Morgunblaðið - 18.01.2019, Page 9
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2019 MORGUNBLAÐIÐ 9
Í KJÖTBORÐ NÓATÚNS
ÞORRINN ER KOMINN
Pantið þorraveisluna á www.noatun.is
Við gerum meira fyrir þig – Nóatún Austurveri – www.noatun.is
Hvað á fólk á ketó að borða
á þorrablótum?
„Þorramatur hentar ketó bara al-
veg ágætlega; allt feitt kjöt í lagi,
sviða- og svínasulta einnig og svo
auðvitað harðfiskur með smjöri. Það
sem er ekki ketó vænt er flat-
brauðið og rúgbrauðið,
laufabrauðið og svo
mögulega ekki slátr-
ið ef það er mjöl í
því,“ segir Gunn-
ar Már.
Hvað myndir
þú borða á
þorrablóti?
„Ég myndi
borða allt feitt kjöt
og líklega strauja all-
an þann harðfisk og
smjör sem ég sæi. Ég myndi
svo mæla með því við alla þorra-
kokka landsins að bjóða líka upp á
ósykraða blómkálsstöppu í stað róf-
ustöppunnar. Bara að sjóða blóm-
kál, þerra það og skella í mat-
vinnsluvél með góðri klípu af smjöri
og vel af grófu salti og enginn sykur
að sjálfsögðu. Frábær með sviða-
sultunni.“
Getur fólk á ketó
farið á þorrablót?
Er þorramatur hollur? Geta þeir sem eru á ketó gúffað í
sig mat á þorrablótum? Gunnar Már Sigfússon, einka-
þjálfari og höfundur bókarinnar Ketó hormónalausnin,
segir að þeir sem eru á ketó geti fundið mat við sitt hæfi.
Marta María | mm@mbl.is
Er einhver þorramatur hollur?
„Allt sem inniheldur fitu er ketó-
vænt svo hollt í ketó þýðir fituríkur
matur, prótín eins og kjöt og fiskur
er líka nauðsynlegt svo það vantar
auðvitað allt grænmeti í þorramat-
inn sem er líka nauðsynlegur hluti
af ketó og veitir okkur
trefjar og fullt af nær-
ingarefnum. Þorra-
matur er því ekki
fullkominn ketó-
matur en alger-
lega hægt að
njóta hans,“
segir hann.
Ferðu oft á
þorrablót?
„Ég hef nokkrum
sinnum farið á þorra-
blót Stjörnunnar og líkað
vel.“
Hvað er svona skemmtilegt
við þau?
„Það er auðvitað félagsskapurinn
og svo þessi þjóðlega stemning sem
skapast með matnum og skemmti-
atriðunum. Menn eru hvergi hress-
ari en á þorrablótum, það er alveg á
hreinu.“
N
okkur ár í röð fór ég á þorrablót Stjörn-
unnar í Garðabæ og alltaf var þessi fíni
matur á borðum frá konungi þorrans, Jóa
í Múlakaffi. Mér þykja sviðin góð, sér-
staklega tungan en borða líka
sviðasultu, blóðmör, lifrarpylsu, síld og
rófustöppu. Ég smakka líka á súr-
matnum svo sem hvalrengi og
hrútspungum meira fyrir
stemninguna en bragðið en
held að ég sé um það bil eini
Íslendingurinn sem getur
alls ekki sett harðfisk inn
fyrir sínar varir.
Á þorrablótum hitti ég
ávallt gamla og góða vini
og einhvern veginn skapar
stemningin svo mikla af-
slöppun og gleði að hláturinn
og vinskapurinn er ekki síður
nærandi en maturinn,“ segir
Lukka.
Hver er hollasti kosturinn
á þorrablótinu?
„Hinn hefðbundni þorramatur er alls engin
óhollusta. Hann passar reyndar vel inn í nýj-
asta æðið sem er háfitu/lágkolvetna matar-
æði eða ketósu mataræði. Þorramatur eins og til dæm-
is slátrið inniheldur þar að auki innmat sem við
mættum gjarnan borða meira af.
Súrsun er gömul aðferð til að auka geymsluþol mat-
væla en hún felur í sér að auka góðgerla í matnum og
það er eitthvað sem við mættum nýta okkur betur nú
til dags því góðgerlarnir styðja við góða meltingarflóru
okkar. Súri þorramaturinn er því hollari en margt sem
er algengara á borðum landsmanna svo sem
kleinuhringir og pitsur. Ef það væri eitt-
hvað sem ég myndi vilja bæta í
þorramatinn þá væri það súrsað
grænmeti. Súrsaðar gulrætur og
hvítkál myndu passa vel með
og bæta trefjum í annars
ágæta og holla máltíð.“
Hvað myndir þú aldrei
borða af heilsufarsástæð-
um?
„Aldrei er mjög sterkt
orð en það sem ég borða
svo til aldrei eða afar sjald-
an … og af heilsufarsástæð-
um frekar en matvendni er til
dæmis morgunkorn og sæta-
brauð eins og kleinuhringir og kex.
Mér finnst mjög auðvelt að sleppa
þessum vörum og ég borða held ég aldrei
ódýrt og næringarlítið brauð. Núorðið er við-
bættur sykur sjaldséður á mínu heimili og ég
vanda valið vel þegar kemur að sætindum en
ég er þó afar veik fyrir góðu súkkulaði og súkkulaði-
rúsínum sem fá því að slæðast inn oftar en mig langar
til að viðurkenna. En hver vill vera fullkominn og
súkkulaði gerir lífið einfaldlega betra!“
Þorramatur fínn fyrir
fólk á lágkolvetnafæði
Lukka Pálsdóttir, eigandi Happs, segir að vegna góðgerla í súrs-
uðum mat sem borinn er fram á þorrablótum sé hann alls ekki óhollur.
Marta María | mm@mbl.is
Lukka Pálsdóttir er
hrifin af þorramat.