Morgunblaðið - 13.12.2018, Qupperneq 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Forstjóra Matís sagt upp störfum
Þurfa að millilenda á leiðinni vestur
Vilja semja eins fljótt og auðið er
Lengsta áætlunarflug íslenskrar .........
Óljóst hvort Skúli verði .........................
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Soffía Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri nýstofnaðs leigu-
félags Íbúðalánasjóðs, Leigu-
félagsins Bríetar ehf., segist í
skriflegu svari við fyrirspurn Við-
skiptaMoggans reikna með að um
270 íbúðir í eigu sjóðsins muni
flytjast til félagsins. Mun Bríet yf-
irtaka eignarhald og rekstur á
fasteignum ÍLS um land allt, en
sjóðurinn á um 300 eignir í dag og
af þeim eru 200 í leigu nú þegar.
Tilgangur Leigufélagsins Bríet-
ar ehf. er langtímaleiga íbúðar-
húsnæðis á landsbyggðinni og seg-
ir Soffía að félagið muni leita
samstarfs við sveitarfélög í þeim
tilgangi. Útfærsla þess samstarfs
sé þó enn í undirbúningi.
Spurð að því hvort aðrar eignir
sem ÍLS kunni að leysa til sín í
framtíðinni muni renna inn í
Bríeti, segir Soffía að ekki hafi
verið tekin ákvörðun um það
ennþá.
Að sögn Soffíu er ástæða þess
að stofnað er sérstakt leigufélag
sú að sjóðnum er gert að leigja
þær eignir sem hann á í dag. „Við
teljum það henta betur að setja
eignirnar í sér félag til að ná utan
um þetta ábyrgðarmikla verkefni.“
En kom aldrei til álita að selja
öðrum íbúðaleigufélögum eign-
irnar, félögum eins og Heimavöll-
um eða Félagsstofnun stúdenta?
„Það var ekki skoðað á þessum
tíma enda eru flestar þessara
eigna á landsbyggðinni og falla
ekki að þeim viðmiðum sem þau
félög hafa vegna stærðar, stað-
setningar eða annarra þátta.“
Spurð að því hvort Bríet muni
bæta við sig eignum á frjálsum
markaði í framtíðinni, segir Soffía
að ekki sé hægt að svara því að
sinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilgangur Leigufélagsins Bríetar ehf. er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis á
landsbyggðinni. Leitað verður eftir samstarfi við sveitarfélögin.
Bríet eignast
270 ÍLS-íbúðir
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Leigufélagið Bríet mun
taka yfir eignarhald og
rekstur á fasteignum
Íbúðalánasjóðs.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hart er nú deilt um bágan fjár-hag Íslandspósts og því miður
virðist þar birtast hversu eitrað
ástand getur myndast þegar ríkis-
fyrirtæki blanda sér í samkeppnis-
rekstur. Úr þeirri stöðu þarf að
greiða og heppilegast væri ef eðlileg
skref yrðu stigin í þá átt að afnema
að fullu þann einkarétt sem fyrir-
tækið hefur á sínum herðum í
tengslum við bréfsendingar.
Eitt af því sem fram hefur komið íumræðu um stöðu Póstsins er
það gríðarmikla magn bögglasend-
inga sem nú berast til landsins að ut-
an. Það á ekki síst við um sendingar
frá Kína. Forsvarsmenn Póstsins
segja þessa holskeflu valda stórum
hluta þess taps sem fyrirtækið
burðast nú með. Það kemur til af
þeirri staðreynd að samkvæmt
samningum Alþjóðapóstsambands-
ins ber samningsríkjum að greiða
niður sendingar sem berast frá þró-
unarríkjum. Kína fellur í þann flokk
þótt um annað mesta efnahagsveldi
jarðarkringlunnar sé að ræða.
Nýlega hótaði Donald Trump þvíað segja upp þessum óláns-
samningi og vísaði til þess að það
væri andstætt bandarískum hags-
munum að viðhalda niðurgreiðslu-
kerfi á sendingum frá Kína. Enn
hefur ekkert orðið af því hjá Trump
en eftir hverju er að bíða hjá ráða-
mönnum hér á landi? Þeir ættu að
taka á sig rögg og segja upp þessum
samningi. Liggur það ekki í augum
uppi?
Verum nú
fyrri tilFlestir gera sér grein fyrir mikil-vægi varaflugvalla. Enginn vill
vera um borð í flugvél sem ekki get-
ur lent. Ef ein leið lokast fyrir flugvél
til lendingar, verður önnur að vera
fær, að öðrum kosti er mikil vá fyrir
dyrum. Bent hefur verið á mikilvægi
þess að tryggja uppbyggingu vara-
flugvalla fyrir Keflavíkurflugvöll,
einkum í Reykjavík, á Akureyri og
Egilsstöðum. Flugbrautirnar sem
slíkar eru brúklegar en flughlöðin
sem notast þarf við, ef margar vélar
þurfa að nýta vellina á tilteknum
tíma, eru afar takmarkandi þáttur.
Það virðist stjórnvöldum erfittað ráða úr þessu en víst er að
enginn vill bera ábyrgð á ástandi
þar sem vél ætti ekki í neina „höfn“
að venda. Ólíkt skipum geta flug-
vélar ekki lónað lengi úti fyrir sín-
um höfnum. Á sama tíma og lítið
fjármagn fæst til að byggja upp
varaflugvellina heldur gríðarleg
fjárfesting áfram á Keflavík-
urflugvelli og mun hún að öllu
óbreyttu slaga í 200 milljarða á
næstu árum. Innherji hefur áður
bent á að þessari fjárfestingu
fylgir áhætta, enda byggist upp-
byggingin á spálíkönum um fjölg-
un ferðamanna á komandi áratug-
um. Það er ekki til hugarhægðar að
spálíkan það hefur nær aldrei spáð
rétt um framtíðina, ekki einu sinni
þá sem þó er rétt handan við horn-
ið.
Og nú hefur forstjóri Skipulags-stofnunar stigið fram og rætt
hina miklu uppbyggingu á Miðnes-
heiði. Í forvitnilegu viðtali á sjón-
varpsstöðinni Hringbraut segir for-
stjórinn að stækkun flugstöðvar-
innar sé í raun á „sjálfstýringu“.
Gagnrýnir hún að uppbyggingin sé á
hendi opinbers hlutafélags en sé ekki
beint á hendi stjórnvalda, þótt hún
varði landið allt. Bendir hún á þau
furðulegheit að þessi gríðarlega fjár-
festing sé ekki hluti af samgöngu-
áætlun! Bendir hún á að í núverandi
áætlun sé „hógværa og litla umfjöll-
un um Keflavíkurflugvöll“ að finna.
Það skýtur skökku við og þarnamættu dugandi stjórnmála-
menn, sem bera ábyrgð á fjármálum
hins opinbera, stíga inn í og tryggja
að varlega verði stigið til jarðar.
Verði fjöldi þeirra sem fara um
Keflavíkurflugvöll árið 2040 ekki 24
milljónir, gæti þessi framkvæmda-
gleði snúist upp í allt aðra og miður
gleðilega stöðu. Þeir sem borga
myndu brúsann í þeim aðstæðum
eru allt aðrir en þeir sem núna stofna
til hinna gríðarmiklu skuldbindinga,
án skýrs umboðs frá almenningi eða
fullnægjandi umræðu um fjárfest-
inguna.
Sjálfstýring á jörðu niðri
KPMG og Deloitte í
Bretlandi hafa losað
sig við 27 meðeig-
endur vegna óviðeig-
andi hegðunar þeirra
Losa sig við
meðeigendur
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ