vinnu- staðamenningu með gátlistunum einum saman – það þarf að efla starfsmennina í því að gera það sem er rétt, og tryggja að þau viti að við munum bregðast rétt við.“ Endurskoðendur reknir fyrir ósæmilega hegðun Eftir Madison Marriage Stóru endurskoðunar- skrifstofurnar í Bretlandi hafa á síðustu árum gripið til aðgerða og losað sig við stjórnendur sem uppvísir hafa orðið að ósæmilegri hegðun á borð við einelti og kynferðislega áreitni. Nú hafa þau einnig gefið upp hversu margir dólgar hafa verið látnir fjúka. AFP David Sproul, forstjóri Deloitte í Bretlandi, reið á vaðið og gaf upp hversu margir hefðu verið látnir fara frá fyrirtækinu. Fleiri fyrirtæki fylgdu í kjölfarið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.