Morgunblaðið - 27.02.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 27.02.2019, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 Skógarhögg við Miklubraut Þorsteinn Haraldsson og félagar hjá garðyrkjufyrirtækinu Hreinum görðum felldu nokkur tré úr landi Reykjavíkur milli Miklubrautar og Sogavegar. Hari Kaupmáttur launa jókst á síðasta ári um 3,7%. Árið á undan nam vöxturinn 5% og 9,5% árið 2016. Kaupmáttur launa hefur aukist á hverju einasta ári frá 2011, alls um 36%. Fjárhagsstaða heim- ilanna hefur gjörbreyst á síðustu árum. Skuldir eru um 75% af vergri landsframleiðslu og hafa ekki verið lægri frá 2003. Þessi bætta skulda- staða endurspeglast í auknu eigin fé heimila sem hefur ekki verið meira í tuttugu ár. Hagstofan bendir á að rekja megi bætta eiginfjárstöðu til aukningar ráðstöfunartekna. Jöfnuður innan ríkja OECD er hvergi meiri en á Íslandi og við stöndum nokkuð betur að vígi en aðr- ar Norðurlandaþjóðir. Fátækt er hvergi minni og mun minni en í vel- ferðarríkjum Noregs, Finnlands og Svíþjóðar. Góður árangur Við getum haldið áfram að líta á björtu hliðarnar:  Á Íslandi er launahlutfallið (% launa og launatengdra gjalda af þáttatekjum) hærra en í öllum öðr- um ríkjum OECD. Hlutfallið hefur hækkað verulega á síðustu árum eða úr 56,6% árið 2011 í 64,8% árið 2017. Þannig er hlutur launa að hækka en hlutur fyrirtækja að minnka.  Á Íslandi eru greidd næsthæstu meðallaunin meðal ríkja OECD. Aðeins í Sviss eru launin hærri.  Lágmarkslaun á Íslandi eru þau þriðju hæstu í lönd- um OECD. Í Noregi og Danmörku eru lágmarkslaunin hærri.  Síðustu ár hefur vöxtur kaupmáttar á Norðurlöndum verið mestur á Íslandi.  Jafnrétti kynjanna er hvergi meira en á Íslandi. Tíunda árið í röð eru Íslendingar leiðandi meðal þjóða í jafnréttismálum samkvæmt skýrslu Alþjóðaefna- hagsráðsins (World Economic Forum).  Ísland hefur síðustu ár notið lengsta tímabils verðstöðugleika. Á síðustu fimm árum hefur verð- bólga aldrei farið yfir 3% að með- altali, í þrjú ár var verðbólga undir 2% og í fjögur ár undir verðbólgu- markmiðum.  Vextir eru í sögulegu lágmarki.  Ísland er fyrirmyndarhagkerfi í úttekt Alþjóðaefnahagsráðsins. Aðeins Noregur er fyrir ofan okk- ur. Á mælikvarða „Inclusive Deve- lopment Index“, sem mælir ekki aðeins hagvöxt heldur ýmsa fé- lagslega þætti og hvernig ríkjum tekst að láta sem flesta njóta efna- hagslegs ávinnings og framfara og tryggja jöfnuð milli kynslóða, er Ísland í öðru sæti fast á eftir Nor- egi.  Vöxtur kaupmáttar á Íslandi er fordæmalaus. Á fjórum árum (2014-2017) jókst kaupmáttur ráð- stöfunartekna á mann um liðlega 25%.  Sex ár í röð hefur viðskiptajöfn- uður verið jákvæður.  Hrein erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð í fyrsta skipti í áratugi.  Íslendingar hafa síðustu átta árin notið eins lengsta hagvaxtarskeiðs Íslandssögunnar.  Íslenska heilbrigðiskerfið er það annað besta í heiminum sam- kvæmt úttekt sem birtist í Lancet, einu virtasta vísindariti heims á sviði læknisfræði.  Ísland er öruggasta og friðsamasta land heims samkvæmt „Global Peace Index“. Er allt í kaldakoli? Svarið er ein- falt. Nei, þvert á móti. Efnahagslegur árangur okkar Ís- lendinga á síðustu árum er óumdeild- ur og miklu betri en nokkur gat látið sig dreyma um þegar fjármálalegar hörmungar riðu yfir landið undir lok árs 2008. Ýmislegt lagðist gegn okkur en við bárum gæfu til að standa gegn því að þjóðnýta skuldir einkabanka. Uppgjör þrotabúa viðskiptabank- anna og stöðugleikaframlög til rík- isins skiptu miklu. Að grípa gæsina Við höfum fengið að njóta ótrúlegs uppgangs ferðaþjónustunnar á síð- ustu árum. Sumir halda því fram að um eins konar lottóvinning sé að ræða en með því er litið fram hjá eða gert lítið úr áralangri þrotlausri markaðssetningu og uppbyggingu ferðaþjónustunnar um allt land. Þar hafa einstaklingar og fyrirtæki lagt allt sitt undir í þeirri trú að í framtíð- inni yrði hægt að uppskera eins og til var sáð. Auðvitað hjálpaði Eyjafjallajökull. En íslenska landsliðið í knattspyrnu lagði einnig sín lóð á vogarskálarnar alveg eins og íslenskir listamenn, allt frá Björk til Of Monsters and Men, frá Mezzoforte til Kaleo, að ógleymdum Jóhanni heitnum Jóhannssyni tón- skáldi. Íslenskir kvikmyndagerðar- menn og leikarar sem gert hafa garð- inn frægan, hafa vakið athygli á þessari litlu þjóð. Rithöfundar hafa reynst góðir sölumenn Íslands í öðr- um löndum. Og þannig má lengi telja. Það voru einstaklingar, fjölskyldur – íslenskir framtaksmenn – sem tryggðu að tækifærin voru og eru nýtt. Það er vegna þeirra sem ferða- þjónustan varð drifkraftur hagvaxtar og skapaði forsendur fyrir ótrúlegri kaupmáttaraukningu. Framtaksfólkið – konur og karlar – greip gæsina þeg- ar færi gafst og þess vegna hefur hlut- ur ferðaþjónustunnar í landsfram- leiðslu tvöfaldast, þess vegna hefur viðskiptajöfnuður verið jákvæður síð- ustu ár og þess vegna hafa orðið til þúsundir nýrra starfa. „Breiðu bökin“ Flest fyrirtæki í ferðaþjónustu eru lítil eða meðalstór. Um 86% þeirra eru með tíu eða færri starfsmenn, rúm 11% eru með 11 til 49 starfsmenn. Um 2% fyrirtækja í ferðaþjónustu eru með 50 starfsmenn eða fleiri í vinnu. Reiknað er með samdrætti í ferða- þjónustu á þessu ári og það dregur úr vexti útflutnings. Með öðrum orðum; það kreppir að. Staða flugfélaganna er viðkvæm eins og þekkt er. Samkeppn- isstaða annarra ferðaþjónustufyrir- tækja hefur versnað enda kostnaður hækkað hressilega. Það er í ljósi (eða réttara sagt í skugga) þessara staðreynda sem nokkur verkalýðsfélög telja rétt að hefja verkfallsaðgerðir gagnvart ferðaþjónustunni. Forystumaður eins verkalýðsfélagsins segir að að- gerðir muni beinast að „breiðu bök- unum í ferðaþjónustunni“. Með þessu er reynt að réttlæta að verk- fallsvopninu sé beitt og gefið í skyn að aðgerðirnar komi ekki niður á öðrum en stærstu fyrirtækjunum. Ekkert er fjær sannleikanum. Verk- föll grafa undan ferðaþjónustunni, fyrst undan litlu og meðalstóru fyrir- tækjunum og síðan þeim stærri. Fyrirtæki leggja upp laupana og störfum fækkar. Eins og stundum áður verður landsbyggðin harðast úti. Réttur launafólks til að fara í verk- föll og knýja á um kjarabætur er óumdeildur. Vopnið er sterkt og ár- angursríkt sé því beitt af skynsemi. Hörð átök við fyrirtæki sem starfa innan atvinnugreinar sem glímir við samdrátt og verri samkeppnisstöðu, skila hins vegar engu í vasa launa- fólks – þvert á móti. Sá tími virðist að baki að megin- markmið kjarasamninga sé að við- halda stöðugleika og tryggja aukinn kaupmátt launa. Hugmyndir um að rétti tími til að sækja fram af hörku í kjarabaráttu sé í uppsveiflu efna- hagslífsins, hafa verið lagðar á hill- una. Hörkunni á að beita þegar slaki myndast á vinnumarkaði. Afleiðingin ætti að vera öllum ljós og þá kann svarið við spurningunni um kalda- kolið að verða jákvætt. Eftir Óla Björn Kárason »Verkföll grafa undan ferðaþjónustunni, fyrst undan litlu og með- alstóru fyrirtækjunum, síðan þeim stærri. Fyrir- tæki leggja upp laupana og störfum fækkar. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Er þá allt í kaldakoli?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.