Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 14
Atvinnueign kynnir til sölu: Gott 1.029,8
fermetra skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði á
frábærum stað að Fossaleyni 16 í Grafar-
vogi. Um er að ræða allan framhluta húss-
ins. Rýmin sem um ræðir eru um 300 fm
iðnaðar-/lagerrými með allt að 6 metra
lofthæð og um 700 fm skrifstofurými á
tveimur hæðum. Húsnæðið býður upp
á mikla möguleika þar sem auðvelt er að
endurskipuleggja rýmin. Húsið lítur mjög
vel út að utan, stórt malbikað bílaplan er
við húsið með nóg af bílastæðum. Leigu-
samningar við traustan leigutaka eru í
gildi í megninu af húsinu en um 350 fm
rými er laust til leigu frá áramótum, þar af
um 200 fm iðnaðarrými.
Allar frekari upplýsingar um eignina
veitir Jón Óskar Karlsson, löggiltur
fasteignasali, í síma 693 9258 eða á net-
fangið jonoskar@atvinnueign.is
Síðumúli 13
108 Reykjavík
S. 577 5500
atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
FJÁRFESTINGAKOSTUR FOSSALEYNIR 16
Jón Óskar Karlsson
Löggiltur fasteignasali
693 9258
jonoskar@atvinnueign.is
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018FÓLK
SPROTAR
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan ViðskiptaMogginn sagði fyrst
frá hugbúnaðarsprotanum FlowVR
árið 2016. Í dag framleiðir FlowVR
hugleiðslu-hugbúnað fyrir sýndar-
veruleika sem leiðir notandann í
gegnum stuttar en öflugar hug-
leiðsluæfingar. Tilraunir á notagildi
hugbúnaðarins benda til þess að
FlowVR geti verið mikið þarfaþing á
vinnustöðum og hjálpað starfsfólki
að glíma betur við álag og áreiti.
Á dögunum varð FlowVR hlut-
skarpast í nýsköpunarsamkeppninni
Gullegginu með nýrri viðbót við hug-
búnaðinn: „Við höfum orðið vör við
að notendur vilja ekki bara fá að
hugleiða, heldur vilja líka sjá hvaða
áhrif hugleiðslan hefur og langar að
mæla árangurinn,“ segir Þóra Björk
Elvarsdóttir, fjármálastjóri fyrir-
tækisins. „Þess vegna er næsta
skref hjá okkur að tengja saman
sýndarveruleikann, snjallsímann og
tæki sem t.d. mæla hjartslátt og
öndun, svo að notendur sjái svart á
hvítu hverju hugleiðslan breytir fyr-
ir líkamann.“
Einangrar frá umhverfinu
Að hugleiða með FlowVR er
merkileg upplifun. Sýndarveruleik-
inn færir notandann yfir í óspillta ís-
lenska náttúru og þýð rödd hjálpar
honum að hreinsa hugann við óminn
af íslenskri tónlist úr smiðju hljóm-
sveita á borð við Sigur Rós. Forritið
býður upp á sex mismunandi æfing-
ar sem einblína t.d. á slökun, einbeit-
ingu eða öndun, og tekur hver æfing
fjórar mínútur.
Sumum lesendum gæti þótt það
skrítið að hægt sé að stunda hug-
leiðslu á aðeins fjórum mínútum og
hafa margir þá mynd í huganum að
til að hugleiða almennilega verði að
sitja í lótusstellingu á jógamottu svo
tímunum skiptir. Þóra segir sýnd-
arveruleikatæknina breyta þessu.
„Við getum blekkt bæði heyrn og
sjón og einangrum notandann alveg
frá umhverfi sínu. Hann er laus við
allt það sem gæti truflað eða dreift
huganum og útkoman er sú að á að-
eins fjórum mínútum er hægt að ná
jafn djúpri hugleiðslu og margir ná á
klukkustund.“
Ekki þarf að fjölyrða um þann
fjölbreytta ávinning sem felst í hug-
leiðslu. Þeir sem á annað borð kom-
ast upp á lagið með að hugleiða geta
varla án þess verið, og finnst hug-
leiðslan bæði bæta heilsu og líðan.
„Við gerðum nýlega tilraun með ís-
lenska fjártæknifyrirtækinu Meniga
þar sem starfsmönnum stóð til boða
að stunda hugleiðsluæfingar með
FlowVR. Vakti athygli að ávinning-
urinn kom ekki fram um leið, en eftir
tveggja vikna notkun fóru þátttak-
endur að greina frá greinilegum já-
kvæðum áhrifum. Okkar nálgun
þýðir að önnum kafið fólk getur not-
ið gagnlegra áhrifa hugleiðslu án
þess að þurfa að taka frá mikið
lengri tíma en það tekur að sækja
nýjan bolla af kaffi.“
Beðið eftir byltingu
Þó að FlowVR hafi fengið góðar
viðtökur þá hefur sett strik í reikn-
inginn að sýndarveruleikatæknin
hefur ekki náð þeirri útbreiðslu sem
vonast var til. Hafði því verið spáð
að sýndarveruleikahjálmar yrðu
bráðum jafn algengir á heimilum og
sjónvarpstæki en byltingin hefur
látið á sér standa. Þóra segir fram-
leiðendur samt ekki skorta metnað
og hefur Facebook, sem á sínum
tíma keypti Oculus, eitt af leiðandi
merkjunum í sýndarveruleikatækni,
lýst því yfir að 100 milljón sýnd-
arveruleikahjálmar verði komnir í
hendur neytenda árið 2024. Ef þær
áætlanir ganga eftir mun FlowVR
hafa mikla sérstöðu á risastórum
markaði því aðeins tvö önnur sýnd-
arveruleika-hugleiðsluforrit hafa
náð einhverri útbreiðslu.
„Þeirra áhersla er á tannlækna-
stofur en við höfum hins vegar auga-
stað á fyrirtækjum og stofnunum og
lítum á Flow VR sem gott verkfæri
til að hlúa að vellíðan starfsmanna,“
útskýrir Þóra en nú þegar á FlowVR
í samvinnu við sænskt ráðgjafarfyr-
irtæki og er unnið að því að kynna
fyrirtækjum á Norðurlöndum þá
möguleika sem felast í hugleiðslu í
sýndarveruleika.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þóra Björk Elvarsdóttir (f.m.) ásamt Tristan Gribbin og Stefáni Árna hjá
FlowVR. Fjórar mínútur af hugleiðslu í sýndarveruleika hafa mikil áhrif.
Sýndarveruleiki
eflir hugleiðsluna
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Tilraunir benda til að hug-
leiðsla í sýndarveruleika
geti haft góð áhrif á starfs-
fólk. FlowVR er m.a. byrjað
að þreifa fyrir sér á Norður-
landamarkaði