Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 5
Slökkviliðsstjóri
Brunavarna á Austurlandi
Laust er til umsóknar starf slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum á Austurlandi.
Brunavarnir á Austurlandi er rekstrarsamlag, með lögheimili og starfsstöð slökkviliðsstjóra á Fljótsdalshéraði,
sem annast brunavarnir í sveitarfélögunum Borgarfjarðarhreppi, Djúpavogshreppi, Fljótsdalshéraði, Fljóts-
dalshreppi, Seyðisfjarðarkaupstað og Vopnafjarðarhreppi.
Starfssvið:
• Framkvæmdastjóri Brunavarna á Austurlandi
• Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliða í aðildarsveitarfélögunum
• Ráðning slökkviliðsmanna í samráði við varðstjóra á hverjum stað
• Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliða í aðildarsveitarfélögunum
• Úttektir, eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða
• Eftirlit með viðhaldi og fjárfestingum og tillögugerð þar um til viðkomandi sveitarstjórna
• Umsjón með fjárreiðum, stefnumótun og áætlanagerð í samráði við stjórn
• Samskipti við hagsmunaaðila
• Önnur þau verkefni er stjórn felur viðkomandi í samræmi við starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður skv. 17. gr. laga nr. 75/2000 og/eða hafa starfað
að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í
brunamálum
• Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
• Leiðtogahæfni
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Um fullt starf er að ræða en laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Æskilegt er að viðkomandi geti komið til starfa eigi síðar en í byrjun júlí 2019.
Allar frekari upplýsingar veita Björn Ingimarsson, formaður stjórnar Brunavarna á Austurlandi,
bjorni@egilsstadir.is og/eða Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi, baldur@brunavarnir.is.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019.
Umsóknir berist á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir merkt
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI BRUNAVARNA Á AUSTURLANDI eða á netfangið bjorni@egilsstadir.is
Fiskistofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan starfsmann í veiðieftirlit í Hafnarfirði eða á Höfn í Hornafirði
Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og þekkingarmiðlun.
Starfandi veiðieftirlitsmenn eru nær eingöngu karlar og er því athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim tilgangi að jafna
kynjahlutföll í starfsgreininni, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri.
Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr
upplýsingum um þá málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is.
Traust – Framsækni – Virðing
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sævar Guðmundsson, deildarstjóri í veiðieftirliti eða Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri
mannauðs og fjármála í síma 569 7900
Ferilskrá á íslensku sem hefur m.a. að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila sem og kynningar-
bréf þar sem hæfni viðkomandi umsækjanda í starfið er rökstudd sendist í gegnum heimasíðu fiskistofu, www.fiskistofa.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2019.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við SFR.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr.
2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í
2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Helstu verkefni:
• Eftirlit á sjó, en í því felst m.a. lengdarmæling á fiski og
tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með aflasamsetn-
ingu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla.
Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur
séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð.
• Eftirlit í landi, en það felur m.a. í sér eftirlit með löndun,
vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og afla-
samsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu
afladagbóka. Eftirlit með löndunum erlendra skipa og úttektir
á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og silungsveiði
ásamt skrifstofustörfum s.s. skýrslugerð þegar vettvangs-
störfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í
aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brota-
mála sem upp koma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Haldgóð reynsla af störfum í sjávarútvegi.
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta er áskilin.
• Gott heilsufar.
• Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.
• Sanngirni og háttvísi.
• Mjög góð hæfni í samskiptum nauðsynleg.
• Menntun sem nýtist í starfi s.s. skipstjórnarréttindi,
stúdentspróf eða iðnmenntun æskileg.
Vilt þú hjálpa okkur að gæta
hagsmuna þjóðarinnar?
Advania varð á dögunum
fyrsta upplýsingatæknifyr-
irtækið á Íslandi til að fá jafn-
launavottun. Advania upp-
fyllti allar kröfur sem liggja
til grundvallar fyrir vott-
uninni sem öll fyrirtæki á Ís-
landi með 25 starfsmenn eða
fleiri þurfa að undirgangast.
Fjölmennustu vinnustaðirnir
í landinu þurfa að hafa öðlast
vottunina fyrstir en smærri
fyrirtæki fá aðeins lengri
tíma til að aðlagast breyttu
lagaumhverfi.
Advania, sem er með um
650 starfsmenn, lauk forvinnu
í lok síðasta árs og hlaut jafn-
launavottun á dögunum. „Við
hjá Advania erum stolt af því
að hafa öflugt kerfi um okkar
launaákvarðanir sem útilokar
mismunun og krefst þess að
laun séu ákvörðuð með mál-
efnalegum hætti,“ segir Ægir
Már Þórisson, forstjóri Adv-
ania, í tilkynningu.
Útrýma ómálefna-
legum þáttum
Haft er eftir Sigrúnu Ósk
Jakobsdóttur, sérfræðingi í
mannauðsmálum hjá Adv-
ania, í tilkynningu að jafn-
launakerfið skili meiri aga í
launamálum. Þótt jafn-
launavottun snúist í daglegu
tali um jafnrétti kynjanna séu
áhrif hennar víðtækari. „Jafn-
launakerfið sem nú er búið að
votta snýr að því að fyrir-
0tækin útrými áhrifum ómál-
efnalegra þátta,“ segir Sigrún
Ósk, sem leiddi undir-
búningsvinnu fyrir jafn-
launavottun hjá Advania.
Advania Frá vinstri: Ægir Már Þórisson forstjóri og Sigrún
Ósk Jakobsdóttir, Þóra Helgadóttir og Hinrik Sigurður Jó-
hannesson sem öll sinna starfsmannamálum hjá fyrirtækinu.
Agi með vottun
Advania með jafnlaunastefnu
650 starfsmenn Víðtæk áhrif
Hönnunar- og ráðgjafarfyr-
irtækið Landark hefur verið
sameinað verkfræðistofunni
Eflu. Landark hefur frá
árinu 1983 starfað á sviði
landslags- og skipulagsmála
og hafa fyrirtækin átt í góðu
samstarfi um langt skeið.
Við þessar breytingar verð-
ur hjá Eflu til nýtt fagsvið;
Landark, sem Pétur Jóns-
son, áður framkvæmdastjóri
Landark, stýrir. Þeir sem
áður störfuðu hjá Landark
verða nú hluti af þessu nýja
fagsviði sem hefur komið sér
vel fyrir í höfuðstöðvum
Eflu á Lynghálsi 4 í Reykja-
vík.
Landark hefur getið sér
gott orð fyrir landslags-
hönnun í sinni fjölbreyttustu
mynd og kemur sameiningin
til með að styrkja enn frekar
starfsemi Eflu á sviði land-
mótunar, hönnunar og
skipulagsmála, segir í frétta-
tilkynningu.
Viðskiptavinir Eflu
spanna flest svið samfélags-
ins en kjarni þjónustu við þá
snýr að ráðgjöf við uppbygg-
ingu og rekstur innviða sam-
félagsins ásamt stuðningi við
framþróun atvinnulífsins.
Alls eru um 400 starfsmenn
hjá Eflu sem er með starf-
semi á tíu stöðum á landinu.
Landarksfólk Frá vinstri: Halla Hrund Pétursdóttir, Pétur
Jónsson og Matthildur Sigurjónsdóttir, vinna nú hjá Eflu.
Sameinast Eflu
Landark nú í stærri heild
Fulltrúar Háskólans í Reykjavík og Landsnet hafa skrifað
undir samstarfssamning til fimm ára um menntun og rann-
sóknir á sviði flutnings og vinnslu rafmagns. Landsnet verð-
ur, samkvæmt samningnum, stofnaðili að nýju rannsókn-
arsetri HR um sjálfbærni en meðal viðfangsefna þess má
nefna rannsóknir á flutningi raforku, nýtingu orkunnar, raf-
orkumarkaði, orkuskiptum, snjallnetum og stafrænni þróun.
Í samningnum er m.a. fjallað um mikilvægi þess að jafna
stöðu kynjanna í orkugeiranum. Sem liður í þessu tekur
Landsnet áfram þátt í átaksverkefninu Stelpur og tækni sem
HR stendur fyrir árlega, segir í tilkynningu. sbs@mbl.is
Landnet og HR í samstarf