Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 13SJÓNARHÓLL BÓKIN Það er við hæfi í upphafi nýs árs að skoða hvaða leiðir mætti fara til að bæta heiminn. Ef marka má nýja bók Rob Reich eru gjafir til góðgerða- mála ekki lausnin, eða alltént ekki risa- gjafir bandarískra auðmanna. Reich, sem er pró- fessor í stjórn- málafræði við Stan- ford-háskóla, hefur rýnt í tölurnar og komst hann m.a. að því að rausnar- skapur bandarískra milljóna- og milljarðamæringa virðist sáralítið gagnast þeim sem eiga um sárt að binda. Reich er höfundur bókarinnar Just Giving: Why Philanthropy Is Failing Democracy and How It Can Do Bet- ter. Rannsóknir Reich leiddu m.a. í ljós að innan við fimmtungur af gjöfum ríkasta fólks Bandaríkjanna til góð- gerðastarfs nýttist fátækustu hópum samfélagsins. Frekar en að rata þangað sem þörfin er mest leitar fjár- magnið í íþróttir, listir, menningar- starf og til trúfélaga. Gjafir sem ætl- að er að efla menntun hafna hjá þeim skólum sem vita nú þegar ekki aura sinna tal og rukka himinhá skólagjöld, frekar en hjá þeim menntastofnunum sem reyna af veik- um mætti að fræða og efla nemendur sem eiga undir högg að sækja. Ef marka má Reich þá eru allar rausnarlegu gjaf- irnar, ef eitthvað er, að breikka bilið á milli efstu og lægstu laga bandarísks samfélags – sem kæmi kannski eng- um við ef ekki væri fyrir þær sakir að framlög til góðgerðastarfs og trú- félaga eru frádráttarbær frá skatti og af þeim sökum fer ríkissjóður Banda- ríkjanna á mis við 50 milljarða dala árlega. Er það meira en samanlögð útgjöld til orku-, umhverfis-, fæðu- og landbúnaðarmála. ai@mbl.is Kannski væri betra að sleppa gjöfunum Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið umhinn svokallaða þriðja orkupakka Evrópu-sambandsins í tengslum við fyrirhugaða inn- leiðingu Íslands á þeirri löggjöf. Andstæðingar þess- arar nýju löggjafar hafa verið heldur digurbarkalegir í umræðunni og hafa haldið því fram að regluverkið myndi fela í sér of víðtækt valdframsal á fullveldi Ís- lands og hafa jafnvel kallað eftir því að Ísland gangi út úr samstarfinu. Þrátt fyrir að öll umræða um þessi málefni sé góðra gjalda verð standast þær fullyrðingar sem fram hafa komið frá helstu andstæðingum þriðja orkupakkans enga lögfræðilega skoðun. Þriðji orkupakki Evrópusambandsins er reglugerð frá Evrópusambandinu sem var samþykkt árið 2009. Í maí 2017 ákvað sameiginlega EES-nefndin svo að fella regluverkið inn í EES-samninginn. Enn hefur þriðji orkupakkinn þó ekki verið innleiddur í íslenskan rétt. Meginmarkmið regluverksins er að tryggja frjálsa samkeppni með raforku og gas innan EES- svæðisins. Þá felur orkupakkinn jafnframt í sér stofnun Orkustofnunar Evrópu (ACER) en þar er um að ræða samstarfsstofnun á milli aðildar- ríkja EES sem hefur úrskurðarvald í deilumálum á milli eftirlitsstofnana einstakra aðildarríkja. Helstu breytingar sem þriðji orkupakkinn myndi hafa á núgildandi löggjöf snúast um aukinn aðskilnað á milli flutningsaðila og annarrar orkutengdrar starfsemi þar sem flutningur raforku hér á landi er á vegum Landsnets hf. en eigendur þess félags eru jafnframt vinnsluaðilar raforku. Myndi þetta að öllu jöfnu fela í sér að gera þyrfti breytingar hér á en með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar var Íslandi veitt undanþága frá þessu ákvæði. Að þessu leyti mun þriðji orkupakkinn því engin áhrif hafa á gildandi réttar- umhverfi hér á landi og er þar með búið að tryggja að ekki þurfi að gera breytingar þar á vegna innleiðingar- innar. Það liggur hins vegar fyrir að gera þarf ákveðnar breytingar á raforkulögum og lögum um Orkustofnun vegna innleiðingarinnar. Þær breytingar munu meðal annars tryggja frekara sjálfstæði Orkustofnunar með þeim hætti að ráðherra mun ekki geta gefið stofnun- inni fyrirmæli um úrlausn mála þrátt fyrir að Orku- stofnun muni enn heyra undir yfirstjórn ráðherra. Þá mun ACER jafnframt hafa ákveðnar valdheimildir gagnvart Íslandi sem munu þó einungis virkjast þegar eftirlitsstofnanir innan EFTA-ríkjanna geta ekki náð samkomulagi um tiltekin atriði. Jafnframt hefði ACER heimildir til þess að beina óbindandi tilmælum og álit- um gagnvart Íslandi. Það er jafnframt mikilvægt að hafa í huga að EES- samningurinn felur í sér eina mestu réttarbót sem íslenskt samfélag hef- ur innleitt. Samningurinn hefur tryggt Íslandi fullan aðgang að innri markaði Evrópu en þó með þeim takmörkunum sem taldar voru nauðsynlegar á sínum tíma sem að- allega varða sjávarútveg. Það er ekkert launungarmál að Ísland hefði líklega aldrei náð að landa slíkum samningi án þess að hafa verið í samstarfi með öðrum stærri ríkjum þegar samningurinn var gerður. Ef Alþingi tryggir ekki inn- leiðingu þriðja orkupakkans hér á landi gæti það sett EES-samstarfið í uppnám. Það er þó morgunljóst að EES-samningurinn hefur og mun áfram fela í sér ákveðið valdframsal til al- þjóðastofnana. Slíkt valdframsal þarf hins vegar ekki að þýða að vegið sé að fullveldi íslensku þjóðarinnar. Þvert á móti er það ákveðin viðurkenning á fullveldi Íslands að önnur ríki líti á þjóðina sem sjálfstæðan samningsaðila við gerð alþjóðasamninga. Til að koma í veg fyrir frekari réttaróvissu að þessu leyti væri þó æskilegt að breyta stjórnarskrá Íslands að því leyti að mælt væri skýrt fyrir um heimild Íslands til þess að framselja vald til alþjóðastofnana. Slíkt valdframsal er einfaldlega mikilvægur þáttur í EES-samstarfinu og ekkert annað en eðlilegt í alþjóðlegu samstarfi á milli fullvalda þjóða. EES-samstarfið í uppnámi? LÖGFRÆÐI Ari Guðjónsson lögmaður og yfirlögfræðingur Icelandair Group ” Ef Alþingi tryggir ekki innleiðingu þriðja orkupakkans hér á landi gæti það sett EES-samstarfið í uppnám. Meira til skiptanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.