Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 4

Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019 Baadermaður FISK Seafood ehf óskar eftir Baadermanni á Arnar Hu 1. Umsækjandi þarf að hafa reynslu sem Baadermaður. Um framtíðarstarf er að ræða. Upplýsingar gefur Guðmundur Henry í síma 893 9986 eða Jón Ingi í síma 825 4417 Senda skal umsókn á netfangið joningi@fisk.is Rafvirki óskast Óska eftir að ráða rafvirkja eða mann með kunnáttu í húsarafmagni. Upplýsingar í síma 892 7269. BBA lögmannsstofa óskar eftir að ráða lögmenn Í boði eru krefjandi og metnaðarfull störf í alþjóðlegu vinnuumhverfi. Viðskiptavinir stofunnar eru innlend og erlend fyrirtæki og stofnanir. Verkefnin eru fjölbreytt í síbreytilegu viðskiptaumhverfi þar sem reynir á sjálfstæði, samskiptalipurð, frumkvæði og ábyrgð. / Starfsreynsla er kostur / Reynsla á sviði fyrirtækja- og fjármálalögfræði er æskileg / Framhaldsmenntun á því sviði er kostur / Góð enskukunnátta er skilyrði / Sjálfstæð vinnubrögð / Frumkvæði í starfi / Hæfni til að vinna í krefjandi vinnuumhverfi og undir miklu álagi BBA Legal Iceland / Reykjavík / Höfðatorg / bba.is England / London / 23 Berkeley Square / bbalegal.co.uk Hæfniskröfur Umsóknir sendist á umsokn@bba.is og umsóknarfrestur er til 22.febrúar 2019. Grunnskólakennari í Þjórsárskóla Laus staða kennara í Þjórsárskóla 100% staða í afleysingum frá 18. mars til loka skólaársins. Kennslugreinar eru stærðfræði, náttúrufræði, samfélagsfræði, umsjón, heimilisfræði og útinám. Umsóknarfrestur til 25. febrúar 2019. Nánari upplýsingar veitir Bolette Höeg Koch skólastjóri, sími 895 9660, netfang bolette@thjorsarskoli.is Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Nemendur eru tæplega 50. Þeim er kennt í fjórum kennsluhópum. Í Þjórsárskóla er lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, útikennslu og umhverfið. Við leggjum áherslu á að nýta það efni sem við fáum úr Þjórsárdals- skógi og að gefa gömlum hlutum nýtt líf. Yfirmarkmið skólans er að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því. Vefslóð www.thjorsarskoli.is Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru um 630 íbúar. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og á Brautarholti. Í hreppnum eru náttúruperlur á borð við Þjórsárdal. Þjórsárskóli er í tæplega 100 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is Í vikunni voru Mennta- verðlaun atvinnulífsins veitt fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði fræðslu- og mennta- mála. Höldur á Akureyri er Menntafyrirtæki ársins og Friðheimar í Bláskógabyggð eru Menntasproti ársins. Það var Lilja Alfreðsdóttir mennta- málaráðherra sem afhenti verðlaunin á Menntadegi at- vinnulífsins, það er á samkomu sem efnt var til í Hörpu. Meðal þeirra sem ávörpuðu gesti var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem óskaði verðlauna- höfunum innilega til hamingju. Rótgróið fyrirtæki Höldur er öflugt og rótgróið ferðaþjónustufyrirtæki sem starfar á landsvísu. Höldur rekur Bílaleigu Akureyrar sem er stærsta bílaleiga landsins með tuttugu og þrjú útibú. Flotinn telur um 4.500 bíla og fyrirtækið er einn stærsti bíla- kaupandi landsins auk þess að veita fjölbreytta þjónustu. Um 240 starfsmenn eru hjá Höldi allt árið og á fjórða hundrað þegar mest er að gera yfir sumartímann. „Án virks mannauðs eru fyr- irtækin lítið annað en innantóm orð, í raun bara umbúðir og það er okkar, stjórnendanna að búa svo um hnútana að inni- haldið geti vaxið og dafnað,“ segir í tilkynningu haft eftir Steingrími Birgissyni, for- stjóra Hölds. Tómatar og hrossarækt Friðheimar er blómlegt fjöl- skyldufyrirtæki í Biskups- tungum á Suðurlandi. Árið 1995 keyptu ung hjón úr Reykjavík, Knútur Ármann og Helena Hermundardóttir, yfir- gefna gróðrarstöð og hófu þar ræktunarstarf. Fyrir 10 árum opnuðu þau Friðheima fyrir ferðamönnum og á síðasta ári heimsóttu þau um 180 þúsund gestir. Ferðaþjónusta er veiga- mesti þátturinn í rekstri Frið- heima í dag ásamt framleiðslu tómata, hrossarækt og fræðslu um íslenska hestinn og ylrækt á Íslandi. Morgunblaðið/Golli Friðheimar Knútur Rafn Ármann segir fólki frá. Til fyrirmyndar  Höldur og Friðheimar fá menntaverðlaun atvinnulífs Menntafyrirtæki Frá vinstri Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, þá Höldursfólkið Þórdís Bjarnadóttir, Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds, Geir Kristinn Aðalsteinsson, og Sig- rún Árnadóttir og Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra. Gengið var í vikunni frá kaup- um Kennarasambands Ís- lands á 6. hæð hússins að Borgartúni 30 í Reykjavík. Lengi hefur staðið til að koma starfsemi KÍ fyrir á nýjum stað, eins og gerast mun á vordögum. Núverandi húsa- kynni í Kennarahúsinu, það er gamla kennaraskólanum við Laufásveg, eru bæði orðin of lítil og ekki í samræmi við kröfur líðandi stundar. Rætt hefur verið við for- sætisráðherra um framtíð og hlutverk Kennarahússins, að því er fram kemur á vef KÍ. „Það verður verkefni til fram- tíðar að marka Kennarahús- inu hlutverk við hæfi þótt ljóst sé orðið fyrir löngu að húsið sé ófullnægjandi sem höfuð- stöðvar stéttarfélags,“ er haft eftir Ragnari Þór Péturssyni, formanni KÍ. Blendin tilfinning Kennarasamband Íslands og fyrirennarar þess hafa frá 1992 verið með aðsetur í Kennarahúsinu, sem byggt var árið 1908. „Það er býsna stór stund í sögu KÍ að færa starfsemina úr Kennarahús- inu. Tilfinningin er blendin. Þetta er þó nauðsynleg breyt- ing svo byggja megi upp starfsemi sambandsins til framtíðar,“ segir Ragnar Þór Pétursson. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Borgartún Hér verður Kennarasamband Íslands til húsa. KÍ í Borgartún  Yfirgefa Laufásveg  Á nýj- um stað á 7. hæð  Nauðsyn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.