Morgunblaðið - 08.02.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019
Slippurinn á Akureyri hefur samið við
norsku skipasmíðastöðina Vard um
smíði á millidekki fyrir nýjan togara.
4
08.02.2019
08 | 02 | 2019
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Auglýsingar
Valur Smári Heimisson
valursmari@mbl.is
Forsíðumyndina tók
Hafþór Hreiðarsson
Prentun
Landsprent ehf.
„Ísland á sér langa sögu hvað varðar að
ná árangri í sjávarútvegi, og af því geta
Íslendingar verið stoltir,“ segir breski
fjárfestirinn Mark Holyoake, sem steig
úr stóli stjórnarmanns Iceland Seafood
International fyrr í þessari viku.
Á fundi með blaðamanni var hann
snöggur til svars er hann var spurður
um sérstöðu íslensks sjávarútvegs:
„Þekkingargrunnurinn, verkkunn-
áttan og almenn viðurkenning sam-
félagsins á að sjávarútvegur sé alvöru-
atvinnugrein. Í viðskiptaumhverfinu í
Evrópu er litið á sjávarútveg sem nokk-
urs konar hliðargrein, en ekki megin-
atvinnugrein.“
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir tekur í
svipaðan streng þegar hún bendir á að
frá árinu 2012 hafi Nýsköpunarverð-
laun Íslands fimm sinnum fallið í skaut
fyrirtækja í sjávarútvegi. „Á Íslandi má
enda fullyrða að sjávarútvegurinn sé
prímus mótor í þekkingariðnaðinum í
heild sinni,“ segir hún.
Ingi Björn Sigurðsson, verkefnastjóri
hjá Icelandic Startups, hefur fundið fyr-
ir þessum krafti og vinnur nú að við-
skiptahraðli fyrir fyrirtæki í sjávar-
útvegi. Allt þetta og meira í þessu
nýjasta sjávarútvegsblaði 200 mílna.
Ljósmynd/Þröstur Njálsson
Íslendingar geti verið stoltir af árangrinum
Jens Garðar Helgason hefur tekið
við sem framkvæmdastjóri Laxa
fiskeldis. Hann ræðir við 200 mílur
um framtíðarmöguleikana.
10
Serge Nengali Kumakamba, sig-
urvegari Hnakkaþonsins síðustu
tvö ár, talar um notkun gervi-
greindar við sölu og markaðs-
setningu sjávarafurða.
24
Breski fjárfestirinn Mark Holyoake
segir frá þróun og örum vexti Ice-
land Seafood International, en hann
hætti stjórnarsetu fyrr í vikunni.
8
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir segir
mikilvægt fyrir stjórnvöld og fyrir-
tæki í sjávarútvegi að halda áfram
að styðja við nýsköpun.
16