Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019FRÉTTIR m. Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni rafhlöðu sem skilar afli til þess að slípa, er léttari en snúrurokkur í sinni stærð. POWERSTATE™ mótor REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M18™ rafhlöðu Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FLAG Alvöru slípirokkur fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ICEAIR -1,46% 9,46 MARL +1,49% 373,5 S&P 500 NASDAQ +0,64% 6.621,724 +0,35% 2.497,64 +2,27% 6.734,23 FTSE 100 NIKKEI 225 3.7.‘18 3.7.‘182.1.‘19 1.800 90 2.080,50 1.795,00 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 55,64+4,48% 20.014,77 77,76 50 2.400 2.1.‘19 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) Árið 2018 var jákvætt á íslenskum hlutabréfamarkaði, að sögn Magn- úsar Harðarsonar, forstöðumanns viðskiptasviðs Kauphallarinnar. Hann segir að velta með hlutabréf hafi þó verið um fimmtungi minni en árið 2017. „Helsta ástæða þess er að lífeyrissjóðirnir hafa verið að beina fjárfestingum sínum í meira mæli á erlenda markaði. Einnig hefur verðþróun verið flöt og aðeins í mínus fyrir árið í heildina. Fólk virðist vera að bíða eftir því að markaðurinn hefji sig til flugs á ný,“ segir Magnús. Spurður um helstu vonbrigði ársins og hvað helst hafi komið á óvart nefnir Magnús að mest hafi komið á óvart hvað viðskiptin minnkuðu mikið á milli ára. Helstu vonbrigðin snúi að því að innflæðishöft séu enn fyrir hendi á erlenda fjárfestingu en þau hafi skaðleg áhrif á skuldabréfamark- aðinn. „Þetta eru ákveðin von- brigði því krónan hefur veikst talsvert, og vaxtastig í Bandaríkj- unum hefur hækkað. Það blasir eiginlega við að það eru engar ástæður til þess að viðhalda hér höftum, en samt er þeim við- haldið.“ Söguleg lægð í skuldabréfum Magnús segir að m.a. vegna haftanna séu viðskipti á skulda- bréfamarkaði í sögulegri lægð. „Við erum eiginlega stödd í mestu rólegheitum frá því um aldamót. Nú þegar lífeyrissjóðir eru farnir að fjárfesta meira erlendis er svo mikilvægt að aðrir fjárfestar taki við þeirra hlutverki. Það hefur því áhrif að erlendum fjárfestum sé ekki hleypt inn óheft.“ Vel gekk á skráningarhliðinni á hlutabréfamarkaði á árinu að sögn Magnúsar. „Við fengum þrjár góðar skráningar á mark- aðinn, þar af tvo banka, Kviku og Arion banka sem var einnig skráður samtímis á markaðinn í Stokkhólmi. Auk þess voru Heimavellir, þriðja nýskráða fé- lagið, það fyrsta sinnar tegundar á markaðinum. Þetta voru því allt góðar áfangaskráningar.“ Magnús segir að tvískráning Arion banka hafi verið mikilvæg fyrir trúverðugleika íslenska hag- kerfisins og fjármálamarkaðarins. Horfurnar fyrir næsta ár eru prýðilegar að mati Magnúsar. „Það er meiri áhugi nú en nokkru sinni fyrr hjá smærri félögum á skráningu. Þrjú til fjögur félög gætu bæst við 2019. Eitt er búið að ákveða sig endanlega, en 2-3 eru að skoða skráningu alvarlega. Þá setja Kvika og Iceland Seafood stefnuna á aðalmarkaðinn, en þau eru núna á First North-mark- aðnum.“ Spurður um helstu hækkanir og lækkanir yfir árið segir Magnús að Iceland Seafood hafi þar vinn- inginn með 34% hækkun. „Hagar komu næst með 30% hækkun, þá kom Marel með 15%, Skeljungur með 9% og Kvika með 8%.“ Gengi Sýnar lækkaði mest allra félaga á árinu eða um 38%, að sögn Magnúsar. „Icelandair lækk- aði næstmest eða um 35%, þá kom TM með 21%, Eik og Heima- vellir 19% og Reginn lækkaði um 18%.“ Veltan var mest með bréf stærsta félagsins í Kauphöllinni, Marels, eða samtals 97 milljarðar króna. Jákvætt ár að baki á ís- lenskum hlutabréfamarkaði Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Uppbygging verðbréfa- markaðarins hélt áfram á árinu 2018, og alþjóðlegar tengingar jukust. Velta í hlutabréfum var fimmtungi minni en í fyrra. Iceland Seafood hækkaði mest allra félaga í Kauphöll árið 2018, eða um 34%. Félagið stefnir á aðallista á nýju ári, rétt eins og Kvika banki. BYGGINGAMARKAÐUR Um 12.500 kaupsamningum var þinglýst árið 2018 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fast- eignir um 550 milljörðum króna. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóð- skrár Íslands. Þar segir einnig að meðalupphæð á hvern samning hafi verið um 44 milljónir króna. Til samanburðar var veltan árið 2017 rúmlega 507 millj- arðar, kaupsamningar voru 12.108 talsins og meðalupphæð hvers samnings var um 42 milljónir króna. „Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um tæplega 8,5% frá árinu 2017 og kaupsamningum fjölgað um rúmlega 3,2%,“ segir í fréttinni. Þá segir að sé litið til höfuðborg- arsvæðisins þá hafi heildarvelta auk- ist um rúmlega 8,9% og kaupsamn- ingum hafi fjölgað um tæplega 6,5%. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Meðalupphæð á hvern samning um fasteignakaup var um 44 m.kr. Viðskipti- jukust um 8,5% FJÁRMÁLAMARKAÐUR Fjármálaeftirlitið, FME, auglýsti í gær á vef sínum í fyrsta skipti eftir utanaðkomandi sérfræðingum til að sinna afmörkuðum og sértækum verkefnum innan stofnunarinnar. Unnur Gunnarsdóttir forstjóri FME segir í samtali við ViðskiptaMogg- ann að heimild til þessa hafi verið í lögum lengi, og áður en FME varð sú stofnun sem hún er í dag. „Það má segja að við séum að auglýsa núna til að vera í takti við tímann og flagga því að fólk geti komist á lista hjá okkur. Það hefur færst í vöxt í atvinnulífinu að auglýst sé eftir fólki til stjórnarstarfa, og þessi hugmynd er af sama meiði. En auðvitað þurf- um við að fara vel yfir hvort fólk sé með viðeigandi þekkingu og reynslu, og að allir sem vinna fyrir okkur séu óháðir þeim aðila sem eftirlit er haft með.“ Þekkingin verður ekki eftir Unnur segir að þessi heimild að leita til utanaðkomandi sérfræðinga sé sjaldan notuð. „En hún er fyrir hendi og kominn tími á að endurnýja listann af fólki hjá okkur.“ Unnur segir að ókosturinn við að leita til utanaðkomandi sérfræðinga sé sú að þá sitji þekkingin ekki eftir inni í stofnuninni. Úrræðið sé samt sem áður mjög gott. „Við höfum ver- ið að byggja upp innri þekkingu í stofnuninni síðustu ár, því lagaum- hverfið hefur verið að breytast svo mikið,“ útskýrir Unnur. FME fagnar 20 ára afmæli á árinu. „Þetta er í raun mjög ung stofnun. Í tilefni afmælisins munum við halda nokkra stutta morgunfundi með mismunandi þemum, auk þess sem við munum hafa ársfundinn í maí veglegri en venjulega.“ to- bj@mbl.is FME vill vera í takti við tímann með auglýsingu Morgunblaðið/Ómar Fjármálaeftirlitið heldur morgun- fundi til að fagna 20 ára afmæli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.