Morgunblaðið - 21.01.2019, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
Olís-deild kvenna
ÍBV – Fram........................................... 23:31
Staðan:
Fram 13 9 1 3 376:309 19
Valur 12 9 1 2 300:240 19
ÍBV 13 7 1 5 320:314 15
Haukar 12 7 0 5 308:291 14
KA/Þór 12 5 1 6 280:293 11
Stjarnan 12 3 3 6 288:323 9
HK 12 3 1 8 255:318 7
Selfoss 12 1 2 9 288:327 4
EHF-bikar kvenna
A-riðill:
Esbjerg – Bietigheim .......................... 28:27
Rut Jónsdóttir lék ekki með Esbjerg.
Esbjerg 5, Bietigheim 4, Storhamar 3,
Magura Cisnadiei 0.
Danmörk
Skanderborg – Aarhus United .......... 21:19
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði ekki
fyrir Aarhus United.
HANDBOLTI
Í KÖLN
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Yngsta landslið sem Ísland hefur sent
til leiks á heimsmeistaramóti tapaði
með reisn fyrir heimsmeisturum
Frakka, 31:22, í öðrum leik sínum á
heimsmeistaramótinu í handknattleik
í Lanxess-Arena í Köln í Þýskalandi í
gærkvöld. Meðalaldur liðsins er 23,6
ár og lengi vel var meðalaldur þeirra
sem báru leik Íslands uppi ekki nema
ríflega 20 ár, þar voru þrír frændur
austan af Selfossi. Ungstirnið Haukur
Þrastarson lék stærstan hluta leiksins
sem leikstjórnandi. Hann skoraði tvö
mörk úr þremur skotum og vakti
frammistaða hans athygli meðal fólks
í Lanxess-Arena, jafnt áhorfenda sem
fjölmiðlamanna.
Franska liðið var fjórum mörkum
yfir í hálfleik, 15:11.
Þriðji og síðasti leikur Íslands í
milliriðlakeppninni verður við Bras-
ilíumenn á miðvikudag, einnig í Köln.
Leiksins í gærkvöldi verður minnst
fyrir að vera fyrsti stórmótsleikur
Hauks sem talinn er mesta efni á
handknattleikssviði karla í Evrópu.
Einnig verður hans minnst vegna þess
liðs sem Guðmundur Þórður stillti upp
sem er það yngsta sem leikið hefur
fyrir Ísland á HM. Svo má ekki
gleyma því að þrír náskyldir frændur
báru á köflum uppi sóknarleik ís-
lenska liðsins, Teitur Örn Einarsson,
Elvar Örn Jónsson og fyrrnefndur
Haukur. Þeir þekkjast vel utan vallar
sem innan og voru burðarásar liðs
Selfoss á síðasta keppnistímabili.
Eftir að Guðmundur Þórður varð að
gera breytingar á hópnum í gærmorg-
un vegna meiðsla Arons Pálmars-
sonar og Arnórs Þórs Gunnarssonar
var ekkert annað í spilunum fyrir
hann en að tefla fram þessu ungum
leikmönnum og fleirum sem hann er
með í hóp sínum. Hann átti ekki ann-
ars úrkosti og hikaði ekki við.
Segja má að kynslóðaskipti lands-
liðsins hafi endanlega verið innsigluð í
gærkvöld. Hér var komið framtíð-
arlandsliðs Íslands að viðbættum
e.t.v. einhverjum örfáum til viðbótar.
Það verður að minnsta kosti ekkert
áhlaupsverk fyrir menn að vinna sér
sæti í landsliðinu næstu árin eftir að
Guðmundur Þórður verður búinn að
móta það í sinni margumtöluðu
þriggja ára áætlun. Óhætt er að láta
sig hlakka til næstu ára og næstu stór-
móta með þessa vösku sveit.
Davíð og Golíat
Leikurinn byrjaði illa í gærkvöldi.
Engu var líkara en sviðsskrekkur
væri í mönnum. Sóknarleikurinn gekk
að mörgu leyti á afturfótunum.
Frakkar skoruðu sex fyrstu mörkin
eftir að hafa stillt upp stórskotaliði
sínu frá fyrstu mínútu. Allt leikmenn
sem hafa orðið heimsmeistarar meðan
nokkrir í íslenska liðinu hafa nýlokið
ökuprófi eða kvatt grunnskóla. Leik-
urinn var svo sannarlega viðureign
Davíð og Golíats nema hvað sá síð-
arnefndi vann að þessu sinni. Koma
tímar og koma ráð.
Eftir að leikmenn íslenska liðsins
fundu lokaleiðina að markinu kom
góður leikkafli fram að hálfleik þegar
munurinn var fjögur mörk, 15:11,
Frökkum í vil.
Upphafskafli síðari hálfleiks var
góður og framan af hélt íslenska liðið í
við Frakka. Þeir ráku af sér slyðru-
orðið um skeið og skoruðu fimm mörk
í röð og undirstrikuðu yfirburði sína.
Eftir það hélt franska liðið góðu for-
skoti til leiksloka.
Varnarleikur og markvarsla
Varnarleikur íslenska liðsins var
lengst af góður í gærkvöld í enn eitt
skiptið. Markvarslan var einnig prýði-
leg, sérstaklega gaman var að sjá
hversu öflugur Ágúst Elí Björg-
vinsson var í fyrri hálfleik og framan
af þeim síðari.
Sóknarleikurinn bar hins vegar
merki unggæðingsháttar. Margt
mátti á köflum fara betur en á stund-
um tókst vel til. Sem fyrr fór talsvert
af opnum færum og eins skorti á tíð-
um þolinmæði og að velja betri skot-
færi.
Strákarnir verða líka að fá að gera
mistök. Af þeim læra þeir og hvað er
betra en gera það gegn heimsmeist-
urunum sem hafa verið með besta
handboltalið heims í tvo áratugi. Hollt
og gott í banka reynslunnar.
Með leiknum í gær horfðu þjálfari
og leikmenn til framtíðar, framtíðar
sem óhætt er að hlakka til þótt margt
eigi eflaust eftir að ganga á. Enginn
verður óbarinn biskup.
AFP
Á línunni Arnar Freyr Arnarsson skorar gegn Frökkum í Lanxess Arena í Köln í gær. Arnar er í stóru hlutverki á HM bæði í vörn og sókn.
Horft til framtíðar
Meðalaldur íslenska landsliðsins sem mætti Frökkum á HM í gær var 23,6 ár
Níu af átján leikmönnum eru að taka þátt í HM í fyrsta sinn sem er met
MILLIRIÐILL I
Leikið í Köln, Þýskalandi:
Frakkland – Spánn............................... 33:30
Þýskaland – Ísland............................... 24:19
Brasilía – Króatía ................................. 29:26
Ísland – Frakkland............................... 22:31
Staðan:
Frakkland 4 3 1 0 113:99 7
Þýskaland 3 2 1 0 83:65 5
Króatía 3 2 0 1 80:75 4
Spánn 3 1 0 2 81:81 2
Brasilía 3 1 0 2 72:84 2
Ísland 4 0 0 4 93:118 0
Leikir í dag:
17.00 Spánn – Brasilía
19.30 Króatía – Þýskaland
MILLIRIÐILL II
Leikið í Herning, Danmörku:
Túnis – Svíþjóð .................................... 33:35
Kristján Andrésson þjálfar Svíþjóð.
Danmörk – Ungverjaland.................... 25:22
Ungverjaland – Túnis .......................... 26:21
Noregur – Egyptaland......................... 32:28
Staðan:
Danmörk 3 3 0 0 91:70 6
Svíþjóð 3 3 0 0 95:77 6
Noregur 3 2 0 1 92:82 4
Ungverjaland 4 1 1 2 108:109 3
Egyptaland 3 0 1 2 82:89 1
Túnis 4 0 0 4 90:131 0
Leikir í dag:
17.00 Svíþjóð – Noregur
19.30 Egyptaland – Danmörk
FORSETABIKARINN
Leikið í Köln og Kaupmannahöfn:
Keppni um sæti 13-16:
Rússland – Makedónía ........................ 30:28
Síle – Katar ........................................... 27:37
Keppni um sæti 17-20:
Serbía – Barein.................................... 32:27
Aron Kristjánsson þjálfar Barein.
Austurríki – Argentína....................... 22:24
Patrekur Jóhannesson þjálfar Austur-
ríki.
Keppni um sæti 21-24:
Kórea – Japan...................................... 27:25
Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
Sádi-Arabía – Angóla ........................... 34:29
Úrslitaleikir um sæti:
13-14: Rússland – Katar....................... 28:34
15-16: Makedónía – Síle ....................... 32:30
17-18: Serbía – Argentína.................... 28:30
19-20: Barein – Austurríki ................. 27:29
Aron Kristjánsson þjálfar Barein.
Patrekur Jóhannesson þjálfar Austur-
ríki.
21-22: Kórea – Sádi-Arabía ................. 26:27
23-24: Japan – Angóla......................... 29:32
Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
HM2019
Lanxess-Arena, Köln, milliriðlakeppni
HM, annar leikur sunnudag 20. janúar
2019.
Gangur leiksins: 0:2, 0:4, 2:7, 6:10,
8:13, 11:15, 14:17, 14:21, 16:23, 18:24,
19:27, 22:31.
Mörk Íslands: Elvar Örn Jónsson 5,
Sigvaldi Björn Guðjónsson 4, Teitur
Örn Einarsson 3, Haukur Þrastarson 2,
Bjarki Már Elísson 2, Ólafur Andrés
Guðmundsson 2, Ýmir Örn Gíslason 2,
Arnar Freyr Arnarsson 2.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 10,
Björgvin Páll Gústavsson 1.
Ísland – Frakkland 22:31
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Frakklands: Melvyn Richardson
5, Valentin Porte 5, Luc Abalo 4, Kent-
in Mahé 3, Timothey N’Guessan 2,
Ludovic Fabregas 2, Michaël Guigou 2,
Romain Lagarde 2, Vincent Gérard 2,
Mathieu Grébille 2, Dika Mem 1, Nikola
Karabatic 1.
Varin skot: Vincent Gérard 14/1, Cyril
Dumoulin 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Mattias Wetterwik og Mirza
Kurtagic, Svíþjóð.
Áhorfendur: 18.587.
Reykjavíkurmót karla
A-riðill:
Valur – Leiknir R ..................................... 1:1
Víkingur R. – Fjölnir ............................... 0:1
Fjölnir 12, Leiknir R. 4, Valur 4, Vík-
ingur R. 3, ÍR 0.
Reykjavíkurmót kvenna
Þróttur R. – KR........................................ 5:0
Valur 6, Þróttur 3, HK/Víkingur 3, Fjöln-
ir 3, KR 0, Fylkir 0.
Faxaflóamót kvenna
Keflavík – Selfoss ..................................... 0:1
Fótbolti.net mót karla
ÍA – FH ..................................................... 4:2
Grindavík – ÍBV ....................................... 2:1
Kjarnafæðismót karla
Völsungur – Þór........................................ 2:2
KA 2 – Leiknir F ...................................... 2:2
KA – Magni ............................................... 6:0
KNATTSPYRNA