Morgunblaðið - 21.01.2019, Side 2
Eitt
ogannað
Sverrir Ingi Ingason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, gæti verið á för-
um frá Rússlandi. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er gríska
félagið PAOK í viðræðum við Rostov
um kaup á miðverðinum. Í grískum
fjölmiðlum er fullyrt að PAOK sé
reiðubúið að greiða 4 milljónir evra
fyrir Sverri sem kom til Rostov sum-
arið 2017 og er samningsbundinn til
ársins 2020.
Knatt-
spyrnumaðurinn
Kjartan Henry
Finnbogason er
genginn til liðs við
danska úrvals-
deildarfélagið
Vejle í Danmörku
en þetta staðfesti
félagið á Twitter-
síðu sinni í gær. Kjartan skrifaði undir
eins árs samning við Vejle en hann
gekk til liðs við ungverska liðið Fe-
rencváros síðasta sumar en hann átti
ekki fast sæti í liðinu á þessari leiktíð.
Fleiri lið sýndu Kjartani áhuga en hann
var með tilboð frá liðum í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð en ákvað að snúa
aftur til Danmerkur. Hann lék með
Horsens í fjögur ár á árunum 2014 til
2018.
Martin Hermannsson og liðsfélagar
hans í Alba Berlín eru komnir í úrslit
þýska bikarkeppninnar í körfuknattleik
eftir öruggan 105:70-sigur gegn
Frankfurt í undanúrslitum í Frankfurt í
gær. Alba Berlín spilaði frábærlega í
fyrri hálfleik og lagði þar með grunn-
inn að góðum sigri en liðið leiddi með
28 stigum í hálfleik. Martin spilaði í
rúmar tuttugu mínútur og skoraði 7
stig og gaf þrjá stoðsendingar. Alba
Berlín mætir Bamberg í úrslitaleiknum
hinn 17. febrúar næstkomandi.
Arnari Þór Viðarssyni hefur verið
sagt upp störfum hjá belgíska knatt-
spyrnuliðinu Lokeren samkvæmt sjón-
varpsfréttum í Belgíu í gærkvöld. Arn-
ar hefur undanfarin ár verið
aðstoðarþjálfari liðsins en þjálf-
aranum, Trond Johan Sollied frá Nor-
egi, var einnig sagt upp. Sollied fékk
ekki langan tíma því hann var ráðinn
til starfa í lok október. Glen De Boeck
tekur við liðinu. Arnar tók við liðinu
tímabundið þegar Peter Maes var rek-
inn í október en það stóð einungis í
tvo daga. Arnar er nýráðinn þjálfari
U-21 árs landsliðs karla í knattspyrnu.
Hann er uppalinn hjá FH en hefur verið
lengi hjá Lokeren í Belgíu, áður sem
leikmaður.
James Harden hélt uppteknum
hætti um helgina í sigri Houston Roc-
kets á LA Lakers í framlengdum leik,
138:134. Harden skoraði 48 stig sem
er reyndar það minnsta hjá honum í
síðustu þremur leikjum, en hann hefur
nú gert 30 stig eða meira í 19 leikjum í
röð. Aðeins goðsögnin
Wilt Chamberlain hef-
ur gert betur en það í
sögu NBA. Þá hefur
Harden gert 163 stig í
síðustu þremur
leikjum Houston,
48, 57 og 58, og
það er hæsta
skor í þremur
leikjum í deildinni
síðan Kobe
Bryant gerði 175
stig í þremur
leikjum fyrir La-
kers í mars 2007.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Í LAUGARDAL
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Aníta Hinriksdóttir og Guðbjörg
Jóna Bjarnadóttir, fremstu hlaupa-
konur Íslands í dag, settu báðar
mótsmet á Stórmóti ÍR í Laug-
ardalshöll í gær.
Guðbjörg kom fyrst í mark í 200
metra hlaupi er hún hljóp á 24,09
sekúndum. Tíminn er sá besti innan-
húss hjá Guðbjörgu, en hún var 0,4
sekúndum frá Íslandsmeti Silju Úlf-
arsdóttur. Guðbjörg, sem átti algjört
draumaár í fyrra, sagðist í samtali
við Morgunblaðið staðráðin í að
bæta Íslandsmet Silju á árinu, en
Guðbjörg á Íslandsmetið utanhúss.
Þórdís Eva Steinsdóttir varð önnur
á 24,59 sekúndum, sem er hennar
besti árangur innanhúss. Guðbjörg
kom einnig fyrst í mark í 60 metra
hlaupi á 7,58 sekúndum.
Aníta hljóp 800 metra á 2:05,98
mínútum og var með mikla yf-
irburði, eins og við mátti búast. Tím-
inn er nokkuð frá besta tíma Anítu,
en hún var að hlaupa í fyrsta skipti
síðan í ágúst. „Fyrsta hlaup ársins
er gott til að ná skrekknum og
stressinu úr sér, svo ég verði til-
búnari fyrir næstu hlaup. Ég verð
meira á heimavelli í næstu hlaupum.
Mér leið ágætlega þangað til ég sá
tímann eftir fyrsta hring og átti mig
á því hversu hægt hlaupið var. Tím-
inn var ekki góður,“ sagði Aníta við
Morgunblaðið eftir hlaupið.
Íslandsmethafinn í langstökki,
Hafdís Sigurðardóttir, gerði ógilt í
fyrstu tveimur stökkum sínum í
langstökki kvenna. Hún örvænti
hins vegar ekki og stökk lengst 6,49
metra, sem er nýtt mótsmet. Hafdís
er að nálgast sitt besta form og var
hún aðeins fimm sentímetrum frá
sínum besta árangri innanhúss. Haf-
dís varð Íslandsmeistari síðasta
sumar, einu ári eftir að hún eignaðist
barn. Hún sagði í kjölfarið við Morg-
unblaðið að hún setti stefnuna á að
vera í góðu formi fyrir innan-
hússtímabilið í vetur, sem virðist
raunin. Hafdís hafnaði einnit í 2.
sæti í 60 metra hlaupi. María Rún
Gunnlaugsdóttir varð önnur í lang-
stökkinu með stökk upp á 5,71
metra. María Rún átti gott mót og
vann kúluvarp, hástökk og 50 metra
grindahlaup.
Hildigunnur Þórarinsdóttir vann
þrístökkið með 11,67 metra stökki
og María Birkisdóttir, sem hafnaði í
öðru sæti í 800 metra hlaupi, vann
1500 metra hlaupið á tímanum
5:03,02 mínútum.
Í karlaflokki setti Jóhann Björn
Sigurbjörnsson mótsmet í 60 metra
hlaupi er hann kom í mark á 6,93
sekúndum og bætti sinn besta ár-
angur í leiðinni. Jóhann kom einnig
fyrstur í mark í 200 metra hlaupi á
tímanum 22,08 sekúndum. Sæmund-
ur Ólafsson var sterkastur í 800
metra hlaupi og hljóp á 1:53,72 mín-
útu. Sæmundur varð að sætta sig við
þriðja sætið í 400 metra hlaupi.
Hann kom tæpri sekúndu á eftir
Hinriki Snæ Steinssyni sem vann á
50,19 sekúndum. Ari Sigþór Eiríks-
son stökk hæst í stangarstökki eða
4,18 metra, Kristinn Torfason vann
langstökk með 7,18 metra stökki og í
hástökki stökk Bjarki Rúnar Krist-
insson 1,92 metra og fékk gull-
verðlaun fyrir.
Morgunblaðið/Eggert
Langfyrst Aníta Hinriksdóttir var með mikla yfirburði í 800 metra hlaupi á Stórmóti ÍR í Laugardalshöll í gær og vann á nýju mótsmeti.
Þær bestu settu mótsmet
Aníta Hinriksdóttir og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir fara vel af stað á árinu
Ísland hafnaði í 5. sæti í 3. deild
heimsmeistaramóts karla 20 ára
og yngri í íshokkí en mótinu lauk
í Skautahöllinni í Laugardal í
gær.
Ísland hafði betur gegn Taívan,
5:3, í leiknum um 5. sætið í gær.
Ísland vann fjóra leiki af fimm í
mótinu en tap gegn Tyrklandi í
síðasta leiknum í riðlinum gerði
vonir liðsins um að komast upp
um deild að engu.
Sölvi Atlason, Styrmir Maack,
Bjartur Gunnarsson, Einar Grant
og Axel Orongan skoruðu mörk
Íslands í gær og stoðsendingar
áttu Axel Orongan, Heiðar Krist-
veigarson, Einar Grant, Gunnar
Arason, Sigurður Þorsteinsson og
Ágúst Ágústsson.
Morgunblaðið/Eggert
Fögnuður Styrmir Maack fagnar marki sínu ásamt samherjunum gegn Taívan í Laugardalnum í gær.
Sigur gegn
Taívan í loka-
leiknum