Morgunblaðið - 21.01.2019, Síða 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2019
ENGLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Liverpool er enn með fjögurra
stiga forskot á toppi ensku úrvals-
deildarinnar í fótbolta eftir 4:3-
sigur á Crystal Palace á Anfield á
laugardaginn var í 23. umferðinni.
Manchester City svaraði með
öruggum 3:0-útisigri á botnliði
Huddersfield.
Fyrir umferðina var Liverpool
aðeins búið að fá á sig þrjú mörk á
heimavelli í deildinni. Crystal Pa-
lace vann hins vegar á Manchester
City á útivelli fyrr á leiktíðinni og
líður greinilega vel á heimavöllum
bestu liða deildarinnar. Það virðist
hins vegar litlu skipta hvað and-
stæðingar Liverpool gera eða
hvernig leikir liðsins þróast. Læri-
sveinar Jürgen Klopp finna nánast
alltaf leið til að ná í þrjú stig. Mo
Salah skoraði tvö mörk og er einn
markahæstur í deildinni með 16
mörk.
Botnlið Huddersfield var ekki
líklegt til að gera Liverpool neinn
greiða er Manchester City kom í
heimsókn og 3:0-sigur ríkjandi
meistaranna var fyrirsjáanlegur.
Manchester City er búið að vinna
sex leiki í röð í öllum keppnum og
síðustu fjóra með markatöluna
22:0. Manchester City er að gera
sitt, en á meðan Liverpool mis-
stígur sig ekki, er það ekki nóg til
að taka toppsætið.
Tottenham er enn fimm stigum
á eftir City, eftir nauman 2:1-
útisigur á Fulham. Harry Winks
skoraði sigurmarkið í uppbót-
artíma. Tottenham verður að öllum
líkindum ekki Englandsmeistari en
sigurinn var mikilvægur þar sem
Chelsea, Arsenal og Manchester
United eru öll í baráttu um sæti í
Meistaradeildinni, rétt fyrir neðan.
Arsenal og Chelsea mættust ein-
mitt á Stamford Bridge og vann
Arsenal afar verðskuldaðan 2:0-
sigur. United nældi einnig í þrjú
stig með 2:1-sigri á Brighton er
Manchester United búið að vinna
alla sjö leiki sína síðan Ole Gunnar
Solskjær tók við af José Mourinho.
Gylfi jafnaði Eið Smára
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði
mark Everton í 2:1-tapi á útivelli
fyrir Southampton. Gylfi er nú bú-
inn að skora 55 mörk í ensku úr-
valsdeildinni, jafnmörg og Eiður
Smári Guðjohnsen. Þeir eru nú
saman markahæstu Íslendingar
deildarinnar frá upphafi.
AFP
Markahæstur Mohamed Salah skoraði tvö mörk fyrir Liverpool gegn Crystal Palace og er einn markahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 16 mörk.
Markaveisla í Liverpool
Liverpool enn með fjögurra stiga forskot á City Salah einn markahæstur
Sjöundi sigurinn hjá Solskjær Sannfærandi hjá Arsenal gegn Chelsea
England
Southampton – Everton.......................... 2:1
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
með Everton og skoraði mark liðsins.
Watford – Burnley................................... 0:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Newcastle – Cardiff ................................ 3:0
Aron Einar Gunnarsson var allan tím-
ann á varamannabekk Cardiff.
Wolves – Leicester ................................... 4:3
Bournemouth – West Ham...................... 2:0
Liverpool – Crystal Palace ...................... 4:3
Manchester United – Brighton............... 2:1
Arsenal – Chelsea..................................... 2:0
Huddersfield – Manch. City.................... 0:3
Fulham – Tottenham ............................... 1:2
Staðan:
Liverpool 23 19 3 1 54:13 60
Manch.City 23 18 2 3 62:17 56
Tottenham 23 17 0 6 48:23 51
Chelsea 23 14 5 4 40:19 47
Arsenal 23 13 5 5 48:32 44
Manch.Utd 23 13 5 5 46:33 44
Watford 23 9 6 8 32:32 33
Wolves 23 9 5 9 27:31 32
Leicester 23 9 4 10 29:29 31
West Ham 23 9 4 10 30:34 31
Everton 23 8 6 9 34:33 30
Bournemouth 23 9 3 11 33:42 30
Brighton 23 7 5 11 25:32 26
Cr. Palace 23 6 4 13 23:32 22
Southampton 23 5 7 11 25:40 22
Burnley 23 6 4 13 23:43 22
Newcastle 23 5 6 12 19:31 21
Cardiff 23 5 4 14 19:44 19
Fulham 23 3 5 15 21:51 14
Huddersfield 23 2 5 16 13:40 11
B-deild:
Derby – Reading...................................... 2:1
Jón Daði Böðvarsson lék fyrstu 63 mín-
úturnar með Reading.
Aston Villa – Hull .................................... 2:2
Birkir Bjarnason lék fyrstu 75 mínút-
urnar með Aston Villa.
Blackburn – Ipswich ................................ 2:0
Middlesbrough – Millwall........................ 1:1
Nottingham Forest – Bristol City .......... 0:1
QPR – Preston.......................................... 1:4
Rotherham – Brentford........................... 2:4
Sheffield Wednesday – Wigan ................ 1:0
Stoke – Leeds ........................................... 2:1
Swansea – Sheffield United .................... 1:0
Staðan:
Leeds 28 16 6 6 47:30 54
Norwich 28 15 8 5 52:36 53
Sheffield Utd 28 15 5 8 46:29 50
WBA 27 13 8 6 55:35 47
Middlesbro 28 12 11 5 31:20 47
Derby 28 13 7 8 40:35 46
Bristol City 28 12 8 8 35:29 44
Hull 28 11 7 10 41:35 40
Swansea 28 11 7 10 37:32 40
Blackburn 28 10 10 8 37:41 40
Birmingham 28 9 12 7 40:33 39
Nottingham F. 28 9 12 7 39:32 39
Aston Villa 28 9 12 7 51:45 39
QPR 28 11 6 11 34:39 39
Stoke 28 9 11 8 33:35 38
Sheffield Wed. 28 9 8 11 33:45 35
Brentford 28 8 10 10 43:39 34
Preston 28 8 9 11 43:45 33
Millwall 28 7 8 13 34:44 29
Wigan 28 8 5 15 28:41 29
Rotherham 28 5 10 13 27:46 25
Reading 28 5 8 15 31:43 23
Bolton 27 5 7 15 18:40 22
Ipswich 28 3 9 16 22:48 18
Þýskaland
Augsburg – Fortuna Düsseldorf ........... 1:2
Alfreð Finnbogason lék allan leikinn
með Augsburg.
Hannover – Werder Bremen.................. 0:1
Aron Jóhannsson hjá Bremen er frá
keppni vegna meiðsla.
Staðan:
Dortmund 18 14 3 1 45:18 45
Bayern Münch. 18 12 3 3 39:19 39
M’gladbach 18 11 3 4 37:18 36
RB Leipzig 18 9 4 5 31:18 31
E.Frankfurt 18 9 3 6 37:24 30
Wolfsburg 18 8 4 6 28:24 28
Hertha Berlín 18 7 6 5 29:28 27
Hoffenheim 18 6 7 5 33:26 25
Werder Bremen 18 7 4 7 29:29 25
Leverkusen 18 7 3 8 26:30 24
Mainz 18 6 6 6 20:24 24
Schalke 18 6 3 9 22:25 21
Freiburg 18 5 6 7 22:28 21
Düsseldorf 18 6 3 9 21:34 21
Augsburg 18 3 6 9 26:31 15
Stuttgart 18 4 2 12 14:38 14
Hannover 18 2 5 11 17:36 11
Nürnberg 18 2 5 11 15:41 11
Holland
AZ Alkmaar – Utrecht............................ 3:0
Albert Guðmundsson vermdi vara-
mannabekk AZ.
Willem II – Breda .................................... 2:0
Kristófer Ingi Kristinsson spilaði fyrri
hálfleikinn með Willem II.
Belgía
Eupen – Lokeren ..................................... 4:1
Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 88 mín-
úturnar með Lokeren.
Grikkland
Larissa – Aris Saloniki............................ 0:0
Ögmundur Kristinsson stóð í markinu
hjá Larissa.
KNATTSPYRNA
Tvöfaldir bikarmeistarar Keflavíkur eru úr leik í
Geysisbikar kvenna í körfubolta eftir 71:89-tap á
heimavelli fyrir Val í átta liða úrslitum í gær. Vals-
konur eru því komnar í undanúrslit. Snæfell er einnig
komið í undanúrslit eftir nauman 72:68-heimasigur á
Haukum. Stjarnan vann öllu öruggari sigur á Skalla-
grími, 71:49. Eina 1. deildarliðið sem eftir var í keppn-
inni, ÍR, mætti Breiðabliki á útivelli. Breiðablik var
miklu sterkari aðilinn og vann 80:44-sigur. Dregið
verður í undanúrslitin á miðvikudag.
Morgunblaðið/Hari
Harka Góð barátta ÍR-inga dugði skammt gegn Breiðabliki er liðin mættust í Geysisbikar kvenna í köfubolta í gær.
Tvöfaldir bikarmeistarar úr leik
Íslands- og bikar-
meistarar kvenna
í handknattleik í
Fram voru í
miklu stuði í
Vestmannaeyjum
í gær og unnu
átta marka sigur
á öflugu liði ÍBV,
31:23, í Olís-
deildinni. Leik-
urinn var liður í
13. umferð deildarinnar og átti að
fara fram á laugardag en var þá
frestað. Fram jafnaði þar með Val að
stigum en liðin eru bæði með 19 stig
en Valur á leik inni. ÍBV er eins og
áður í þriðja sætinu með 15 stig.
Staðan að loknum fyrri hálfleik
var 17:12, Fram í vil. ÍBV tókst að
minnka muninn í þrjú mörk þegar 45
mínútur voru liðnar af leiknum en þá
settu Framarar í annan gír og unnu
sannfærandi sigur. Ester Óskars-
dóttir var markahæst í liði ÍBV með
sex mörk og Sunna Jónsdóttir skor-
aði fimm. Hjá Fram var það Ragn-
heiður Júlíusdóttir sem skoraði mest
allra eða átta mörk, þar af tvö af
vítalínunni. Þórey Rósa Stefáns-
dóttir var einnig atkvæðamikil með
fimm mörk. sport@mbl.is
Meistararnir í
miklu stuði í
Eyjum
Ragnheiður
Júlíusdóttir