Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 Þ etta verður fimmtándi hraðallinn hjá okkur í Ice- landic Startups, en þetta er í fyrsta sinn sem við einbeitum okkur aðeins að nýsköpun í íslenskum landbúnaði og sjávarútvegi. Þegar höfum við keyrt „Startup Reykjavík“ nokkrum sinn- um frá árinu 2012, „Startup Energy“, sem fer aftur í gang núna í vor og loks „Startup Tourism“, sem er í gangi einmitt núna,“ segir Ingi Björn í samtali við 200 mílur. Hann hefur að undanförnu ferðast vítt og breitt um landið og haldið kynningarfundi um þennan nýja hraðal. „Það hefur vægast sagt gengið virkilega vel og viðtökurnar hafa farið fram úr okkar björtustu von- um. Það hefur verið nánast fullt út úr dyrum alls staðar þar sem við höfum farið og tugir umsókna hafa þegar borist,“ bætir hann við, en umsóknarfrestur rennur út fimmtu- daginn 21. febrúar. „Við erum því mjög bjartsýn og það er sérstaklega skemmtilegt að heyra frá öllu þessu fólki sem við höfum ekki endilega haft mikla snertingu við áður, þar sem hraðl- arnir okkar hafa beinst í aðrar áttir til þessa. Í raun má segja að við séum að opna nýja glugga sem hing- að til hafa verið lokaðir.“ Nýta auðlindir og hráefni betur „Við finnum einnig fyrir mikilli und- iröldu í báðum þessum geirum og það hefur síðustu misserin gerst oft á dag að við fáum hringingar frá fólki sem ýmist er með hugmyndir að nýju fyrirtæki eða komið með sitt eigið fyrirtæki af stað. Allt sem tengist mat er að taka stórkostleg- um breytingum í dag og við megum ekki láta okkar eftir liggja hvað þessa þróun varðar. Þetta eru spennandi tímar.“ Spurður hvað í þessum hug- myndum felist segir Ingi Björn að nýsköpunin geti komið fram á marg- víslegan máta. „Það er verið að finna leiðir til að nýta auðlindirnar og hráefnið betur, finna nýja markhópa og loks verið að búa til tækni sem gerir ferlið frá uppruna til neytanda skilvirkara. Markmiðið um aukna sjálfbærni leikur svo auðvitað lykilhlutverk í þessu öllu. Hugmyndirnar sem við fáum á okkar borð snúast til að mynda að miklu leyti um að nýta ein- hver hráefni sem í dag er kastað til hliðar við vinnslu afurða.“ Ekki lokað fyrir eldri fyrirtæki Lögð er sérstök áhersla á sjálfbæra verðmætasköpun í þessum við- skiptahraðli. „Þessi áhersla er mjög mikilvæg fyrir IKEA, sem er einn bakhjarla verkefnisins, en þetta sjónarmið – að nýta hlutina betur – hefur verið ríkjandi hjá IKEA frá upphafi. Að nýta hlutina á sjálf- bæran hátt og að gera vinnsluferlið skilvirkara. Og ef það er hægt að beita þessu sjónarmiði í þessum tveimur gamalgrónu atvinnugeirum, þá er til mikils unnið að okkar mati.“ Ingi Björn segir nýsköpun aldrei fyrr hafa verið mikilvægari, þar sem hvert sem litið er séu miklar breyt- ingar í farvatninu. „Ef þú ert ekki viðbúinn breyting- unum, og tekur ekki þátt í að móta framtíðina geturðu lent í því að sitja eftir á meðan þín atvinnugrein þróast enn frekar.“ Á þessum nótum segir hann að ekki sé lokað fyrir að eldri og stönd- ugri fyrirtæki komist inn í hraðalinn. Það geti þau gert til að mynda með einhvers konar aukaafurð eða -fram- leiðslu sem þau vilji koma á fram- færi eða þróa betur. „Þegar öllu er á botninn hvolft er meginmarkmiðið enda að auka verðmæti og sjálf- bærni.“ Hugmyndirnar úr Kísildalnum Eins og áður kom fram er þetta í fyrsta sinn sem settur er á laggirnar viðskiptahraðall í landbúnaði og sjávarútvegi. Því liggur beint við að spyrja; hvers vegna nú? „Fyrir það fyrsta er þetta eitthvað sem við erum framúrskarandi góð í, það er sjávarútvegurinn. Í öðru lagi eru þær aðferðir sem við erum að notast við komnar frá Kísildalnum í Bandaríkjunum og í raun á hugtakið hraðall, eða „accelerator“, uppruna sinn að rekja þangað. Þær viljum við innleiða í þessar rótgrónu atvinnu- greinar og fá fyrirtækin sum hver til að hugsa eins og tæknifyrirtæki,“ segir Ingi Björn. „Það skiptir máli því á þessum tímapunkti erum við farin að sjá samkeppni alls staðar að, á borð við kjötlaust kjöt, fisklausan fisk og mjólkurlausa mjólk, sem koma ein- mitt meðal annars frá fyrirtækjum í kringum San Francisco. Við þurfum að búa okkur undir breytingarnar, sem eru þó fyrst og fremst hug- arfarslegar. Við höfum auðlindirnar og munum hafa þær áfram, en þetta snýst um að geta brugðist við sviptingum og örum breytingum hraðar en nokkru sinni áður. Það er það sem fyr- irtækin vestanhafs hafa – þessi rosa- legi viðbragðshraði. Hann fæst að- eins með virku og öflugu ný- sköpunarumhverfi, og við viljum stuðla að slíku umhverfi fyrir þessar atvinnugreinar hérna heima.“ Ísland í samkeppni við Kísildalinn Nýsköpun hefur aldrei verið mikilvægari en nú, segir Ingi Björn Sigurðsson, verkefnastjóri hjá Icelandic Startups, en fyrirtækið stendur nú fyrir viðskiptahraðlinum „Til sjávar og sveita“. Hraðallinn er sá fyrsti hér á landi til að beinast að nýjum lausnum og sjálfbærri verðmæta- sköpun í landbúnaði og sjávarútvegi. Ljósmynd/Þröstur Njálsson „Við höfum auðlindirnar og munum hafa þær áfram, en þetta snýst um að geta brugðist við sviptingum,“ segir Ingi Björn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ingi Björn segir nýsköpun aldrei fyrr hafa verið mikilvægari en á þessari stundu. Viðskiptahraðallinn mun fara fram í samstarfi við Íslenska sjáv- arklasann og með stuðningi IKEA á Íslandi, Matarauðs Íslands, HB Granda og Landbúnaðarklasans. Í gegnum þessa bakhjarla munu þátttakendur hljóta aðgang að tengslaneti og fagþekkingu sem á engan sinn líka á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Ice- landic Startups. „Til sjávar og sveita“ eigi að vera uppspretta nýrra vara og þjónustu og varpa ljósi á tækifærin sem felist í sjálf- bærri nýtingu auðlinda á Íslandi. Varpi ljósi á tækifærin Ingi Björn bendir á að fólkið sem skipi hvern hugmyndahóp eða fyrirtæki skipti höfuðmáli. „Góður hópur með lélega hug- mynd getur gert ýmislegt. Slæmur hópur með ótrúlega góða hugmynd verður hins vegar fljótt að engu. Þú getur breytt hugmyndinni en þú getur ekki breytt hópnum. Þess vegna leggjum við virkilega mikið upp úr því að fá góða hópa til starfa.“ Fólkið skipt- ir höfuðmáli Í sland hefur aftur orðið fyrir valinu sem vettvangur ráð- stefnunnar en það mun ekki aðeins vera vegna náinna tengsla við IceFish-sýninguna, heldur einnig vegna þess að Ísland hýsir marga af þeim frumkvöðlum sem eru að ryðja brautina í nýtingu fiskúrgangs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum, en í henni segir enn fremur að rannsóknir sýni að 43% af fiskauðlindum sé kastað til hliðar við vinnslu afurða. Þessi tala endurspegli þá staðreynd að tölu- verðan hagnað megi fá af því að vinna það sem annars fer til spillis. Hliðarafurðir í fiskvinnslu séu jafn- an ríkar að mögulega verðmætum olíum sem nota megi í matvælaiðn- aði, sem og öðrum efnum sem nýst geti fyrir framleiðslu lífeldsneytis, snyrtivara og lyfja. Ráðstefnan er sögð gefa þátttak- endum tækifæri til að bæta við þekkingu sína um hvernig hámarka megi ávöxtun af fjárfestingu í hlið- arafurðum fiskvinnslu. Með minnk- andi aflamagni og sífellt hækkandi kostnaði sé nú mikilvægara fyrir iðnaðinn en nokkru sinni fyrr að lágmarka úrgang og nýta tækifæri til að koma á fót viðbótartekju- stofni. Ráðstefnan hafi hingað til laðað til sín fjölda þátttakenda frá Evr- ópu og Norður-Ameríku, og rúmur helmingur þeirra hafi gegnt stöðu yfirmanna í sínum fyrirtækjum. „Þetta er viðburður sem eig- endur og framkvæmdastjórar fisk- veiðifyrirtækja, fiskvinnslna og eldisfyrirtækja verða að sækja, auk þeirra sem starfa við aðfangakeðj- ur í sjávarútvegi,“ segir í tilkynn- ingunni. „Á ráðstefnunni má upp- götva nýjar lausnir og fá innsýn í iðnaðinn, og ekki síður mynda tengsl við lykilfjárfesta í iðn- aðinum.“ Marianne Rasmussen, sem stýrt hefur IceFish-sýningunni frá árinu 1996, tekur fram að hún hafi séð með eigin augum hvernig minnk- andi aflamagn hafi haft áhrif á hagnaðarmöguleika í sjávarútvegi. „Það er orðið nauðsynlegt fyrir útgerðir, fiskeldisfyrirtæki og fisk- vinnslur að finna aðrar tekjulindir,“ segir hún. „Ráðstefnan hefur skap- að vettvang fyrir alla þessa hópa til að læra af þeim sérfræðingum sem eru að finna þessar leiðir.“ Mikilvægara en áður að nýta tækifærin Ráðstefnan „Fish Waste for Profit“ verður haldin í þriðja skipti í apríl á þessu ári, en þetta er í fyrsta sinn sem hún er aðskilin IceFish-sjávarútvegssýningunni. Marianne segir ráðstefnuna hafa skapað vettvang til að læra af sérfræðingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.