Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 3
VERSLUNARSTJÓRI
Málningarverslun
Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar nk.
RÁÐUM EHF • Ármúla 4-6, 108 Reykjavík • Sími 519 6770 • radum@radum.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum, agla@radum.is
og Vigfús Gunnar Gíslason hjá Flügger í síma 892 4452.
Flügger sem verslar með iðnaðarmannavöru og þjónustar viðskiptavini varðandi ráðgjöf
og vörukaup óskar eftir að ráða verslunarstjóra í aðalverslun sína á Stórhöfða 44 í Reykjavík.
Starfið felur í sér daglegan rekstur verslunarinnar, en í því felst m.a. innkaup og pantanir, uppgjör, mannaforráð og
annað sem tilheyrir starfinu.
Leitað er að ábyrgðarfullum aðila sem hefur brennandi áhuga á að ná árangri, er með gott tengslanet, rekstrarþekkingu,
reynslu af innkaupum, reynslu af mannaforráðum og mikla hæfni í samskiptum. Reynsla af verslunarrekstri er kostur.
Flügger á Íslandi rekur 6 verslanir víðs vegar um landið
en höfuðstöðvarnar eru í Danmörku og eru verslanir
Flügger rúmlega 550.
Verslanirnar eru staðsettar í Danmörku, Svíþjóð, Noregi,
Póllandi, Íslandi og í Kína. Flügger byggir afkomu sína
á sölu til fagmanna. Hjá Flügger starfa málarar auk
annarra starfsmanna sem koma að þjónustu og ráðgjöf
til viðskiptavina.
Umsækjendur eru vinsam legast beðnir að sækja
um starfið á heimasíðu Ráðum www.radum.is.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
RAFMAGNAÐUR VINNUSTAÐUR
Við erum að leita að frábæru fólki til að vinna með okkur í aðfangakeðju Landsnets. Um er að ræða tvö störf á fjármálasviði sem
gefur áhugasömum einstaklingum tækifæri til þess að vaxa í starfi og auka hagkvæmni í rekstri okkar.
Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2019.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Kári Júlíusson mannauðssérfræðingur, sími: 563-9300,
netfang: mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á
heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
Við vinnum fyrir þig
Við erum þjónustufyrirtæki – við vinnum fyrir þig í takt við samfélagið og höfum sett okkur það
markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við viljum vera eftirsóknarverður
vinnustaður þar sem umhyggja og öryggi er haft í hávegum. Þannig sköpum við góðan vinnustað
með spennandi verkefnum, með gildin okkar – samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi.
Starfsmaður á lager
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Móttaka og afhending á vörum
• Skráning í birgðakerfi
• Talningar
• Umsjón með umgengni lagersvæða
• Umsjón með tækjum lagers og útlánum.
• Móttaka spilliefna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Haldbær reynsla af lagerstörfum
• Iðnnám kostur
• Þekking á rafmagnsvörum kostur
• Lyftara- og meirapróf er kostur
Sérfræðingur í innkaupum
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Umsjón með innkaupum undir viðmiðunarfjárhæðum opinberra
innkaupa og samskipti við birgja
• Umsjón með rafrænu útboðskerfi Landsnets
• Umsjón með innkaupakerfi Landsnets
• Umsjón með gæðaferlum innkaupa
• Þátttaka í framkvæmdaútboðum
• Innkaupagreiningar, tölfræði og mælingar
• Gerð samninga, samningsstjórnun og kostnaðareftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af innkaupum
• Þekking á gæðakerfum er kostur
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Þjónustulund
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
!
"#$
!%&