Morgunblaðið - 08.12.2018, Qupperneq 1
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég get því miður ekkert tjáð mig
um framtíð mína á þessu stigi máls-
ins,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson,
landsliðsmaður í handknattleik og
leikmaður þýsku bikarmeistaranna
Rhein-Neckar Löwen, við Morgun-
blaðið í gær þegar leitað var eftir
viðbrögðum hans við óstaðfestum
fregnum franska dagblaðsins Le
Parisien í fyrradag þess efnis að
Guðjón gengi til liðs við franska
meistaraliðið PSG í sumar.
„Ég get þó sagt þér að engin
ákvörðun hefur verið tekin af fjöl-
skyldunni og ég hef ekki skrifað
undir neina samninga,“ sagði Guðjón
Valur ennfremur við fyrirspurn
Morgublaðsins. Samningur hans við
Rhein-Neckar Löwen rennur út um
mitt næsta ár. Guðjón Valur kom til
RNL sumarið 2016 eftir tveggja ára
veru hjá Barcelona. Áður hafði hann
leikið með THW Kiel, RNL, Gum-
mersbach og Tusem Essen í Þýska-
landi auk AG Köbenhavn og íslensku
liðanna KA og Gróttu/KR. Atvinnu-
mannsferill Guðjóns Vals í Evrópu
spannar tæp 18 ár og sér svo sann-
arlega ekki fyrir endann á honum.
Vangaveltur hafa verið uppi um
skeið að núverandi aðal vinstri
hornamaður PSG, Þjóðverjinn Uwe
Gensheimer, yfirgefi liðið næsta
sumar og haldi á ný heim til Þýska-
lands. Guðjón Valur mun þar með
leysa Gensheimer af hjá PSG líkt og
hann gerði hjá RNL sumarið 2016
þegar Gensheimer flutti til Parísar.
„Að sjálfsögðu höfum við áhuga á
að fá Gensheimer til liðs við okkur á
nýjan leik. Þess vegna höfum við
rætt við hann,“ sagði Jennifer Kette-
mann, framkvæmdastjóri RNL, í
samtali við Mannheimer Morgen á
dögunum. „Það er hinsvegar ljóst að
ef af komu hans verður þurfum við
að fá öflugan styrktaraðila í lið með
okkur,“ sagði Kettermann.
Gensheimer lék með RNL frá
2003 til 2016. Hann er 32 ára gamall,
sjö árum yngri en Guðjón Valur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
París? Verður franska höfuðborgin
næsti áfangastaður Guðjóns Vals.
Hef ekki skrifað undir neitt
Guðjón Valur kveðst enga ákvörðun hafa tekið um framtíðina
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Stjarnan hefur verið á meðal efstu liða
á Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu
um árabil eða frá því uppgangur liðs-
ins hófst á ný fyrir um áratug. Eins og
fram hefur komið í blaðinu að undan-
förnu verða geysilega miklar breyt-
ingar á liði Stjörnunnar á milli ára af
ýmsum ástæðum. Leikmenn hafa
skipt um lið innanlands og farið utan
auk þess sem meiðsli og barneignir
setja svip sinn á leikmannahópinn.
Nýr þjálfari liðsins, Kristján Guð-
mundsson, fær nú það verkefni að
vinna úr stöðunni og móta svo að
segja nýtt lið. Morgunblaðið tók púls-
inn á Kristjáni og leitaði viðbragða
hans við fréttum síðustu vikna. „Já,
þetta eru óvenjumikið, það er rétt. Við
getum orðað það þannig að verkefnið í
dag er ekki sama verkefnið og þegar
ég samdi fyrir tveimur mánuðum,“
sagði Kristján en hann segir Garðbæ-
inga vera að vinna í leikmannamálum
um þessar mundir.
„Það skiptir höfuðmáli að búa til lið
sem vinnur saman. Við erum að fín-
pússa og komin töluvert langt í þeirri
vinnu. Við munum sækja leikmenn er-
lendis en það verða ekki fleiri en tveir
til þrír. Við munum ekki hrúga inn er-
lendum leikmönnum. Við höfum feng-
ið nokkra íslenska leikmenn til að
þétta hópinn. Við fylgjumst með ís-
lenska markaðnum ef einhver hreyf-
ing verður þar en annars munum við
færa leikmenn úr 3. og 2. flokki upp í
meistaraflokk. Núna eru ansi margir
leikmenn úr 2. og 3. flokki að æfa með
okkur og það eru fínar stelpur. Við
munum reyna að stilla upp sterku
liði,“ segir Kristján.
Átta leikmenn hafa yfirgefið
Stjörnuna og lykilmenn í sumum til-
fellum. Fimm eru komnar í staðinn.
Þá er ein hætt, ein ófrísk og tvær með
slitið krossband. Þær Harpa Þor-
steinsdóttir og Telma Hjaltalín Þrast-
ardóttir slitu krossband og Katrín Ás-
björnsdóttir á von á barni. Kristján
segist ekki geta reiknað með því að
nota þessa leikmenn næsta sumar en
heldur í vonina að þær geti nýst liðinu.
„Telma hefur slitið þrívegis í sama
hné og ákveðið var að gera ekki að-
gerð heldur þjálfa hnéð og prófa
spelku í byrjun næsta árs og sjá
hvernig það gengur. Harpa fór hins
vegar í aðgerð og við vitum ekki alveg
hvenær hún verður leikfær. Það gæti
mögulega orðið seinni hluta sumars.
Þetta er ákveðin tilraun varðandi
Telmu og vonandi gengur það upp.
Erfitt er fyrir mig að reikna með þeim
en ég vonast eftir því að geta nýtt
þær. Katrín verður væntanlega ekk-
ert með næsta sumar þar sem hún er
að eignast barn.
Munum reyna að
stilla upp sterku liði
Stefnt að því að sækja tvo til þrjá erlenda leikmenn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ófrísk Katrín Ásbjörnsdóttir missir líklega af næsta keppnistímabili.
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
ÍÞRÓTTIR
HM í handbolta Guðmundur Þ. Guðmundsson tilkynnir 28 manna hóp á næstu dögum. Mánuður
í fyrsta leik á mánudag. Guðjón er á leið á sitt 22. stórmót. Hvaða markverðir verða í hópnum? 2-3
Íþróttir
mbl.is
Áhugaverðar fréttir voru fluttar á vefmiðl-
inum Kooora.com í gær um að Heimir Hall-
grímsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari
karla í knattspyrnu, kæmi til greina sem
næsti þjálfari Al Arabi sem leikur í efstu
deild í Katar. Þar var fullyrt að Heimir væri
nú í Katar að kanna aðstæður hjá félaginu.
Vefmiðillinn Fótbolti.net segist hafa
heimildir fyrir því að Heimir hafi farið utan
á dögunum til viðræðna við erlent knatt-
spyrnufélag en þar kemur ekki fram um
hvaða land kunni að vera að ræða.
Hlé verður gert á deildakeppninni í Katar frá og með 15.
desember og er Al Arabi í 7. sæti af 12 liðum. Liðið á sér þó
glæsilega sögu um mun hafa orðið meistari sjö sinnum, síðast
1997, samkvæmt Wikipedia. sport@mbl.is
Heimir sagður skoða
aðstæður í Katar
Heimir
Hallgrímsson
Róbert Ísak Jónsson er búinn að landa
tveimur sigrum á Norðurlandamótinu í
sundi fatlaðra sem fram fer í Oulu í Finn-
landi þessa dagana.
Róbert Ísak, sem keppir fyrir Fjörð í
flokki S14, er einn sex íslenskra keppenda
á mótinu. Hann varð Norðurlandameistari í
200 metra skriðsundi á tímanum 2:00,60
mínútum, eða tæpum tveimur sekúndum á
undan næsta keppanda. Hann bætti svo við
öðrum titli með því að vinna 100 metra
bringusund á 1:10,44. Guðfinnur Karlsson
varð í 6. sæti í þeirri grein á 1:26,58.
Þórey Ísafold Magnúsdóttir vann silfurverðlaun í 100 metra
bringusundi á 1:26,22 mínútu. Thelma Björg Björnsdóttir
varð þar í 4. sæti á 1:56,58. sport@mbl.is
Róbert Ísak sigursæll
á NM í Finnlandi
Róbert Ísak
Jónsson
Seltirningurinn Viggó Kristjánsson var
markahæstur og skoraði sigurmarkið þeg-
ar West Wien vann 27:26-útisigur á HSG
Graz í austurrísku úrvalsdeildinni í hand-
bolta í gærkvöld.
Viggó skoraði sjö mörk í leiknum, þar af
síðasta markið þegar 45 sekúndur voru eft-
ir. Heimamönnum tókst ekki að nýta þann
tíma til að jafna. Ólafur Bjarki Ragnarsson
skoraði fjögur mörk fyrir West Wien og
Guðmundur Hólmar Helgason tvö, en
Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.
Ísak Rafnsson skoraði fjögur mörk fyrir Schwaz í 26:24-
útisigri á Bregenz í sömu deild.
West Wien er í 3. sæti deildarinnar með 18 stig, fimm stig-
um frá toppnum en Schwaz er í 6. sæti með 16 stig.
Viggó drjúgur í marka-
skorun í Austurríki
Viggó
Kristjánsson