Morgunblaðið - 08.02.2019, Qupperneq 31
sem óðar héldu til sjávar til að að-
stoða skipbrotsmennina.
Lifðu hrakningana ekki af
Þegar komið var að mönnunum í
bátnum voru tveir þeirra látnir og
þeir sem eftir lifðu orðnir mjög
þrekaðir. Á leiðinni til bæjar féll
einn þeirra, Sigurjón Guðmundsson
1. vélstjóri, í dá. Voru þegar hafnar á
honum lífgunartilraunir og þær
gerðar stanslaust í fimm klukku-
stundir, en báru ekki árangur. Hafin
var leit að Óskari Vigfússyni og
fannst hann fljótlega við litla tjörn
skammt fyrir ofan fjöruna. Var hann
meðvitundarlaus, en rankaði við sér
þegar hann fékk aðhlynningu. Náði
hann þó ekki fullri meðvitund fyrr
en eftir um sólarhring.
Talin var mikil þörf á því að skip-
brotsmennirnir hlytu lækn-
ismeðferð, en símasambandslaust
var milli Grundarfjarðar og Stykk-
ishólms þar sem læknirinn sat. Var
gripið til þess ráðs að fara um borð í
bát þar sem náðist talstöðvar-
samband og lagði Ólafur Jónsson
læknir þá strax af stað. Enn var ekki
ferðaveður og tók það Ólaf um sex
klukkustundir að komast til skip-
brotsmannanna.
Skipverjarnir á Eddu, sem af
komust, þóttu hafa sýnt undravert
þrek og karlmennsku í hrakningum
þessum, en flestir höfðu hlotið nokk-
ur meiðsli og einn þeirra, Ingvar Ív-
arsson matsveinn, hafði meiðst all-
mikið á fótum í hrakningunum.
Mennirnir voru fluttir frá Suður-Bár
til Grafarness í Grundarfirði um
kvöldið og daginn eftir kom Guð-
mundur Jónasson á langferðabifreið
og flutti þá suður. Ingvar Ívarsson
var sá eini sem þurfti að fara í
sjúkrahús.
Sem fyrr greinir lágu nokkur skip
mjög nærri Eddu er slysið varð.
Meðal þeirra var vélbáturinn Svanur
frá Reykjavík sem Andrés Finn-
bogason var skipstjóri á.
Fyrr um daginn hafði nót bátsins
rifnað og verið tekin í land til við-
gerðar. Voru skipverjar að koma
henni um borð í nótabátinn aftur
þegar óveðrið skall á sem hendi væri
veifað og var veðurofsinn slíkur að
mennirnir þurftu að skríða á bryggj-
unni þegar þeir voru að koma nót-
inni um borð. Hélt Svanur síðan frá
bryggju og út á leguna og ákvað
Andrés að halda sig við skip sem
þarna voru og kom sér fyrir í ná-
munda við Eddu. Reyndist mjög erf-
itt að halda Svani á sama stað og fór
svo að bátinn hrakti nokkuð frá
Eddu.
Sást fljótlega til annars báts sem
var við legufæri og var Svani haldið
nærri honum um nóttina. En slíkur
var veðurofsinn að Andrés óttaðist
mjög um bát sinn og afdrif áhafn-
arinnar og íhugaði að hleypa Svani
upp í fjöruna til að tryggja öryggi
manna sinna. Var það ekki fyrr en
um hádegi daginn eftir að Andrés og
áhöfn hans fréttu um afdrif Eddu.
Daginn eftir slysið fannst svo
Edda á botni Grundarfjarðar. Eitt
skipanna sem leituðu síldar í firð-
inum varð vart við lóðningu um 800
metra frá landi, en þegar nótinni
var kastað festist hún og við nánari
athugun kom í ljós að olíubrák var á
sjónum.
Virtist augljóst að legufæri Eddu
hefðu slitnað skömmu eftir að skip-
inu hvolfdi og það rekið góðan spöl
frá landi áður en það sökk.
26. nóvember fór fram í Hafn-
arfjarðarkirkju minningarathöfn
um mennina sem fórust með Eddu
og jarðarför þeirra Alberts Egils-
sonar og Sigurjóns Guðmunds-
sonar. Var athöfn þessi ein sú fjöl-
mennasta sem fram hafði farið í
Hafnarfirði og meðal viðstaddra
voru forsetahjónin og séra Bjarni
Jónsson sem þá gegndi embætti
biskups.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjáns
„Fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn“, segir í laginu. Síldveiðar í Grundarfirði árið 2013, réttum sextíu árum eftir harmleikinn sem átti sér stað á sömu slóðum, þegar stormsveipur hvolfdi vélskipinu Eddu.
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2019 MORGUNBLAÐIÐ 31
Marás ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is - postur@maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
SANDFELL SU 75BJÖRG EA 7 HAFBORG EA 152
KORSØR skiptiskrúfa
VULKAN ástengi
YANMAR aðalvél
MEKANORD niðurfærslugír
NORIS viðvörunarkerfi
SLEIPNER bógskrúfa
SEAMECH vélstýring
STAMFORD ásrafali
BERG skiptiskrúfa
REINTJES niðurfærslugír
YANMAR aðalvél
YANMAR hjálparvél SCANTROL autotroll
NORSAP skipstjórastólar
Allt fyrir nýsmíðina
YANMAR aðalvél
FLOSCAN eyðslumælir
PRESTOLITE alternator
TEIGNBRIDGE skrúfa
LASDROP öxulþétti
POLY FLEX vélapúðar
SEPAR forsíur
EUROPAFILTER smursía
8" hljóðkútur
SIDE-POWER hliðarskrúfur
CENTA ástengi
SIMRAD sjálfstýring
ZF stjórntæki
ZF niðurfærslugír
Mótorpúðar fyrir flestar vélar Alternatorar og DC rafalar
TOIMIL
Löndunarkranar
Sjókopar - sjóinntök - sjósíur - lokar -zink 12V og 24V lensidælur
R
R
Stjórntæki og gírarHliðarskrúfurAðalvélar í skip og báta Rafstöðvar og ljósavélar
Allar gerðir af legum Skrúfur