Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - 15.12.1998, Blaðsíða 5
Af styrkveitingum
Fjórir faghópar fengu styrki
til sérverkefna
Á síðasta aðallundi var samþykkt að
veita 144.000 krónum til sérverkefna
faghópa.
Umsóknarfrestur var til l.nóvember
eins og auglýst var í fréttabréfinu í
október síðastliðnum.
Umsóknir bárust frá fjórum faghópum.
Fjórir fengu styrk en einni umsókn var
synjað. Þeir hópar sem fengu styrk eru:
Faghópur sjúkraþjálfara í öldrunar-
þiónustu - styrkur til útgáfu kennslu-
myndbands um framkvæmd Berg
jafnvægisprófs.
Faghópur sjúkraþjálfara um málefni
kvenna tengdum meðgöngu og
fæðingu - viðbótanstyrkur til að Ijúka gerð
fræðslubæklings
um grindarlos í
tengslum við
meðgöngu og
fæðingu.
Faghópur
sjúkraþjálfara í
öldrunar-þiónustu -
styrkur vegna útgá-
íú rits um heil-
abilun.
Faghópur í bamasiúkraþjálfun - styrkur
vegna þýðingar á hreyfiprófi fyrir böm.
Rannsakendur athugiö:
Umsóknarfrestur um styrki
úr Vísindasjóði til 1. feb.’99
Markmið hans erað styrkja rannsó-
narverkefhi, þróunarverkefni og
viðamiklar ritsmíðar innan sjúkraþjál-
funar sbr. grein 2.1 í starfsreglum
sjóðsins.
Grein 5.1 hljóðarsvo:
Umsóknum um styrki skal skila til
stjómar Vísindasjóðs á þar til gerðum
eyðublöðum eigi síðar en 1. febrúar
eða fyrsta virka dag þar á eftir. Rétt til
að sækja um styrki eiga fullgildir og
skuldlausir félagsmenn FÍSÞ fra og
með áramótun það ár sem sótt er um
styrk í sjóðinn.
Greinar 6.1 og 6.2 kveða á um eftir-
farandi:
6.1. Umsóknum um styrk í
Vísindasjóð FÍSÞ þarf að fylgja:
- ítarleg vinnuáætlun
- Rökstudd kostnaðaráætlun
6.2. Vísindasjóður styrkir eftirfarandi:
- Útlagðan kostnað vegna verkefnis s.s.
póstburðargjöld og aðkeypta tölfraeði-
úrvinnslu.
- Vmnuframlag umsækjanda, þó ekki
hærri upphæð en sem nemur fjórðungi
af úthlutun til umsækjanda nema laun
viðkomandi skerðist vegna verkefnisins.
-Kaup á nauðsynlegum tækjum til
verkefnisins. Ekki fæst styrkur til kaupa
almenns skrifstofúbúnaðar og tækja eins
og tölva o.þ.h.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofú
FISÞ. Starfsreglumar voru birtar í heild
sinni í apríl hefti Fréttabréfsins 1998
(bls. 14).
Fyrir hönd stjómar Vísindasjóðs FÍSÞ,
Láms Jón Guðmundsson
(varamaður).
Mikilvægt þing í febrúar
Rannsóknarþing
í sjúkraþjálfun
27. febrúar 1999
Verður haldið föstudaginn 27. febrúar
1999 að Hótel íslandi.
Frestur til að senda inn útdrætti rennur
út 15. janúar 1999. Nánari upplýsingar
hjá Frasðslunefnd (sjá annarsstaðar í
þessu blaði).
Frá gjaldkera vorum
Félagsgjöld
og félagatal
Félagsmenn athugið!
Þeir sem ekki hafa fengið gíróseðla lyrir
félagsgjöldum eru vinsamlegast
beðnir um að láta vita af því á skrifstofu-
na.
Félagsgjöld!
Greiðið félagsgjöldin sem fýrst Einungis
skuldlausir félagsmenn hafa
atkvæðisrétt á aðalfúndi.
Er greiðsluseðillinn týndur?
Ef svo er getur þú farið í Landsbankann,
gefið upp kennitölu FÍSÞ
690372-0299, höfuðbók 62 félagaþjónusta
og greiu félagsgjöldin.
Breytt heimili, sími, vinna?
Vinsamlegast tilkynnið breytingar á heim-
ilsifangi, símanúmeri eða vinnustað
til félagsins.
Aukafélagsaðild!
Þeir félagsmenn sem ætla að gerast
aukafélagar fyrrihluta næsta árs þurfa
að sækja um það skriflega til félagsins
fyrir áramót.
Jóhanna Konráðsdóttir
gjaldkeri FÍSÞ
FRÉTTABRÉF FÍSÞ - Tíundi árgangur 1998
5