Morgunblaðið - 03.01.2019, Side 16
SKEMMTILEGA HAGKVÆMT
WOWAIR.IS
FLJÚGÐUOFTAR
FYRIRMINNA
MEÐWOWAIR
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Smáratívolíi lokað og Sleggjan seld
Móðurfélag Toys ’R’ Us gjaldþrota
Óverðtryggð lán stóraukast
Íslenskt kjöt í allar wellington-steikur
Mikill meirihluti lántaka leitar nú í …
Mest lesið í vikunni
INNHERJI SKOÐUN
Icelandair Group hefur undirritað
samning við SMBC Aviation Capital
um sölu og endurleigu á tveimur Bo-
eing 737 MAX flugvélum til viðbótar
við þær tvær vélar sem tilkynnt var
um sölu og endurleigu á rétt fyrir
áramót. Þetta staðfestir forstjóri fé-
lagsins, Bogi Nils Bogason, í samtali
við ViðskiptaMoggann.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að leigusamningarnir séu til tæp-
lega níu ára og með þessu hafi fé-
lagið nú lokið fjármögnun á öllum
sex Boeing 737 MAX flugvélum
sem félagið muni fá til afhendingar
frá Boeing árið 2019 en hinar þrjár
vélarnar voru fjármagnaðar með
samningi um sölu og endurleigu við
BOCOMM Leasing Aviation.
Borga 8,4 milljarða 15. janúar
Í tilkynningunni kemur einnig
fram að Icelandair Group muni
borga upp skuldabréf samtals að
fjárhæð 71 milljón bandaríkjadalir,
eða um 8,4 milljarðar íslenskra
króna, þann 15. janúar nk., enda
hafi nægur hluti skuldabréfaeig-
enda, að upphæð 190 milljónir dala,
samþykkt tillögur félagsins um
breytingar á skilmálum skulda-
bréfsins. Þá gangi tillaga til skulda-
bréfaeigenda að fjárhæð 23,6 millj-
ónir dala, út á það sama.
„Ofangreindar aðgerðir eru í takt
við stefnu félagsins um að hafa
ávallt til staðar sterka lausa-
fjárstöðu og sveigjanlegan efna-
hagsreikning. Í árslok 2018 var fé-
lagið með ríflega 250 milljónir USD
í handbært fé. Auk þess á félagið 40
óveðsettar flugvélar. Félagið er því
vel í stakk búið til að takast á við
sveiflur í rekstrarumhverfinu og
grípa þau tækifæri sem kunna að
skapast,“ segir Bogi Nils í tilkynn-
ingunni.
Icelandair mun fá sex Boeing 737 MAX flugvélar afhentar á þessu ári.
Max vélar allar
fjármagnaðar
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Icelandair er nú vel í stakk
búið til að takast á við sveifl-
ur í rekstrarumhverfinu, að
mati forstjóra félagsins.
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjár-málakerfið hér á landi var fjallað
um vandamál íslensks hlutabréfamark-
aðar. Þar fer Ásgeir Jónsson, dósent í
hagfræði, yfir sjö leiðir til að efla virkni
fjármálamarkaða. Ein þeirra lýtur að
því að auka þátttöku almennings á fjár-
málamarkaði.
Er þar meðal annars vísað til þessað upphaflega hafi fyrirtæki á
hlutabréfamarkaði verið kölluð al-
menningshlutafélög. Án þess að vera
að hvetja til mikillar áhættutöku al-
mennings eða lítilla fjárfesta stendur
samt sem áður enginn hlutabréfa-
markaður undir nafni án þess að al-
menningur eigi þar hlut að máli. En
tiltrú almennra fjárfesta á íslenskum
hlutabréfamarkaði glataðist í hruninu
árið 2008. Því er ekki úr vegi að mati
Ásgeirs að gefa skattalega hvata til al-
mennings til þess að kaupa hlutabréf,
líkt og tíðkaðist er markaðurinn var
byggður upp á 10. áratug síðustu aldar.
Í dag er skattur á fjármagnstekjur22%. Í opinberri umræðu, sem í
auknum mæli hefur einkennst af mik-
illi pólariseringu, hefur þessi tala oft
verið nefnd sem nokkurs konar and-
stæða við almennan tekjuskatt sem er
36,94% á tekjur undir 927.087 krónum.
En skilvirkur verðbréfamarkaður get-
ur einnig verið mikilvægur valkostur
fyrir sparifjáreigendur til að ávaxta fé
sitt sem þegar hefur verið greiddur
tekjuskattur af. Og í því ljósi er hægt
að nálgast umræðuna á þeim grund-
velli að um tvær mismunandi hliðar á
sama pening sé að ræða í stað þess að
skipta fólki í fylkingar.
Tvær hliðar á
sama peningÞótt flestar vísitölur bendi til aðfrelsi í heiminum hafi aukist
hina síðari áratugi hefur hið upp-
lýsta samfélag Vesturlanda einnig
haft lag á því að gera hlutina leið-
inlegri en áður. Það birtist í sífellt
háværari kröfum um að banna hitt
og þetta, einkum það sem sérfræð-
ingar telja að fólki standi ógn af. Það
er ekki gengið svo langt að þeir
leggi til að fólkið sjálft sé bannað –
þótt oft geti það verið sjálfu sér
hættulegt – en bannið snýr að
skertu aðgengi að tóbaki og áfengi
og þá má fitan ekki vera trans né
sykurmagnið svo mikið að bragð sé
að.
Og einhverjir tóku að ókyrrastað því er virtist í hópi
björgunarsveitargarpa þegar um-
ræðan um loftgæði og flug-
eldasprengingar náði nýjum hæð-
um. Virtust sumir þeirra óttast að
hinar vösku sveitir myndu missa
vænan spón úr aski þegar fólk stein-
hætti að kaupa púðurkerlingar og
kínverja í styrktarskyni við hið
merka og góða starf. Af þeim sökum
var bryddað upp á þeirri nýjung að
fólk sem kæmi á vettvang til að
kaupa flugelda gæti þess í stað
keypt græðling sem svo myndi á
nokkrum árum „skjótast upp úr“
grassverðinum án þess að verða
nokkrum til ama eða tjóns.
En allt kom fyrir ekki. Landinnsprengdi og sprengdi eins og
hann ætti lífið að leysa. Gervitungl
stórveldanna greindu ósköpin öll og
ef ekki hefði verið fyrir dagsetn-
inguna og reynsluna af þessari
skrítnu þjóð hefðu leyniþjónustur
eflaust talið að stríð hefði brotist út
við heimskautsbaug. En það sem
gerðist einnig var að fólk kom í
auknum mæli kolefnisjafnað út úr
þessu tilstandi öllu saman.
Hinir hörðustu sprengjumennvirtust finna frið í því að taka
með sér græðling eða tvo, ásamt
tertum og rakettum sem síðar fuðr-
uðu upp í andrúmsloftinu nokkrum
tímum síðar. Það kom í ljós að for-
svarsmenn björgunarsveitanna
nýttu neikvæða umræðu um stærstu
fjársöfnun ársins og sneru henni sér
í hag. Enn seldust bomburnar býsna
vel og ný vara, vísir að tré, eins og
heitar lummur einnig. Björgunar-
sveitirnar stálu í blálok keppninnar
titlinum um markaðsmann ársins.
Markaðsmaður ársins
Vaxandi óstöðugleiki
innan evrusvæðisins
gæti leitt til þess að
það liðaðist í sundur
að mati hugveitu.
Gæti liðast í
sundur á árinu
1
2
3
4
5
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON