Morgunblaðið - 19.01.2019, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019
Viltu búa í öflugu sveitarfélagi
í nágrenni við náttúruperlur?
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar
Forstöðumaður óskast til starfa á í nýrri þjónustumiðstöð Langanesbyggðar
á Þórshöfn. Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og kraftmiklum
einstaklingi til að takast á við ögrandi og spennandi verkefni.
Hlutverk forstöðumanns þjónustumiðstöðvar Langanesbyggðar:
• Stýrir og ber ábyrgð á starfi þjónustumiðstöðvar og mannahaldi
• Hefur yfirumsjón með verklegum framkvæmdum í sveitarfélaginu
• Undirbýr fjárhagsáætlanir og þriggja ára áætlanir stofnunarinnar
• Gerir tillögu að verkefnum, forgangsröðun og gerir kostnaðaráætlanir
• Er yfirmaður húseigna sveitarfélagsins
• Hefur umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins
• Önnur störf svo sem verkstjórn á vinnusvæðum og útivinna
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun á sviði mannvirkjagerðar æskileg
• Góð þekking á undirbúningi verkefna og eftirfylgni
• Skipulagsfærni og færni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
• Góð þekking á forritum svo sem EXCEL, WORD og Navision
• Sjálfstæð vinnubrögð, talnaskilningur og rökfesta
Nánari upplýsingar veitir:
Elías Pétursson, sveitarstjóri
S: 468 1220 og 892 0989 - elias@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2019,
æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Umsókn um starfið skal senda í netfangið
langanesbyggd@langanesbyggd.is og skal henni fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Langanesbyggð er öflugt og vaxandi
sveitarfélag með spennandi framtíðarmögu-
leika. Í Langanesbyggð eru tveir byggðar-
kjarna; Þórshöfn og Bakkafjörður.
Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskyldu-
vænu umhverfi en í sveitarfélaginu öllu eru
tæplega 500 íbúar. Gott íbúðarhúsnæði er til
staðar og öll almenn þjónusta. Á staðnum er
góður grunnskóli, leikskóli og glæsileg
íþróttamiðstöð með sundlaug. Í þorpinu er
mikið og fjölbreytt félagslíf, s.s. leikfélag,
kirkjukór, öflugt ungmennafélag, björgunar-
sveit, kvenfélag o.m.fl. Samgöngur eru góðar,
m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur
um Akureyri.
Í sveitarfélaginu eru margar helstu náttúru-
perlur landsins og ótal spennandi útivistar-
möguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir og
tækifæri til stang- og skotveiði.
Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af
báðum kynjum, með margs konar menntun
og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun
Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur
hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Langanesbyggð,
Fjarðarvegi 3,
680 Þórshöfn
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun
· Reynsla af starfi í leikskóla
kopavogur.is
Lækur er sex deilda leikskóli. Í Læk er lagt upp með lýðræðislega nálgun í starfi með börnunum.
Lækur er vináttuleikskóli sem vinnur með Blæ-vináttuverkefni í samvinnu við Barnaheill. Allar deildir
vinna með námsefnið Lubbi finnur málbein. Leikskólinn er staðsettur í Kópavogsdal þar sem stutt er í
góð og skemmtileg útivistarsvæði á öllum árstímum.
Einkunnarorð leikskólans eru sjálfræði, virðing og hlýja.
Ráðningartími og starfshlutfall
Starfið er laust nú þegar. Starfshlutfall er 100%
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun
· Reynsla af starfi í leikskóla
· Reynsla af stjórnun æskileg
· Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni
· Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
· Gott vald á íslenskri tungu
· Góð tölvukunnátta
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FSL.
Unnið er samkvæmt starfslýsingum Félags stjórnenda leikskóla en starfslýsingar má finna á http://ki.is
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Kristín Laufey Guðjónsdóttir leikskólastjóri, kristinlaufey@kopavogur.is sími 441 5900 / 840 2685
Guðrún Bjarnadóttir leikskólaráðgjafi, gudrunb@kopavogur.is sími 441 0000 / 860 9166
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Aðstoðarleikskólastjóri
í Læk
www.hagvangur.is
Ný tækifæri,
nýjar áskoranir!
Fasteignaverð á höfuðborg-
arsvæðinu hækkaði um 6,2%
milli 2017 og 2018 sem er
minnsta hækkun frá árinu
2011. Það er mikil breyting
frá árinu 2017 þegar verð
hækkaði um 18,9%. Verð á
fjölbýliseignum hækkaði um
5,4% milli 2017 og 2018 og
verð á sérbýli hækkaði um
7,9%. Verðhækkanir urðu
mestar á seinni hluta ársins.
Þetta kemur fram í pistli á
Hagsjá Landsbanka Íslands.
Þrátt fyrir verulega minni
verðhækkanir á síðasta ári
en fyrri ár hefur raunverð
íbúðarhúsnæðis verið nokkuð
stöðugt og raunar skriðið að-
eins upp á við. Raunverð
íbúðarhúsnæðis hefur aldrei
verið hærra en var í nóv-
ember síðastliðnum. Hæst
fór raunverðið í október 2007
fyrir hrun en lækkaði svo
mikið. Það náði aftur sama
stigi í apríl 2017 og síðan
hefur það hækkað um 8,7%.
Verulega hefur hægt á árs-
hækkun raunverðs síðustu
mánuði. Þannig var raunverð
fasteigna nú í desember um
3,1% hærra en í desember
2017.
„Hækkun fasteignaverðs
milli áranna 2017 og 2018 um
6,2% er sú minnsta allt frá
árinu 2010 þegar verðið
lækkaði um 3,8% milli ára,“
segir Landsbankinn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Breiðholt Fasteignamarkaðurinn leitar nú til jafnvægis.
Litlar hækkanir
Fasteignamarkaður hægir á
sér Raunverðið er stöðugt
Undirritaður var í gær, föstu-
dag, samningur á milli Skóg-
ræktarinnar og Vatnajökuls-
þjóðgarðs um umsjón Ás-
byrgis í Kelduhverfi.
Samkvæmt samningnum mun
formleg umsjón jarðarinnar
allrar og mannvirkja á henni
færast frá Skógræktinni til
Vatnajökulsþjóðgarðs. Þess-
ar tvær stofnanir munu engu
að síður áfram eiga með sér
samstarf um innri hluta Ás-
byrgis og land norðan þjóð-
vegar.
Jörðin Ásbyrgi, eða Byrgi
eins og hún hét áður, á sér at-
hyglisverða sögu. Lengi vel
var hún eign Ásverja og hluti
af Ási, en síðar meir sjálfstæð
bújörð. Árið 1907 komst Ás-
byrgi í eigu athafnamannsins
og stórskáldsins Einars
Benediktssonar, ásamt jörð-
inni Ási. Talið er að með
kaupunum hafi hann viljað
tryggja sér vatnsréttindi í
Jökulsá á Fjöllum, en þó voru
engin slík réttindi sem fylgdu
Ásbyrgi. Einar seldi jarðirnar
haustið 1923 og þremur árum
síðar komst Ásbyrgi í eigu
Kelduneshrepps. Hreppurinn
seldi jörðina til ríkissjóðs árið
1928 og var hún upp frá því í
umsjá Skógræktar ríkisins,
segir í frétt frá Vatnajökuls-
þjóðgarði.
Þjóðgarðurinn í Jökuls-
árgljúfrum var stofnaður
1973. Ásbyrgi var þá utan
þjóðgarðs, en varð hluti af
honum árið 1978 með sam-
vinnusamningi milli þáver-
andi Náttúruverndarráðs og
Skógræktar ríkisins. Hélst sá
samningur óbreyttur er Þjóð-
garðurinn í Jökulsárgljúfrum
færðist undir Vatnajökuls-
þjóðgarð árið 2008.
Unnið að deiliskipulagi
Samningurinn sem undir-
ritaður var í dag mun ekki
hafa í för með sér neinar
grundvallarbreytingar fyrir
starfsemi í Ásbyrgi. Þó er
viðbúið að hann muni einfalda
ýmsa ferla, svo sem vegna
gerðar nýs deiliskipulags sem
hefur verið í pípunum í þó-
nokkurn tíma, skv. tilkynn-
ingu. sbs@mbl.is
Undirritun Frá vinstri Magnús Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
umhverfisráðherra og Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri.
Semja um Ásbyrgi
Vatnajökulsþjóðgarður tekur
við af Skógrækt Einfaldað
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ásbyrgi Eyjan er fögur.