Morgunblaðið - 08.12.2018, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.12.2018, Qupperneq 3
k, hefur að undanförnu legið undir di og velt fyrir sér hverja skal velja 8 manna hópinn og hverja ekki. uga þarf að því að eiga öfluga 12 kmenn í allar stöður, leikmenn sem eð stuttum fyrirvara geta hlaupið í arðið fyrir einhvern þeirra 16 sem ra til Þýskalands komi upp meiðsli a af öðrum ástæðum á meðan HM endur yfir. Afar sennilegt er að Guðmundur rður velji a.m.k. 18 af þeim 19 leik- önnum sem hann valdi fyrir síðasta rkefni landsliðsins sem voru leikir gn Grikkjum og Tyrkjum í und- keppni EM í lok október. Þá voru llaðir til: Markverðir: Aron Rafn Eðvarðs- n, Björgvin Páll Gústavsson, Viktor sli Hallgrímsson. Vinsta horn: Bjarki Már Elísson, efán Rafn Sigurmannsson. Vinstri skyttur: Aron Pálmarsson, afur Andrés Guðmundsson og Ólaf- Gústafsson. Miðjumenn: Elvar Örn Jónsson, sli Þorgeir Kristjánsson, Haukur astarson. Hægri skyttur: Ómar Ingi Magn- son, Rúnar Kárason. Hægra horn: Arnór Þór Gunn- sson, Sigvaldi Björn Guðjónsson. Línumenn: Arnar Freyr Arnars- n, Ágúst Birgisson, Ýmir Örn Gísla- n. Varnarmaður: Daníel Þór Ingason. órir markverðir Eina spurningarmerkið sem ég set ð þennan hóp er Viktor Gísli. Senni- ga velur Guðmundur fjóra mark- rði og þar með gæti hann hugs- lega sleppt Viktori Gísla og valið gúst Elí Björgvinsson og Daníel ey Andrésson. Báðir hafa þeir meiri reynslu en Viktor Gísli ef til þess kemur að kalla þurfi inn þriðja markvörðinn í hópinn. Þekkt er frá fyrri mótum íslenska landsliðsins undir stjórn Guðmundar Þórðar að hann hefur skipt út markvörðum í miðju móti hafi hann verið óánægður með frammistöðu þeirra. Ósennilegt verður að teljast að Guðmundur veðji á Viktor Gísla sem þriðja kost, ef til þess kemur að Aron Rafn eða Björg- vin Páll heltist úr lestinni. Þess utan hefur Aron Rafn verið talsvert frá keppni síðustu mánuði. Fullvíst er að Guðjón Valur Sig- urðsson gefur kost á sér í HM- hópinn. Þar með er nokkuð víst að annaðhvort Bjarki Már eða Stefán Rafn fara ekki með til Þýskalands. Guðjón Valur var ekki með í leikj- unum í október en ekki er annað vitað en hann sé klár í að taka slaginn á sínu 22. stórmóti enda sjaldan verið í betra leikformi en nú um stundir. Aðrir sem koma sterklega til greina í 28 manna hópinn eru Heimir Óli Heimisson, línumaður Hauka, sem sennilega hefur aldrei verið betri en um þessar mundir. Hann hefur þann kost að geta leikið jafnt í vörn sem sókn og hef- ur nýtt marktækifæri sín vel. Janus Daði eða Ólafur Bjarki Janus Daði Smárason, miðjumaður hjá Aalborg í Danmörku, verður vafalaust einnig í 28 manna hópnum þótt hann hafi ekki átt upp á pallborðið hjá landsliðs- þjálfaranum í síðustu verkefnum. Eins er ekki hægt að útiloka að Ólafur Bjarki Ragnarsson verði í hópnum, að því til- skildu að hann glími ekki við meiðsli. Hann hefur átt góða leiki með West Wien í Austurríki. Theodór Sigurbjörnsson, hornamaður ÍBV, er sennilega einnig inni í myndinni þrátt fyrir að hafa oft leikið betur en upp á síðkastið. Theodór kom til greina fyrir leiki landsliðsins í október en gaf ekki kost á sér af persónulegum ástæðum. Óðinn Þór Ríkharðsson hlýtur einnig að koma til álita eftir gott tímabil hjá GOG í dönsku úrvalsdeildinni. Alexander Júlíusson verður vafalaust með í vangaveltum Guðmundar um valið á hópnum. Alexander er sterkur varnar- maður og fékk eldskírn með landsliðinu á móti Noregi í apríl, rétt eftir að Guð- mundur tók við þjálfun liðsins. Egill Magnússon, stórskytta Stjörn- unnar, kemur einnig til greina eftir að hafa leikið afar vel með Stjörnunni á síð- ustu vikum og skorað átta mörk að jafnaði í leik í Olís-deildinni. Að lokum er það spurningin um hver verður þriðja örvhenta skyttan í 28 mannahópnum. Maður sem væri tilbúinn að leysa af Ómar Inga og Rúnar ef eitt- hvað bjátar á hjá þeim. Þar gætu Ásgeir Örn Hallgrímsson, Ragnar Jóhannsson og Viggó Kristjánsson komið til greina. Af þeim þremur ætla ég að veðja á að reynslumaðurinn Ásgeir Örn verði til taks. r fara á HM í Þýskalandi? Morgunblaðið/Eggert HM 2019 Guðmundur Þórður Guðmundsson fer með sextán leikmenn til Þýskalands en tólf til viðbótar verða til taks ef gera þarf breytingar á hópnum. opinberar 28 manna landsliðshóp sinn eftir helgi  Guðjón Valur með á ný og tekur i á ferlinum  Hvaða markverðir verða í hópnum?  Flautað til leiks eftir mánuð ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2018 Morgunblaðið/Ómar Heimkoma Björn Daníel Sverrisson gæti klæðst búningi FH á ný eða gengið til liðs við Val. Neil Warnock, knattspyrnustjóri Cardiff, seg- ir að félagið sé í leit að miðjumanni til öryggis ef ske kynni að eitthvað kæmi fyrir Aron Ein- ar Gunnarsson landsliðsfyrirliða. Aron var ekki með Cardiff framan af tímabili þar sem hann vann í að komast af stað eftir meiðsli. Eftir að Aron byrjaði að spila hefur Cardiff unnið þrjá af sjö leikjum sínum en það eru einu þrír sigrar liðsins á tímabilinu, og er liðið í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Warnock ræddi um hugsanleg leikmannakaup Cardiff í janúar, á fréttamannafundi í gær, og viðurkenndi að væri að leita að hægri bakverði og framherja: „Síðan erum við að litast um eftir miðjumanni ef ske kynni að eitthvað kæmi fyrir Ar- on Gunnarsson. Við höfum engan í hópnum sem getur leikið í hans stöðu eins vel og Aron gerir,“ sagði Warnock. sindris@mbl.is Þarf mann fyrir Aron Neil Warnock Ísland tapaði fyrir sterku liði Hollands 5:0 í fyrsta leik sínum í forkeppni EM landsliða í badminton en keppt er í Portúgal. Fyrirfram er búist við að Holland sé sterkasta liðið í riðli Íslands og bendir ýmislegt til að það sé rétt miðað við úrslitin. Í riðlinum keppa einn- ig Portúgal og Sviss og hafði Sviss betur 4:1. Liðið sem vinnur riðilinn vinnur sér þar með inn keppnisrétt á EM sem fram fer í Dan- mörku í febrúar. Kári Gunnarsson og Arna Karen Jóhannsdóttir töpuðu leikjum sínum í einliðaleik. Kári 21:18 og 21:10 en Arna 21:6 og 21:7. Í tvenndarleik töpuðu Kristófer Darri Finnsson og Mar- grét Jóhannsdóttir 21:7 og 21:17. Margrét og Sigríður Árna- dóttir töpuðu í tvíliðaleik 21:10 og 21:15, og Kristófer Darri og Davíð Bjarni Björnsson töpuðu 21:10 og 21:11. sport@mbl.is Stórt tap gegn Hollandi Kári Gunnarsson Gærkvöldið var gott fyrir karlaliðin hjá Fjölni í vetraríþróttunum handknattleik og körfu- knattleik en bæði leika þau í b-deildum Ís- landsmótsins og virðast líkleg til að berjast um sæti í efstu deildunum. Fjölnir jafnaði við lið Vestra, Hamars og Hattar að stigum í 2.-5. sæti fyrstu deildar karla í körfunni með mikilvægum sigri á Vestra á heimavelli, 98:93. Hamar vann Sindra á Hornafirði, 104:98. Fjölnismenn eru á réttri leið í tilraun sinni til að snúa strax aftur upp í Olís-deild karla í handboltanum eftir að hafa fallið þaðan í vor. Fjölnir er með þriggja stiga forskot á toppi Grill 66 deild- arinnar eftir sigur á Haukum U í gær , 27:23, á Ásvöllum. Fjöln- ismenn voru 16:9 yfir í hálfleik. sport@mbl.is Fínir sigrar Fjölnis Kári Garðarsson, þjálfari Fjölnis.  Nýliðar Aftureldingar í 1. deild karla í knattspyrnu fengu í gær til liðs við sig Ásgeir Örn Arnþórsson frá Fylki. Ásgeir, sem er 28 ára gamall og hefur áður verið í láni hjá Aftureldingu, á að baki 113 leiki með Fylki í úrvalsdeild- inni og hefur skorað í þeim níu mörk en hann spilaði ellefu leiki í deildinni á síðasta tímabili.  Enska knattspyrnufélagið Everton staðfesti í gær ráðningu Grétars Rafns Steinssonar, fyrrverandi lands- liðs- og atvinnumanns, til félagsins. Hann verður „yfirnjósnari“ félagsins í Evrópu, utan Bretlandseyja, og yfir- gefur Fleetwood Town eftir fjögur ár þar sem yfirmaður knattspyrnumála.  Sadio Mané og Dejan Lovren verða ekki með Liverpool í dag þegar liðið sækir Bournemouth heim í úrvals- deildinni í knattspyrnu en liðin mæt- ast í hádegisleik dagsins klukkan 12.30. Jürgen Klopp knattspyrnustjóri staðfesti í gær að þeir væru ekki leik- færir vegna meiðsla.  Topplið Manchester City sækir Chelsea heim síðdegis en þar vantar bæði Sergio Agüero og Kevin De Bruyne sem eru meiddir. City er með tveggja stiga forskot á Liver- pool en bæði liðin eru taplaus eftir fimmtán umferðir. Eitt ogannað Skagamenn greindu frá því á heimasíðu sinni í gær að ÍA hefði gengið frá sölu á tveimur ungum knatt- spyrnumönnum, Ísak Bergmann Jóhannessyni og Oliver Stefánssyni, til sænska félagsins Norrköp- ing. Ísak er 15 ára og Oliver 16 ára og báðir léku þeir sinn fyrsta leik með meistaraflokki ÍA í loka- umferð 1. deildar karla í haust. Báðir hafa þeir spilað mikið með yngri landsliðum Íslands. Ísak hefur á rúmu ári leikið 14 leiki með U15 til U17 ára liðunum og Oliver 11 leiki með U16 til U18 ára liðunum. Oliver fer þar með á sömu slóðir og faðir hans, Stefán Þór Þórðarson, sem lék með Norrköping á árunum 2005 til 2009 og var einn vinsælasti leik- maður liðsins um það leyti, og frændi hans Þórður Þórðarson sem varði mark liðsins 1999-2000. Faðir Ísaks er Jóhannes Karl Guðjónsson, núverandi þjálfari ÍA, sem sjálfur var atvinnumaður í 14 ár. Með Norrköping spila þeir Guðmundur Þórarins- son og Alfons Sampsted en félagið seldi Skaga- manninn Arnór Sigurðsson til Rússlands í sumar, sem og Jón Guðna Fjóluson. vs@mbl.is Ísak og Oliver til Norrköping Ljósmynd/kfia.is Norrköping Oliver Stefánsson og Ísak Bergmann Jóhannesson í treyjum frá sínu nýja félagi. HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olís-deildin: Hertz-höllin: Grótta – ÍBV .................... L16 Höllin Ak.: Akureyri – KA..................... L18 Varmá: Afturelding – Stjarnan ............. S17 Origo-höllin: Valur – Fram ............... S19.30 1. deild karla, Grill 66-deildin: Kaplakriki: FH U – ÍBV U................ S15.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: MG-höllin: Stjarnan – KR ................. S19.15 Hertz-hellirinn: ÍR – Njarðvík ......... S19.15 Smárinn: Breiðablik – Tindastóll ..... S19.15 Blue-höllin: Keflavík – Þór Þ ............ S19.15 Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: MG-höllin: Stjarnan – Skallagrímur L16.30 Stykkishólmur: Snæfell – KR ............... L17 1. deild kvenna: Hveragerði: Hamar – Njarðvík............. L14 Mustad-höll: Grindavík – Tindastóll L16.30 Hertz-hellirinn: ÍR – Þór Ak ................. L17 Dalhús: Fjölnir – Tindastóll................... S14 UM HELGINA!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.