Morgunblaðið - 13.12.2018, Page 15

Morgunblaðið - 13.12.2018, Page 15
Opnunarhóf viðskiptahraðalsins Til sjávar og sveita var haldið í gær á veitingastað IKEA en Til sjávar og sveita er fyrsti viðskiptahraðallinn sem einblínir á nýjar lausnir og verðmætasköpun í land- búnaði og sjávarútvegi á Íslandi. Meðal þeirra sem tóku þar til máls var Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Opnunarhóf Til sjávar og sveita haldið í IKEA Mikill áhugi er á frumkvöðlastarfsemi í landbúnaði og sjávarútvegi. Margt var um manninn í Ikea í gær. Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans, fylgdi verkefninu úr hlaði. Hraðallinn er ætlaður til að aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja í fremsta flokki sjávarútvegs og landbúnaðar. Kristján Þór Júlíusson, land- búnaðar- og sjávarútvegs- ráðherra, sagði nokkur orð. Morgunblaðið/Eggert Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri Ikea, tók til máls á fundinum. Til sjávar og sveita hefst í mars 2019. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2018 15FÓLK KYNNINGARFUNDUR Harpa Elín Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Hörpu. Í tilkynn- ingu segir að Elín hafi lokið grunn- námi í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001, MBA-námi frá Viðskiptaháskól- anum í Kaupmannahöfn 2006 og stundað meistaranám í mannauðs- stjórnun í Háskóla Íslands 2009- 2011. Síðustu 12 ár hefur Elín starf- að hjá Opnum kerfum í marg- víslegum hlutverkum, síðast sem framkvæmdastjóri vöru- og hug- búnaðarsviðs samhliða starfi mannauðsstjóra. Þar áður starfaði hún hjá Intrum Justitia og rak eigin sportvöruverslun. Ráðin mannauðsstjóri Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.