Morgunblaðið - 02.02.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Interviews will be held in
Reykjavik in May and June
For details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492
Fax:+ 36 52 792 381
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com
Study Medicine and Dentistry
In Hungary “2019”
Starf rannsóknarlektors við handritasvið Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er laust til
umsóknar. Um er að ræða tímabundið fullt starf til
fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu
að þeim tíma liðnum. Umsækjendur skulu hafa
lokið doktorsprófi á rannsóknarsviði stofnunarinnar.
Ætlast er til að þeir geti með námsferli sínum,
starfsreynslu og ritverkum sýnt fram á kunnáttu í
handritafræðum og hafi næga þekkingu og reynslu
til að vinna að handritarannsóknum og textaúgáf-
um. Góð kunnátta í íslensku máli að fornu og nýju
er skilyrði; enn fremur er kunnátta í ensku og
dönsku eða öðru norrænu máli nauðsynleg og
frekari tungumálakunnátta er kostur. Gerð er
krafa um góða samskiptahæfni.
Rannsóknir á handritum og útgáfa texta eru
hornsteinar starfsins á handritasviði, en auk þess
er rannsóknarlektornum ætlað að taka þátt í
öðrum verkefnum sem unnið er að á sviðinu, svo
sem skráningu handrita og fornbréfa, fræðslu og
miðlun. Í starfinu er fólgin 40% rannsóknarskylda.
Áætlað er að ráða í starfið frá og með 1. september
2019.
Um hæfi umsækjenda og meðferð umsókna er
farið eftir ákvæðum laga um Stofnun Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum nr. 40/2006 og reglu-
gerðar um Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum nr. 861/2008.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ræki-
lega skýrslu um vísindastörf sem þeir hafa unnið,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og vottorð um náms-
feril sinn og störf. Í umsókn skal koma fram hver
ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur
veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir.
Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk með
umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg
á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur
standa að ritverki skulu umsækjendur gera grein
fyrir framlagi sínu til verksins. Einnig er nauðsynlegt
að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækj-
endur hafa unnið að, hverju þeir vinna að sem
stendur og hver séu áform þeirra um rannsóknar-
verkefni ef af ráðningu yrði. Enn fremur er ætlast til
þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og netföng
tveggja einstaklinga sem eru til þess bærir að veita
umsagnir um verk þeirra og hæfni.
Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara
og fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar og skal umsókn-
um og fylgigögnum skilað í þríriti til Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum, Árnagarði við
Suðurgötu, 101 Reykjavík eða á rafrænu formi á
netfangið sigurborg.stefansdottir@arnastofnun.is.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum
tilkynnt um ráðningu í starfið þegar ákvörðun hefur
verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðvarður Már Gunnlaugsson,
stofustjóri handritasviðs (s. 525 4024,
gudvardur.mar.gunnlaugsson@arnastofnun.is).
Rannsóknarlektor
við handritasvið Árnastofnunar
Saumakona
Óskum eftir saumakonu til starfa í 100% starf
í lifandi umhverfi. Viðkomandi þarf að vera
stundvís, samviskusöm og lipur í samskipt-
um. Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn
ásamt ferilskrá á kolbrun@vogue.is fyrir
10. febrúar nk.
Seltjarnarnesi
Spennandi störf í boði
Hjúkrunardeildarstjórar – Hjúkrunarfræðingar –
Sjúkraliðar – Starfsfólk við aðhlynningu –
Iðjuþjálfar – Sjúkraþjálfarar – Húsvörður
Leitað er eftir áhugasömu fólki til starfa á nýja 40 rýma hjúkrunarheimilinu
að Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi.
Í boði er dagvinna- kvöld-helgar-og næturvaktir
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2019.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf 1. mars eða eftir nánari samkomulagi.
Upplýsingar gefur Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og
Kristín Sigurþórsdóttir mannauðsstjóri: sími 560-4107.
Sótt er um á heimasíðu www//sunnuhlid.is
merkt Nes-fyrir framan starfið sem sótt er um.
Nýtt
hjúkrunarheimili
Hjúkrunarheimilið Seltjarnarnesi, Safnatröð 1, 170 Seltjarnarnes
Rafvirki, vélvirki
og vélstjóri
LEE rafverktakar óska eftir að ráða vana raf-
virkja og vélvirkja eða vélstjóra til starfa við
fjölbreytt verkefni. Viðkomandi þurfa að vera
sjálfstæð, þjónustulipur og hafa áhuga á að
læra nýja hluti.
LEE rafverktakar eru rótgróið fyrirtæki sem
sinnir fjölbreyttum verkefnum.
Áhugasamir hafi samband við Lárus E.
Eiríksson, larusee@simnet.is, sími 893 6746.