Morgunblaðið - 18.01.2019, Side 4
S
purður hvernig hann ætli að undir-
búa sig fyrir uppistandið segir Ari:
„Ég er með ákveðið prógramm sem
ég þróa jafnt og þétt yfir árið og
helstu skrifin fara fram fyrir Ára-
mótaskaupið í desember og sýningar Mið-
Íslands í janúar. Fyrir Þorrablót Vesturbæjar
bý ég svo að því að eiga dálítið af efni sem snýr
að Vesturbænum og KR þannig að þetta verður
einhver smáhræringur af því – en uppistaðan er
alltaf almennt grín sem á að vera gjaldgengt
hvar sem er.“
Var upp með sér í marga daga
Hvað varstu gamall þegar þú uppgötvaðir að
þú værir fyndinn?
„Ég held ég hafi nú aldrei upp-
götvað neitt sérstaklega að ég
væri eitthvað fyndinn en ég
man að ég talaði mikið sem
barn og fékk fyrir vikið
mismikla hlustun. Á ung-
lingsárunum var ég mik-
ið í kringum eldri bræð-
ur mína og vinahópa
þeirra og það var alltaf
sérstaklega gaman ef mér
tókst að láta þau hlæja því
það er svo mikil upphefð að
fá að hanga með stóru krökk-
unum. Einhvern tíma var ég í
partíi heima hjá Kristjáni heitnum
bróður mínum og hann var að sýna vinum
sýnum tónleikaupptöku af Dire Straits og gera
grín að fötunum sem Mark Knopfler var í. Þau
voru að velta fyrir sér hvað Knopfler myndi
segja ef hann sæi þessi föt í dag og ég svaraði:
„Innst inni var ég að hrópa á hjálp“. Þau hlógu
og ég var upp með mér í marga daga.“
Tímabundin törn sem varir enn
Ari segir að það hafi verið eiginlega verið til-
viljun að hann fór að taka að sér uppistand sem
aðalvinnu. „Bergur Ebbi og Dóri DNA buðu
mér að koma fram með sér á skemmtistaðnum
Karamba fyrir tæpum tíu árum og svo endur-
tókum við leikinn nokkrum sinnum yfir árið á
ýmsum stöðum undir merkjum Mið-Íslands. Ég
var að vinna sem textasmiður á auglýsingastof-
unni Jónsson og Le’macks og eftir því sem sím-
inn byrjaði að hringja meira og meira minnkaði
ég starfshlutfallið mitt jafnt og þétt þangað til
ég var einfaldlega búinn að skipta alveg yfir í að
koma fram. Þetta
var alltaf bara
hugsað tímabund-
in törn en hún er
bara ennþá í
gangi.“
Ari segist alltaf
hafa getað nýtt
húmorinn í þeim störfum
sem hann hefur tekið sér
fyrir hendur en hann starfaði
einnig sem stuðningsfulltrúi í Haga-
skóla og sem flugþjónn hjá Icelandair.
Með húmor í háloftunum
Hefurðu stöðvað flugdólg með húmor að
vopni?
„Ég segi það nú ekki. Ég flaug um hundrað
leggi á tveimur sumrum og það kom aldrei upp
neitt þannig atvik. Ég reyndi bara alltaf að vera
með gott viðmót til farþeganna og hress eftir at-
vikum. Það þarf alltaf að lesa í aðstæðurnar og
oft að vera sérstaklega almennilegur við þá sem
virka mjög pirraðir því mörgum finnst einfald-
lega mjög erfitt að fljúga. Þannig að vonandi
hefur mér einhvern tíma tekist að forða ein-
hverjum frá því að missa stjórn á sér með rétt
tímasettum brandara! Í dag er þetta hins vegar
orðið að yfirlýstu markmiði hjá sumum flug-
félögum og er nærtækasta dæmið auðvitað
WOW Air þar sem húmor er beinlínis eitt af
gildum flugfélagsins.“
Ari segir að að brandarar séu mjög lifandi
fyrirbæri og verði oft til yfir langan tíma. „Flest
skapandi skrif eru eins og naglasúpa, grunnur-
inn í uppskriftinni eru bara einhverjir naglar í
potti, síðan bætir maður stöðugt við hráefnum
þangað til þetta er orðið ætt. Oft byrjar þetta
bara sem einhver ein setning. Síðan bætast við
bútar og hlutar detta út. Maður flytur grínið
aftur og aftur og slípar til efnið eftir bestu getu.
Þetta er ekki ósvipað því ef að blaðamaður
myndi skrifa grein, birta hana, gera síðan
endurbætur, birta hana aftur og svo koll af kolli.
Maður er í raun og veru alltaf að halda frumsýn-
ingu á sama efninu en svo þarf maður líka alltaf
stöðugt að endurnýja sig. Eftir því sem maður
nær meiri tökum á efninu fer maður meira út í
að flytja það eins og hljómsveitir flytja aðal-
slagarana sína. Hittarar eru út af fyrir sig frá-
bærir en til að semja þá þarf maður líka að
semja helling af B-hliðum.“
Stoltur þegar konan hlær
Ari segir að samvinna sé líka mjög mikilvæg
og að ýmsir félagar hans hjálpi honum að semja
og þróa efni og þar sé Linda konan hans fremst
í flokki.
„Linda er ótrúlega fyndin og klár og margt af
því sem ég held mest upp er eitthvað sem við
höfum samið saman. Ég er líka alltaf svo gríðar-
lega stoltur ef mér tekst að láta hana hlæja upp-
hátt því erum búin að búa svo lengi saman að
hún hlær ekki lengur að hverju sem er frá mér!“
Ari segir að það sé í raun mjög merkilegt að
aðaltíminn í bransanum hjá Íslendingum sé
skömmu eftir áramót og telur að það megi jafn-
vel rekja til þess að þjóðin hafi verið heiðin til
forna ,,Á hinum Norðurlöndunum nær uppi-
stand alltaf hápunkti um jólin og svo eru janúar
og febrúar mun rólegari mánuðir. En við erum
sér á parti hér því allt árshátíðardótið fer á fullt
á þessum árstíma og ég er ekki frá því að þorra-
blótin séu þar helsti áhrifavaldurinn. Það eitt að
dagurinn fari aftur að lengjast gerir Íslendinga
svo sturlaða af stemningu að þeir ryðjast út til
að skemmta sér þó það sé ennþá kolniðamyrkur
og kuldi. Í þessu ljósi er í raun skrýtið að Jóns-
messa skuli ekki vera stærsti viðburðurinn hjá
okkur eins og í Svíþjóð. Kannski þolir þorramat-
urinn bara dagsljósið svona illa.“
Muna að hreinsa fötin
Ari segir að þorrablót séu í dag mörg hver
orðin að stórviðburðum. „Mér hefur þótt sér-
staklega gaman að fylgjast með hversu vel hef-
ur gengið í Vesturbænum þar sem er troðfullt á
hverju ári. Þetta er nútímaviðburður en huggu-
leg nostalgía sem svífur yfir vötnum.
Að koma fram á þorrablóti er svo bara eins og
að koma fram á hvaða viðburði sem er, fyrir ut-
an að maður þarf eiginlega að fara með fötin sín
í hreinsun strax daginn eftir. Það er nóg að það
sé bara einn kæstur réttur á boðstólum á smá
svæði á þúsund fermetrum og þá angar maður
dögum saman!“
Íslendingar sturlaðir af stemningu
Uppistandarinn Ari Eldjárn kemur
fram á Þorrablóti Vesturbæjar í ár
en þó að þorrablótið sé ungt að ár-
um er aðsóknin gríðarleg og búast
móthaldarar við 800 manns að
þessu sinni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ari Eldjárn taldi að uppistandið
sem atvinnugrein hjá honum yrði
einungis tímabundið. Hann hefur
sjaldan eða aldrei verið vinsælli.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019
Skipasundi 56, 104 Reykjavík – Sími 553 3402
Þorramatur
Verslunin RANGÁ
er með ekta
þorramat til
sölu á þorranum
Opið alla daga
frá kl. 10–20
10-20 10-20
Ef þú ætlar að vinna þér inn titil-
inn eiginkona/kærasta ársins
skaltu leggja svolítið upp úr
bóndadeginum sem er 25. jan-
úar. Komdu makanum þínum á
óvart og vertu sérlega almenni-
leg. Það er nefnilega konudagur
24. febrúar og því er alltaf gott að
eiga svolitla inneign. Byrjaðu
daginn á að vekja makann með
kossi, morgunverði og gefðu
honum eitthvað óvænt. Ef þú ætl-
ar að slá alveg í gegn þá skaltu
elda hans uppáhaldsmat um
kvöldið, koma börnunum í pöss-
un og leggja þig fram um að vera
ekstra skemmtileg. Ef vín er haft
um hönd skaltu bara passa að
bóndinn endi ekki eins og
maðurinn á myndinni.
Taktu bóndadaginn með stæl!