Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 Snjall og snjöll ný hugbúnaðarlausn Upplýsingar í skýinu Tölvupóstur með lotustýringu Rauntíma­ skráning hráefna Gufunes, 112 Reykjavík Sími 577 5757 – gamur@gamur.is Tæknivæðum sorpmálin Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum „Þetta staðfestir það sem við höfum haldið fram, alveg frá því að ljóst varð að menn væru að fara að stunda eldi í opnum í kvíum við Íslandsstrendur. Þessi lax syndir fleiri hundruð kíló- metra ef honum þóknast svo, og get- ur farið upp í hvaða á sem er á land- inu. Þetta kemur okkur því ekki á óvart.“ Friðleifur segir að ef fram haldi sem horfi, að fiskeldi verði aukið til muna hér við land, sé ljóst að sífellt fleiri eldislaxar muni leita upp í ís- lenskar ár. „Þetta er það sem koma skal ef iðnaðinum er leyft að vaxa í óbreyttri mynd. Og það bendir allt til að svo verði,“ segir hann og vísar til frumvarpsdraga til nýrra laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi, sem nýverið voru birt á samráðsgátt stjórnvalda. Kylfa sem ræður kasti „Þar sjáum við mjög takmarkaðar ráðstafanir gerðar til að gera starf- semina umhverfisvænni. Okkur finnst hvatar stjórnvalda ekki með þeim hætti að eldisfyrirtæki sjái sér hag í því að færa sig yfir í umhverf- isvænni kosti, ef svo má að orði kom- ast, eins og til dæmis eldi í lokuðum kvíum eða á landi.“ Allar ár landsins eru undir, segir Friðleifur. „Það er alveg ljóst. Þetta er ekki það stórt land,“ segir hann og bendir á að NASF hafi keypt neta- og veiðiréttindi í Grænlandi og í Fær- eyjum til að vernda laxastofninn. „Við sjáum að villti laxinn syndir héðan og til þessara landa. Það er í eðli laxins. Það fer eftir straumum og ástandi hafsins hverju sinni hvert hann fer. Og ef hann er alinn í kví, eins og í fiskeldinu, er hann vitaskuld átta- villtur en það er samt sem áður í hans eðli að finna sér á til að hrygna. Þess vegna er það bara kylfa sem ræður kasti hvort hann endar í Vatnsdalsá, Selá eða hvar annars staðar. Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta hrika- leg þróun sem er að eiga sér stað, og mikið áhyggjuefni.“ Mikilvægt að fá hagsbætur í lög Fyrirtækið AkvaFuture hyggur á tuttugu þúsund tonna laxeldi í lok- uðum sjókvíum í Eyjafirði, en systur- fyrirtæki þess rekur eldi í slíkum kví- um í Brunneyjarsundi í Norðlands- fylki í Noregi. Rögnvaldur Guð- mundsson, framkvæmdastjóri AkvaFuture, sagði í samtali við 200 mílur fyrr í vetur að í burðarþolsmati Hafrannsóknastofnunar væri ekki tekið tillit til þeirrar staðreyndar að eldið yrði í lokuðum kvíum. „Sú er ekki raunin, því miður. Burðarþolið gerir ráð fyrir þeirri að- ferð sem algengust er í fiskeldi. Með okkar tækni ættum við nefnilega að geta nýtt burðarþolið mun betur, það er framleitt meira en sem því nemur án þess að áhrifin á umhverfið verði í sama mæli,“ sagði Rögnvaldur í því viðtali. Friðleifur bendir á að þetta sé dæmi um skort á hvötum af hálfu stjórnvalda til að stuðla að umhverfis- vænna eldi. „Vandinn er að þróun á lokuðum kvíum er tiltölulega nýhafin, en hún hefst í Noregi þar sem vandamál tengd laxeldi eru orðin svo mikil að menn eru farnir að leita annarra framleiðsluaðferða. AkvaFuture er nú búið að framleiða lax í lokuðum kvíum með mjög góðum árangri undanfarin ár, en ekki einn einasti fiskur hefur sloppið og aldrei hefur komið upp lús. Þá endurvinna þau megnið af úrganginum sem fellur til og nýta hann til að knýja lífdísilvagna á götum Þrándheims,“ segir hann. „Þetta er virkilega flott framtak, en það segir sig sjálft að framleiðsluferl- ið er dýrara. Og þess vegna er svo mikilvægt að stjórnvöld setji í lög ein- hverjar hagsbætur fyrir fyrirtækin sem ákveða að fara þessa leið frekar.“ „Hví ekki núna?“ Hann segir hvataskortinn birtast skýrt í framleiðslu Arctic Fish hér á landi, en félagið er að stórum hluta í eigu norska fiskeldisfyrirtækisins Norway Royal Salmon. „Móðurfélagið er að gera tilraunir með framleiðslu í lokuðum kvíum í Noregi en þegar hingað er komið sleppa þeir því því þeir sjá að þeir þurfa þess ekki. Hefðbundnar opnar kvíar eru ódýr búnaður. Um leið og fyrstu slátruninni er lokið hafa menn greitt upp opnu kvína. En frá mark- aðssjónarmiðum, ef menn eru á ann- að borð lítið að spá í umhverfið, þá er skiljanlegt að þeir fari þessa ódýrari leið,“ segir Friðleifur. „Stjórnvöld þurfa bara að gyrða sig í brók og reyna að koma fiskeldis- iðnaðinum í umhverfisvæna fram- leiðslu sem við getum verið stolt af. Tíminn mun leiða í ljós að þetta eru rangar aðferðir sem eru við lýði núna, og þetta mun allt enda í lokuðum kví- um eða uppi á landi. Það er bara spurning hvort það verður eftir fimm eða tíu ár þannig að hví ekki núna, í stað þess að gera sömu mistök og all- ar þjóðir sem stunda fiskeldi að ein- hverju marki í kringum okkur eru búnar að gera? Það er okkur með öllu óskiljanlegt.“ Hvata vanti til umhverfis- væns laxeldis Skúli Halldórsson sh@mbl.is Níu laxar, sem veiddust í fyrra í íslenskum ám, komu frá tveimur kvíastæðum, annars vegar úr Laugardal í Tálkna- firði og hins vegar frá Hringsdal í Arnarfirði, samkvæmt rannsókn Hafrannsóknastofnunar. Friðleifur Guðmunds- son, formaður Verndarsjóðs villtra laxa, segir niður- stöðurnar ekki koma sér í opna skjöldu. Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson Einn þeirra eldislaxa sem veiðst hafa í íslenskum ám fannst í Vatnsdalsá. Uppruni hans var rakinn til Tálknafjarðar. Afurðaverð á markaði 2. janúar 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 408,93 Þorskur, slægður 514,65 Ýsa, óslægð 376,63 Ýsa, slægð 303,62 Ufsi, óslægður 176,50 Ufsi, slægður 150,85 Djúpkarfi 188,00 Gullkarfi 321,74 Blálanga, óslægð 325,00 Blálanga, slægð 221,82 Langa, óslægð 280,19 Langa, slægð 219,47 Keila, óslægð 79,92 Keila, slægð 90,45 Steinbítur, óslægður 302,00 Steinbítur, slægður 304,21 Skötuselur, slægður 446,01 Grálúða, slægð 361,46 Skarkoli, slægður 400,60 Þykkvalúra, slægð 652,15 Langlúra, óslægð 124,00 Sandkoli, óslægður 10,00 Bleikja, flök 1.574,25 Gellur 1.085,50 Grásleppa, óslægð 32,35 Hlýri, slægður 439,16 Hrogn/þorskur 207,36 Lúða, slægð 503,04 Lýsa, óslægð 71,00 Lýsa, slægð 85,00 Skata, slægð 66,00 Stórkjafta, slægð 133,00 Undirmálsýsa, óslægð 137,25 Undirmálsýsa, slægð 179,00 Undirmálsþorskur, óslægður 172,99 Undirmálsþorskur, slægður 141,00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.