Morgunblaðið - 28.01.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.01.2019, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JANÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er að mörgu að hyggja þegar samningar eru gerðir. Líttu á björtu hlið- arnar og þá sérðu að margt er í góðu lagi. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert undir miklu álagi og kannt illa að verja þig. Gættu þess bara að ganga ekki of langt og brjóta á öðrum. Stutt frí getur gert kraftaverk. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er mikil hætta á óhöppum og hvers kyns misskilningi þessa dagana. Þú hefur verið upptekin/n síðustu vikur og látið vinina sitja á hakanum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Lærðu að greina á milli þess sem þú þarfnast og þess sem þú getur verið án. Njóttu þess að vera samvistum við þá sem þú elskar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gefstu ekki upp á því að leggja góð- um málstað lið þótt leiðin sé þyrnum stráð og þér finnist lítið miða áfram. Láttu eng- an draga úr þér kjark. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það vefst eitthvað fyrir þér að taka ákvörðun um framhaldið í erfiðu máli. Feimni er ekki vænleg til árangurs í ásta- málum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Segðu hug þinn og það mun koma þér á óvart hversu margir eru sammála þér. Peningar streyma að þér úr öllum átt- um. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Áætlanir þínar um ferðalög og framhaldsnám líta ekki vel út í dag. Sestu niður og ræddu við þá sem reynsluna hafa. Þú færð skemmtilegt símtal. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú reynir að halda huganum opnum, en getur samt ekki neytt þig til að samþykkja allt sem þú verður vitni að. Ekki leyfa gremjunni að krauma innra með þér. Hún fer verst með þig sjálfa/n. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefur lagt hart að þér og átt nú skilið að lyfta þér aðeins upp og njóta þín. Þegar þú veist ekki hvaðan á þig stendur veðrið er allt í lagi að taka sér tíma til að hugsa hlutina. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þið ættuð að breyta eitthvað til í dag því fátt er jafnniðurdrepandi og að hjakka alltaf í sama farinu. Þráðurinn er eitthvað stuttur í einhverjum nálægt þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Góður vinur getur veitt þér mikil- vægan stuðning í dag. Forðastu að taka mikilvægar ákvarðanir og farðu varlega í samskiptum við börn. Kjaraviðræður sem nú standa yfirsnúast öðru fremur um stóru breyturnar í hagkerfinu og hvort svigrúm sé til þess að launþegar fái ofurlítið stærri sneið af þjóðarkök- unni, en þegar henni var síðast skipt. Þetta má kalla söguna endalausu; sú skipting á gæðum samfélagsins sem sæmileg sátt getur skapast um er endalaust viðfangsefni. En fleira er matur en feitt kjöt, eins og stundum er sagt. Þótt mikilvægt sé að tryggja almenningi sem flestar krónur í launaumslagið má auka lífsgæðin með ýmsu öðru móti og til þess að gera einföldum aðgerðum. Ætla verður hins vegar að slík mál hrein- lega gleymist þegar kemur að því að loka stóru samningum sem snerta líf hvers einasta mannsbarns. x x x Oft hefur verið sagt að frí áfimmtudegi að vori, það er á sumardaginn fyrst og uppstigningar- dag, sé skynsamlegt að færa að helginni; svo útkoman verði góð þriggja daga fríhelgi. Margvíslegt óhagræði leiði af því að þorri vinn- andi fólks taki sér hlé frá störfum einn virkan dag. Ræðir þar um daga sem áður fyrr höfðu sennilega meira vægi en nú í íslensku samfélagi, sem hefur breyst afar hratt á undan- förnum árum. Sannarlega er virð- ingarvert að fagna sumri og upprisu frelsarans, með vísan til tveggja fyrr- nefndra daga, en líka alveg frábært að lengja helgarnar svo úr verði gæðastundir fjölskyldna sem geta gert eitthvað skemmtilegt saman á vordögum. x x x Átak í húsnæðismálum sem er inn-legg stjórnvalda í kjaraviðræð- urnar og var kynnt í síðustu viku er sömuleiðis stórgott. Tillögur sem fyr- ir liggja hafa fengið góðar viðtökur, þó að útfærslur og framkvæmd séu eftir. En gott og vel; að mati Víkverja er fráleitt að húsnæðisbasl Íslend- inga sé lögmál. Í ævisögum margra kynslóða eru hrakfallasögur af kjall- araholum, naglhreinsun, verðtrygg- ingardraugum og leiguokri áberandi og eru gjarnan efni í 3-4 kafla sög- unnar. Heilbrigðara ástand í hús- næðismálum gæti skapað nýja bók- menntahefð. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér getur ekki verið lærisveinn minn.“ (Lúk: 14.27) Við notum ekki MSG í súpuna okkar. Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins. Súpan er fullelduð og aðeins þarf að hita hana upp Sigmundur Benediktsson yrkir áLeir og kallar „Andavanda“: Andinn skoppar sæll með sig, síst hann teppir þvaður, ennþá hoppar upp um mig eins og seppi glaður. Stundum grettinn göslast stig, gerir spottið dapurt. Ýmist glettinn opnar sig eða glottir napurt. Ingólfur Ómar var með á nót- unum: Frjór að vanda kveða kann kvæðagand ei hemur. Þegar andinn yfir hann eins og fjandinn kemur. Sigmundur tók þessu vel og sagð- ist reyna að beisla andann, hvaðan sem hann blési! Gjóstur veðra garra æsir græðispínu ræðari. Ef úr neðra andinn fnæsir er hann sínu skæðari. Og áfram hélt hann: Óður lagast ekki minn andans jagast fleyið. Engan hagvöxt eflast finn ellin plagar greyi Fía á Sandi taldi að það ætti við um fleiri og setti „Æfina“ á Leirinn: Æfin líði alltof fljótt það er á hreinu Tíminn drepur dag og nótt dálítið í einu. Þó hreystin væri sjálfsagt sönn sem í arf við fengum. Alla nagar tímans tönn tíminn gleymir engum. Um ýmislegt má yrkja grín ef eitthvað skeður Best að yrkja um brennivín því brennivínið gleður. Ýmsa steypu yrki ég ógn er vísna sjórinn. Óðar en ég andann dreg allur klárast bjórinn. Ég fékk góðar vísur sendar eftir MH, Hvolsvelli. Fyrst er „Um brjóstvörn Seðlabankans“: Í bankanum ekki svo kynlegt að kraumi, í konum sá hluti af menningarstraumi. Því berlega synd, eru brjóstin á mynd. Svo framvegis skulu þau skoðuð í laumi. Síðan er „Þorrahugur“: Veganistar vilja gras og venjast fæði þunnu. Aðrir fá sér gott í glas og gallsúrt uppúr tunnu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Andleysi eða andagift „meÐ ÞESSARI FRAMVINDU MUNTU ALDREI FLYTJA ERINDI Á TED TALK.” „ég HELD AÐ „óstaÐsettur í hús” sé ekki áhrifaríkt í lánaumsókn.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... kryddið í tilveruna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „þú þarft aÐ BRENNA HITA- EININGUM TIL ÞESS AÐ LÉTTAST” AÐ LIGGJA BRENNIR NÚLL EININGUM! „AÐ GANGA EINN KÍLÓMETRA BRENNIR 100 HITAEININGUM. SUND BRENNIR 500 Á KLUKKUSTUND” HVERU MÖRGUM BRENNI ÉG VIÐ AÐ SLÁ ÞIG MEÐ MEGRUNAR- BÓKINNI? AFGREIÐSLUMAÐURINN Á MARKAÐNUM SETTI ÓVART AUKAMAT Í KÖRFUNA HJÁ MÉR! SAGÐIRÐU EKKI EITTHVAÐ? AÐ SJÁLFSÖGÐU! OG ÉG SKILAÐI HONUM MATNUM UMSVIFALAUST! EN VIRÐINGARVERT! ÉG ER STOLT AF ÞÉR HRÓLFUR! EKKI SÉNS AÐ ÉG KOMI HEIM MEÐ NÆPUR!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.