Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 12

Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 12
FORRITÐ Við lifum og hrærumst í rituðum heimi. Er ekki lítið vandamál að eiga erfitt með lestur þegar það að sinna vinnunni vel og jafnvel rækta sam- bandið við vini og ættingja kallar á að komast í gegnum kynstrin öll af tölvu- póstum og færslum á samfélags- miðlum. En lesblindir geta líka nýtt tæknina til að gera netið aðgengilegra, t.d. með forritinu Helperbird. Um er að ræða viðbót við Chrome-vafrann sem virkar bæði á tölvum og snjallsímum. Forritið leyfir notendum m.a. að breyta texta- og litastillingum vefsíða og Google- docs-skjala svo að auðveldara verður að lesa það sem á þeim stendur. Helperbird getur t.d. breytt letur- gerðinni yfir í OpenDyslexic sem mörgum lesblinum finnst þægilegra að lesa, og meira að segja látið tölvurödd lesa stök orð og setningar sem reynast erfið viðureignar. Með nokkrum smell- um má breyta litnum á textanum eða velja bakgrunnslit sem auðveldar lest- urinn. Hugnist notandanum ekki að hrófla við tilteknum vefsíðum getur hann lát- ið HelperBird vita og lætur forritið þá þær síður í friði. Með ókeypis útgáfu forritsins má breyta leturgerð vefsíðna en kaupa þarf mánaðarlega áskrift til að geta átt við litastillingar. ai@mbl.is Vefurinn aðgengi- legri fyrir lesblinda 12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019SJÓNARHÓLL SANDBLÁSTUR Sundaborg 3 104Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning KRISTINN MAGNÚSSON Rannsóknir í sálfræði og læknavísindum hafaleitt í ljós að það er manneskjunni eiginlegtað óttast breytingar. Þegar við stöndum frammi fyrir óvissunni sem iðulega fylgir breytingum grípa ævaforn og ósjálfráð kerfi líkamans til sinna ráða og reyna að verjast. Fyrstu viðbrögð eru iðlega að forða sér, neita að horfast í augu við breytingar- nar eða gera ekkert og vona að allt renni í sitt fyrra horf áður en yfir lýkur. Ótti er þannig lamandi, en Usman B. Asif hitti einmitt naglann á höfuðið þegar hann sagði „ótti er myrkraherbergi þar sem negatíf- ur framkallast“. En á sama tíma vitum við að ekkert er eins öruggt og að það muni verða breytingar. Það sama gildir um við- skipti, það er að þar er ótti við breytingar algengur. Saga viðskipta er stráð fyrirtækjum sem reyndu meðvitað eða ómeðvitað að hunsa breytingar og enduðu illa. Hver man til dæmis ekki eftir því þegar Nokia var stærsti og verðmætasti símaframleiðandi í heimi og þegar Kodak nánast stjórn- aði markaðnum með ljósmyndunarvörur fyrir al- menning. Og í þessum töluðu orðum berst Toys R Us fyrir lífi sínu eftir að hafa misst af netverslunarlest- inni. Hversu stórt hlutverk óttinn við breytingar lék í falli þessara fyrirtækja og annarra er erfitt að segja, en líklega var það oft á tíðum aðeins meira en aukahlutverk. Það kann þó ekki góðri lukku að stýra að gera breytingar einungis breytinganna vegna. Ef markmið breytinga er ekki skýrt sýnir reynslan að þær enda yfirleitt í árangursleysi eða illa. Þetta sýna til dæmis rannsóknir bæði Wharton-viðskiptaháskólans og ráð- gjafafyrirtækisins KPMG, en niðurstöður þeirra eru að yfirtökur og sameiningar bandarískra fyrirtækja hafi í gegnum tíðina misheppnast í fimmtíu til áttatíu prósentum tilfella og skilað hluthöfum óbreyttu eða lægra verðmæti þegar upp var staðið. Líkt og á við um svo margt annað þá eru breytingar óstöðvandi og hvorki með upphaf né endi og fyrirtæki eiga á hættu að heltast úr lestinni fyrr en varir sofni þau á verð- inum. Til að forðast slíkt þurfa fyrirtæki almennt að átta sig snemma á þeim breytingum sem eru í far- vatninu, finna leiðir til að bregðast við þeim eða hag- nýta þær og ná forskoti á önnur fyrirtæki og að lok- um hrinda lausnunum í framkvæmd og innleiða þær breytingar í starfsemi fyrirtækisins sem nauðsyn- legar eru. Í þessum efnum er valdboð að ofan ekki vænlegt til árangurs heldur verður að virkja eins stóran hluta starfsfólksins og mögulegt er. Að skapa vinnu- staðamenningu þar sem starfs- fólkið er vakandi gagnvart breyt- ingum á þörfum og umhverfi viðskiptavina, er virkur hluti breytingastjórnunar, er skapandi í lausnum til að svara breyttum að- stæðum og jákvætt þegar kemur að nauðsynlegum breytingum á eigin aðstæðum. Starfsfólk hvers fyrirtækis er sem sagt lykillinn að árangurs- ríkum viðbrögðum við breyting- um, en eins og áður sagði þá er það fólki eðlislægt að óttast breytingar. Þennan ótta þarf að yfirvinna en það eru bæði gömul vísindi og ný að til að yfirvinna ótta er best að horfast í augu við hann. Það gerum við meðal annars með því að ræða málin á opinskáan hátt, leita stuðnings annarra í svipaðri stöðu og ráð- gjafar þeirra sem vita betur þegar við á. Ef við skoð- um starfsemi fyrirtækja í þessu ljósi sjáum við að líklega er mikilvægasta hlutverk stjórnenda að skapa vinnustaðamenningu þar sem umræða um breytingar er eðlilegur hluti daglegrar starfsemi, þar sem starfsfólk treystir hvert öðru og sér hag sinn í að vinna saman að lausnum og þar sem jákvæðni ríkir gagnvart nauðsynlegum breytingum á eigin umhverfi og starfi. Þar sem breytingar eru tækifæri en ekki ógn. STJÓRNUN Hjörtur H. Jónsson forstöðumaður áhætturáðgjafar hjá ALM verðbréfum „Ótti er myrkraherbergi þar sem negatífur framkallast“ ” Starfsfólk hvers fyrir- tækis er sem sagt lykill- inn að árangursríkum viðbrögðum við breyt- ingum, en eins og áður sagði þá er það fólki eðlislægt að óttast breytingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.