Morgunblaðið - 16.02.2019, Side 1
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2019
ÍÞRÓTTIR
NBA-deildin Skemmtileg toppbarátta í Austurdeildinni á meðan Golden State er áfram best í vestrinu.
Stjörnuleikmenn ráða miklu og skammtímaáætlanir stjórnenda líklegri en áður. James Harden óstöðvandi. 2-3
Íþróttir
mbl.is
„Ég er hrikalega stolt að vera komin aftur
í landsliðið og er þakklát fyrir þetta tæki-
færi. Það eru miklar tilfinningar sem bær-
ast í brjósti mínu og mér líður eins og að
hafa verið valin í landsliðið í fyrsta skipti,“
sagði Margrét Lára Viðarsdóttir í gær, eft-
ir að hún var valin á ný í kvennalandslið Ís-
lands í knattspyrnu eftir tæplega tveggja
ára fjarveru.
Margrét Lára lék síðast gegn Hollandi í
apríl 2017 en rúmum mánuði síðar sleit
hún krossband í hné í leik með Val. Hún
eignaðist síðan sitt annað barn snemma á árinu 2018 en er nú
komin á fulla ferð með Val á ný. Margrét er langmarkahæsta
landsliðskona Íslands með 77 mörk í 117 landsleikjum.
„Ég kem reynslunni ríkari til baka og er sterkari og betri
einstaklingur og vonandi get ég gefið landsliðinu áfram eitt-
hvað. Það er stefnan og ég ætla mér að gera það,“ sagði Mar-
grét Lára en ítarlegra viðtal við hans er á mbl.is/sport/
fotbolti og fjallað er um landsliðsvalið á bls. 3.
Kem til baka sem sterk-
ari og betri einstaklingur
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Bikarveislan í Höllinni í dag
Morgunblaðið/Eggert
Valur Helena Sverrisdóttir gerir Hlíðar-
endaliðið afar sigurstranglegt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjarnan Danielle Rodriguez þarf að eiga
stórleik til að liðið geti skákað Val.
Morgunblaðið/Eggert
Stjarnan Ægir Þór Steinarsson hefur verið í
lykilhlutverki hjá Garðabæjarliðinu í vetur.
Morgunblaðið/Eggert
Njarðvík Elvar Már Friðriksson styrkti liðið
gríðarlega þegar hann kom frá Frakklandi.
Valur eða Stjarnan mun vinna sinn fyrsta bik-
armeistaratitil í körfubolta kvenna í dag en lið-
in mætast kl. 13.30 í Laugardalshöll.
„Ég hugsa að leikurinn byrji mjög jafn og að
Stjarnan standi mjög vel í Val fram í 3. leik-
hluta, en að þá sígi Valur fram úr. Valur er
bara með sterkasta hópinn í ár og ég held að
Stjarnan eigi því miður ekki möguleika í 40
mínútna leik við þær, ekki frekar en við á mið-
vikudaginn. Valskonur eiga það sterka leik-
menn, geta skipt vel inn á og ég held að Valur
vinni með að minnsta kosti 10 stiga mun,“ seg-
ir Gunnhildur Gunnarsdóttir, leikmaður Snæ-
fells, sem Morgunblaðið fékk til þess að spá í
spilin. Skammt er síðan Valur vann öruggan
sigur á Stjörnunni í deildarleik, og með Hel-
enu Sverrisdóttur innanborðs hefur liðið verið
á miklu flugi síðustu vikur og mánuði.
„Eins og allir hafa talað um síðustu vikurnar
er Helena klassa fyrir ofan aðra leikmenn í
þessari deild. Þar af leiðandi kæmi manni á
óvart ef hún skilaði ekki hörkuleik og leiddi lið-
ið til sigurs. En fyrir utan hana þá er fullt af
öðrum ótrúlega góðum leikmönnum í Valslið-
inu, sem ekki má gleyma. Þær eru búnar að
vera að spila ótrúlega flottan körfubolta,“ seg-
ir Gunnhildur. Hún segir Danielle Rodriguez
og Rögnu Margréti Brynjarsdóttur þurfa að
vera upp á sitt besta til að Stjarnan eigi von:
„Danielle hefur spilað frábærlega í vetur en
ég er hrædd um að Valur hafi varnarmenn til
að stöðva hana. Dani þarf að leiða liðið sitt
áfram og gera hinar stelpurnar í kringum sig
betri, en Stjarnan er með frábæra skotmenn
og búin að fá Rögnu Margréti inn sem styrkir
liðið heilan helling. Stjörnukonur hafa verið að
spila mjög vel og virðast mjög samheldinn
hópur, en ég held að reynslan í leikmönnum
Vals geri útslagið.“ sindris@mbl.is
Valur er með
sterkasta
hópinn í ár
Njarðvík er næstsigursælasta liðið í sögu bikar-
keppni karla í körfubolta og getur unnið sinn 9.
bikarmeistaratitil í dag en Stjarnan hefur unnið
alla þrjá titla sína á síðasta áratug, eftir að
Njarðvík landaði síðast titli. Liðin, sem eru efst
í úrvalsdeildinni í vetur, mætast í bikarúrslita-
leik kl. 16.30 í Laugardalshöll í dag.
„Ég held að þetta verði jafn leikur allan tím-
ann og að úrslitin ráðist bara á síðustu mín-
útunni. Njarðvík er kannski með „dýpri“ hóp en
bæði liðin eru mjög sterk og styttra síðan
Stjörnumenn voru í þessum sporum. Þetta
verður mjög jafnt og eitt skot til eða frá gæti
ráðið úrslitum,“ ssegir Kristófer Acox, leik-
maður KR. Stjörnumenn hafa unnið 13 sigra í
röð, í deild og bikar:
„Þeir eru að spila mjög góðan liðsbolta, þar
sem allir eru á sömu blaðsíðu og vita sitt hlut-
verk. Þeir hafa smollið mjög vel saman á gólfinu
og ekki vantar upp á hæfileikana hjá leikmönn-
unum,“ segir Kristófer, en Njarðvík er þó efst í
úrvalsdeildinni:
„Njarðvík þarf að keyra upp hraðann. Það
verður gaman að fylgjast með einvíginu á milli
Elvars [Más Friðrikssonar] og Ægis [Þórs
Steinarssonar]. Þeir vilja báðir sprengja upp
leikinn og það ræðst svolítið mikið af þeim
hvernig liðin spila. En bæði lið eru með marga
leikmenn sem geta stolið senunni. Ef Logi
[Gunnarsson] heldur áfram eins og í undan-
úrslitunum gegn okkur þá er hann líklegur til
þess. Elvar hefur varla stigið feilspor eftir að
hann sneri heim í vetur og Ægir og Hlynur
[Bæringsson] hafa sömuleiðis verið frábærir
fyrir Stjörnuna. Það er endalaust hægt að telja
upp menn, en ég held reyndar að úrslitin velti
mikið á því hvort liðið fær meira út úr þeim leik-
mönnum sem koma af bekknum. Þar gæti Logi
hjálpað Njarðvík gríðarlega.“ sindris@mbl.is
Gaman að sjá
einvígi Ægis
og Elvars
Willum Þór Willumsson varð í gær fyrsti
íslenski knattspyrnumaðurinn til að
semja við hvítrússneskt félag. Hann
gekk þá til liðs við BATE Borisov, sem
hefur orðið hvítrússneskur meistari 13
ár í röð, spilað níu sinnum í riðlakeppni
Meistaradeildar og Evrópudeildar, og
vann Arsenal 1:0 í 32ja liða úrslitum Evr-
ópudeildarinnar í fyrrakvöld.
Willum, sem er tvítugur, samdi við fé-
lagið til hálfs fjórða árs, eða til sumarsins
2022. BATE kaupir hann af Breiðabliki
en félögin höfðu áður komist að sam-
komulagi um kaupverðið.
Leikið er sumartímabil í Hvíta-
Rússlandi og deildakeppnin þar hefst í
lok mars. Willum hefur því svigrúm til að
laga sig að liðinu og aðstæðum áður en
tímabilið hefst. Sextán lið leika í úrvals-
deildinni sem er í gangi fram í lok nóv-
ember.
BATE er með sjö núverandi landsliðs-
menn Hvíta-Rússlands innanborðs og
liðið er byggt að stórum hluta á heima-
mönnum. Í hópnum eru þó einnig leik-
menn frá Finnlandi, Frakklandi og Serb-
íu. Liðið er frá Borisov, 150 þúsund
manna borg skammt norður af höfuð-
borginni Minsk.
Willum sprakk út með liði Breiðabliks
á síðasta tímabili en áður en það hófst
hafði hann leikið níu leiki í efstu deild.
Hann spilaði 19 leiki og skoraði í þeim 6
mörk, vann sér sæti í 21-árs landsliðiinu
um haustið og spilaði síðan sinn fyrsta A-
landsleik núna í janúarmánuði. vs@mbl.is
Willum brýtur blað með
samningi við BATE
Morgunblaðið/Hari
Borisov Willum Þór Willumsson flytur
úr Kópavogi til Hvíta-Rússlands.