Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.01.2019, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 H ilmar starfar sem leikari hjá Borgarleikhúsinu en er um þessar mundir að fara að stíga inn í óvissuna eins og hann seg- ir sjálfur frá. ,,Í mars er ég að fara í fæðingarorlof, síðan tekur við sum- arfrí hjá mér og svo verð ég í launalausu leyfi í eitt ár frá leikhúsinu.“ Alltaf heppinn með vinnu Hann útskýrir hversu heppinn hann er að hafa verið með vinnu frá því áður en hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum. Þetta óvissuár sem framundan er sé því einskonar hans tímabil að starfa sjálfstætt utan leik- hússins og gera hluti sem koma til hans án þess að vera með eitthvað fast í hendi. ,,Ég er að leggja frá mér silfurskeiðina ef svo má segja.“ En hvað værir þú að starfa við ef þú ættir alla peninga heimsins? „Ætli ég væri ekki að gera nákvæmlega það sama og ég er að gera. Vinna sem leikari og njóta lífsins með fjölskyldunni. Kannski myndi ég vinna minna og ferðast meira, en annars bara nokkuð svipað líf.“ Hilmar verður veislustjóri á þorrablóti Gróttu sem haldið verður í byrjun febrúar. Búist er við yfir 300 manns þangað. Spurður um þorrablótshefðina segir hann: ,,Þetta er eins konar náttúruleg and- spyrna við myrkrkið. Myrkramótmæli þar sem fólk kemur saman fallega klætt að gæða sér á óhefðbundnum mat og skemmta sér. Ég hef oft stýrt veislum og brúðkaupum og finnst það gaman.“ Seltjarnarnesið sérstakur staður Hilmar er alinn upp á Seltjarnarnesi og segir það mjög sérstakan stað. ,,Ég spilaði með Gróttu sjálfur í nokkur ár sem strákur og er alinn upp á Seltjarn- arnesi. Ég áttaði mig á því fyrir nokkrum árum að Seltjarnarnesið er eins konar botn- langi af höfuðborgarsvæðinu. En það finnst mér einmitt einkenna staðinn. Afgirt, vernd- að svæði sem vill hafa hlutina á sinn hátt. Eins konar vin í borg. Það eru alls konar leyndarmál á Seltjarnarnesi sem þeir vilja hafa fyrir sig. Sem dæmi frétti ég af því að yfirmaður sundlaugarinnar hefði verið hvattur til að auglýsa staðinn fyrir ferða- menn, en hann vildi það ekki, heldur hafa hlutina bara eins og þeir væru.“ Hvað ætlarðu að bjóða upp á? ,,Ég ætla að bjóða upp á góðan anda. Það er búið að fá alls konar skemmtikrafta til að koma, það verður happdrætti og fleira. Pabbi sagði mér að þegar maður tæki upp á því að veislustýra, þyrfti maður að átta sig á að það er enginn kominn til að horfa á veislustjórann. Hann þyrfti bara að sjá til þess að allt rúllaði vel, passaði samna og að það yrði ekki of löng bið á milli atriða og fólk vissi hvert það ætti að fara til að hitta á salernið og fleira í þeim dúrnum. Ég hef haft þessi ráð að leiðarljósi. En auðvitað verður maður skemmtilegur líka, syngur með gestunum og fleira. Þetta verð- ur án efa æðislegt kvöld.“ Ekki vanmeta aðgerðarleysið Það er gaman að spjalla við Hilmar, þar sem hann er fljótur að taka hlutina á dýpt- ina, er vel tengdur tilfinningunum og opinn í eðli sínu. ,,Ég hlakka til framtíðarinnar, sér í lagi að fara í fæðingarorlof sem felur í sér að fara í ákveðinn hjúp og njóta stundarinnar með nýju barni. Ég er ekki að leita að því að hafa eitthvað brjálað að gera á næstunni. Þetta er eitthvað sem mér finnst mikilvægt að gera, en ég fæ líka alveg framfærslukvíða og hugsa um hvort ég sé að fara að detta út úr bransanum og þess háttar. En ég er að temja mér æðruleysi gagnvart þessu og að æfa mig í að leyfa ekki óttanum að taka yfir. Maður skyldi líka aldrei vanmeta aðgerð- arleysið. Gott fólk segir að hlutirnir gerist þegar maður er ekki að gera hluti. Ég ætla bara að leyfa hlutunum að gerast í staðinn fyrir að vera alltaf að gera eitthvað sjálfur.“ Þorrablót eru myrkramótmæli Hilmar Guðjónsson leikari er flest- um landsmönnum kunnur. Hilmar verður veislustjóri í þorrablóti Gróttu sem haldið verður í byrjun febrúar. Búist er við yfir 300 manns þangað. Það eru áhugaverðir tímar í lífi hans núna. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hilmar Guðjónsson leikari verður veislustjóri á þorrablóti Gróttu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.