Morgunblaðið - 08.12.2018, Síða 2
HM 2019
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Heimsmeistaramótið í handknattleik
karla fer fram í Danmörku og í
Þýskalandi í næsta mánuði. Flautað
verður til leiks í fyrstu leikjunum
fimmtudaginn 10. janúar í Berlín og
Kaupmannahöfn. Þjóðverjar mæta
Kóreubúum en Danir eiga við Síle-
menn. Daginn eftir mætir íslenska
landsliðið landsliði Króatíu í Ólympíu-
höllinni í München. Dagana á eftir
taka við hjá íslenska liðinu leikir við
Spánverja, Bareina, Japani og Make-
dóníumenn í riðlakeppninni sem lýkur
fimmtudagskvöldið 17. janúar. Eftir
það taka við annaðhvort leikir í milli-
riðlakeppni eða í forsetabikarnum þar
sem eigast við þrjú neðstu lið hvers
riðils keppninnar en leikið verður í
fjórum riðlum á fyrsta stigi mótsins.
Þrjú efstu lið hvers riðils fara í milli-
riðla sem teknir verða upp á nýjan
leik en á undangengnum þremur HM
hefur millriðlakeppninni verið sleppt
en þess í stað leikið í útsláttarkeppni.
Eftir helgina verður opinberaður
listi með nöfnum 28 leikmanna sem
hver landsliðsþjálfari hefur valið til
undirbúnings og þátttöku í mótinu. Af
þeim taka 16 leikmenn þátt í mótinu.
Leyfilegt er að skipta leikmönnum út
af 16 manna hópnum meðan á mótinu
stendur. Komi til þess má aðeins kalla
inn í staðinn leikmenn sem eru á 28
manna listanum sem tilkynntur er til
mótsstjórnar mánuði áður en mótið
hefst.
Á mánudaginn er mánuður þar til
flautað verður til leiks á HM.
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari karla í handknatt-
leik
feld
í 28
Hu
leik
me
ska
far
eða
ste
A
Þór
mö
ver
geg
ank
kal
M
son
Gís
V
Ste
V
Óla
ur
M
Gís
Þra
H
úss
H
ars
L
son
son
V
Fjó
E
við
leg
ver
anl
Ág
Fr
Hverjir
Guðmundur Þórður
þátt í sínu 22. stórmóti
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018
Þórir Hergeirsson og lærimeyjar
hans í norska landsliðinu eiga enn
von um að verja Evrópumeistaratitil
sinn í handbolta eftir risasigur á
Ungverjalandi í Frakklandi í gær-
kvöld, 38:25. Noregur náði þar með í
sín fyrstu tvö stig í milliriðli 2, og
jafnaði Ungverjaland að stigum.
Rúmenía, Holland og Þýskaland
eru efst í riðlinum með 4 stig hvert
en Rúmenía og Holland eiga leik til
góða og mætast á sunnudaginn. Að-
eins tvö efstu lið riðilsins komast í
undanúrslit og því ljóst að Noregur
þarf einnig að vinna Holland næsta
þriðjudag og Spán degi síðar til þess
að eiga von um að komast í undan-
úrslitin.
Norska liðið fór á kostum í gær
eins og lokatölurnar bera með sér en
liðið var sjö mörkum yfir í hálfleik,
19:12, og vann seinni hálfleikinn með
nánast sama mun. Heidi Löke skor-
aði sjö mörk úr sjö skotum og þær
Camilla Herrem og Stine Bredal
Oftedal komu næstar með sex mörk
hvor, en Gabriella Toth var marka-
hæst Ungverja með sex mörk.
Fyrr í gær höfðu Þjóðverjar betur
gegn Spánverjum 29:23 og þær
þýsku lifa í voninni að spila um verð-
laun.
Þórir á enn von
um verðlaun
AFP
Líflegur Þórir Hergeirsson á hliðarlínunni í leiknum í gær.
Norska liðið sýndi sparihliðarnar
Síðdegis í dag verður dregið í riðla fyrir lokakeppni heimsmeistaramóts kvenna
í knattspyrnu sem fer fram í Frakklandi dagana 7. júní til 7. júlí næsta sumar.
Styrkleikaflokkarnir fyrir dráttinn voru tilkynntir í gær, um leið og heimslisti
FIFA var birtur, og þar er athyglisverðast að Evrópumeistarar Hollands, sem
komust á HM í gegnum umspil, eru ekki í fyrsta styrkleikaflokki. Á HM 2019
leika 24 þjóðir sem verður skipt í sex riðla og ein þjóð verður dregin úr hverjum
styrkleikaflokki í hvern riðil. Flokkarnir eru þannig skipaðir, sæti á heimslist-
anum í sviga, en til samanburðar er Ísland er í 22. sæti á listanum:
1. flokkur: Bandaríkin (1), Þýskaland (2), Frakkland (3), England (4), Kanada
(5), Ástralía (6).
2. flokkur: Holland (7), Japan (8), Svíþjóð (9), Brasilía (10), Spánn (12), Nor-
egur (13).
3. flokkur: Norður-Kórea (11), Kína (15), Ítalía (16), Nýja-Sjáland (19), Skot-
land (20), Taíland (29).
4. flokkur: Argentína (36), Síle (38), Nígería (39), Kamerún (46), Suður-Afríka
(48), Jamaíka (53). vs@mbl.is
Dregið í HM-riðlana í dag
Gísli Eyjólfsson mun freista gæfunnar hjá sænska B-
deildarliðinu Mjällby á næsta tímabili en félagið greindi frá
því í gærkvöldi að Gísli væri búinn að skrifa undir samning
við félagið. Ekki er um kaup á leikmanninum að ræða held-
ur er hann lánaður frá Breiðabliki.
Hjá Mjällby hittir Gísli fyrir þjálfarann Milos Milojevic
sem þjálfaði hann hjá Breiðabliki en var einnig þjálfari Vík-
ings hér heima. Milos, sem er íslenskur ríkisborgari, tók við
Mjällby í C-deildinni og kom liðinu örugglega upp í B-deild
þar sem það leikur á næsta tímabili.
Gísli, sem er 24 ára gamall, átti mjög gott tímabil með
Breiðabliki í síðasta sumar og varð til að mynda efstur í M-
einkunnagjöf Morgunblaðsins. Hann skoraði sjö mörk í 22 leikjum í Pepsi-
deildinni á síðasta keppnistímabili.
Gísli hefur leikið með Breiðabliki stærstan hluta síns ferils en verið lánaður
þaðan til Augnabliks, Hauka og Víkings í Ólafsvík. sport@mbl.is
Gísli fer til Svíþjóðar
Gísli
Eyjólfsson
Holland
Fortuna Sittard – AZ Alkmaar.............. 0:3
Albert Guðmundsson sat á varamanna-
bekk AZ.
PSV Eindhoven – Excelsior ................... 6:0
Elías Már Ómarsson lék fyrstu 35 mín-
úturnar en Mikael Anderson var ekki í leik-
mannahópi Excelsior.
England
B-deild:
WBA – Aston Villa................................... 2:2
Birkir Bjarnason hjá Aston Villa er frá
keppni vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Norwich 20 12 4 4 35:22 40
Leeds 20 11 6 3 33:17 39
WBA 21 10 6 5 44:30 36
Middlesbro 20 9 8 3 22:13 35
Nottingham F. 20 8 10 2 32:21 34
Sheffield Utd 20 10 4 6 32:24 34
Derby 20 10 4 6 30:24 34
Aston Villa 21 8 8 5 41:32 32
Ítalía
Juventus – Inter Mílanó .......................... 1:0
Staða efstu liða:
Juventus 15 14 1 0 32:8 43
Napoli 14 10 2 2 28:14 32
Inter Mílanó 15 9 2 4 27:13 29
AC Milan 14 7 4 3 24:18 25
Spánn
Leganés – Getafe...................................... 1:1
Þýskaland
Werder Bremen – Düsseldorf................ 3:1
Aron Jóhannsson hjá Bremen er frá
keppni vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Dortmund 13 10 3 0 37:13 33
M’gladbach 13 8 2 3 30:16 26
RB Leipzig 13 7 4 2 24:10 25
Bayern Münch. 13 7 3 3 25:18 24
KNATTSPYRNA
EM kvenna í Frakklandi
Milliriðill 2:
Ungverjaland – Noregur.................... 25:38
Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs.
Spánn – Þýskaland............................... 23:29
Staðan:
Rúmenía 2 2 0 0 60:47 4
Holland 2 2 0 0 56:52 4
Þýskaland 3 2 0 1 86:84 4
Noregur 3 1 0 2 93:89 2
Ungverjaland 3 1 0 2 82:92 2
Spánn 3 0 0 3 76:89 0
Grill 66 deild karla
Þróttur – Víkingur ............................... 32:22
Haukar U – Fjölnir .............................. 23:27
Staðan:
Fjölnir 10 9 0 1 297:250 18
Valur U 10 7 1 2 302:240 15
Haukar U 10 7 0 3 261:241 14
HK 10 5 1 4 270:275 11
Þróttur 9 4 2 3 281:265 10
FH U 9 4 1 4 253:268 9
Víkingur 9 4 1 4 239:250 9
ÍR U 10 2 1 7 271:299 5
Stjarnan U 10 2 1 7 275:312 5
ÍBV U 9 0 0 9 237:286 0
Þýskaland
B-deild:
Hamburg – Lübeck-Schwartau......... 18:21
Aron Rafn Eðvarðsson varði 10 skot í
marki Hamburg.
Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði ekki
fyrir Lübeck-Schwartau.
Austurríki
HSG Graz – West Wien ....................... 26:27
Viggó Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir
West Wien, Ólafur Bjarki Ragnarsson 4 og
Guðmundur Hólmar Helgason 2. Hannes
Jón Jónsson þjálfar liðið.
Bregenz – Schwaz............................... 24:26
Ísak Rafnsson skoraði 4 mörk fyrir
Schwaz.
HANDBOLTI
1. deild karla
Fjölnir – Vestri ..................................... 98:93
Sindri – Hamar ................................... 98:104
Staðan:
Þór Ak. 9 8 1 872:731 16
Fjölnir 9 6 3 868:781 12
Höttur 8 6 2 719:643 12
Vestri 9 6 3 801:722 12
Hamar 9 6 3 879:834 12
Selfoss 9 3 6 759:766 6
Sindri 10 1 9 805:954 2
Snæfell 9 0 9 547:819 0
Þýskaland
Alba Berlín – Frankfurt ..................... 87:74
Martin Hermannsson hjá Alba er frá
keppni vegna meiðsla.
NBA-deildin
Boston – New York .......................... 128:100
Portland – Phoenix............................. 108:86
Utah – Houston .................................. 118:91
KÖRFUBOLTI Pernille Harder frá Danmörku, samherji Söru
Bjarkar Gunnarsdóttur hjá þýska meistaraliðinu
Wolfsburg, er besta knattspyrnukona heims 2018,
samkvæmt kosningu enska fjölmiðilsins The Gu-
ardian sem birti í gær lokaniðurstöðu sína í valinu á
þeim 100 bestu. Harder, sem er 26 ára gömul, varð
markadrottning þýsku 1. deildarinnar 2017-18 og
var í ágúst útnefnd besta knattspyrnukona Evrópu.
Hún hefur skorað 32 mörk í 42 mótsleikjum fyrir
Wolfsburg, og 53 mörk í 105 landsleikjum fyrir Dan-
mörku, þar sem hún er næstmarkahæst frá upphafi.
Sam Kerr frá Ástralíu, leikmaður Perth Glory í
heimalandi sínu, varð önnur og Ada Hegerberg frá
Noregi, leikmaður Lyon í Frakklandi, sem á dög-
unum fékk Gullboltann hjá France Football, hafnaði
í þriðja sæti. Sara Björk varð í 31. sæti eins og birt
var í fyrradag og hún er í sjötta sæti af leikmönnum
Wolfsburg. Þýska meistaraliðið á tíu leikmenn á 100
manna listanum en Lyon, sem vann Wolfsburg í úr-
slitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor, á hinsvegar
tíu leikmenn í fyrstu 30 sætunum og þrettán í 100
manna hópnum. vs@mbl.is
Pernille Harder
fremst allra 2018
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Pernille Harder lék með Wolfsburg gegn
Þór/KA á Þórsvellinum í Meistaradeildinni í haust.
Knattspyrnumaðurinn Björn Daníel Sverrisson hef-
ur ákveðið að snúa heima úr atvinnumennskunni og
ætlar að spila í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð.
Samningur Björns Daníels við danska úrvals-
deildarliðið AGF rennur út eftir tímabilið og hefur
hann ákveðið að koma heim eftir það.
„Ég veit af áhuga þriggja til fjögurra liða en ég
mun fara yfir stöðuna með umboðsmanni mínum í
byrjun janúar,“ sagði Björn Daníel við mbl.is í gær
en samkvæmt heimildum vilja FH-ingar fá Björn
aftur í sínar raðir og þá hafa Íslandsmeistarar Vals
mikinn áhuga á að fá miðjumanninn til liðs við sig.
Björn Daníel er uppalinn FH-ingur en yfirgaf fé-
lagið eftir tímabilið 2013 þar sem hann var kjörinn
leikmaður ársins. Hann gekk fyrst í raðir norska úr-
valsdeildarliðsins Viking og lék með liðinu í tvö ár
áður en hann fór til AGF. Hann var í láni hjá Vejle í
Danmörku í fyrra og spilaði í B-deildinni en sneri
aftur til AGF fyrir þetta tímabil. Björn hefur komið
við sögu í 7 af 18 leikjum AGF í deildinni en liðið er í
11. sæti af 14. Björn er 28 ára gamall miðjumaður og
á að baki 8 A-landsleiki. gummih@mbl.is
Björn leikur á Ís-
landi á næsta ári
Mér fróðara fólk sagði mér í
Kænugarði í vor að verið væri að
taka ansi mikla áhættu með því
að „slíta“ úrslitaleik Meistara-
deildar kvenna frá úrslitaleik
Meistaradeildar karla í fótbolta. Í
vor voru sem sagt í síðasta sinn,
í bili að minnsta kosti, báðir leik-
ir spilaðir í sömu borg í sömu
viku. Með því að hafa leikina að-
skilda er vonast til þess að úr-
slitaleikur kvenna fái að njóta sín
betur, og sé ekki í þeim skugga
af karlaleiknum sem hann svo
sannarlega var síðasta vor. Að
sama skapi er áhætta fólgin í því
að nýta ekki þann gríðarlega
áhuga sem er á úrslitaleik karla
til að skapa meiri áhuga í kring-
um kvennaleikinn.
Með því að hafa keppnirnar
aðskildar opnaði UEFA betur á
möguleikann á að gera sérstakan
styrktarsamning vegna knatt-
spyrnu kvenna og það hefur
sambandið nú gert, með tíma-
mótasamningi til ársins 2025 við
VISA. Þetta er í fyrsta sinn sem
UEFA gerir samning sérstaklega
vegna knattspyrnu kvenna en
samningurinn tekur til móta á
öllum stigum, þ.e. Evrópumóta
landsliða, yngri landsliða og fé-
lagsliða. Báðir aðilar bera þá von
í brjósti að með þessu verði enn
hægt að auka áhuga á fótbolta
kvenna sem hefur aukist mikið á
undanförnum árum.
Þetta hljóma eins og góðar
fréttir í viku þar sem besta
knattspyrnukona heims, Ada
Hegerberg, var heiðruð með því
að hljóta fyrst kvenna Gullbolt-
ann en svo spurð að því uppi á
sviði hvort hún kynni að
„twerka“.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is