Morgunblaðið - 27.02.2019, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Tuttugu sóttu um stöðu fram-
kvæmdastjóra Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands en eins og fram
hefur komið hefur fráfarandi
framkvæmdastjóri, Arna Kristín
Einarsdóttir, verið ráðin fram-
kvæmdastjóri kanadísku þjóðar-
hljómsveitarinnar í Ottawa (Can-
ada’s National Arts Centre Orch-
estra) og tekur við því starfi 1.
maí næstkomandi. Arna hefur
gegnt stöðu framkvæmdastjóra SÍ
frá árinu 2013.
Umsækjendurnir tuttugu um
stöðu framkvæmdastjóra hljóm-
sveitarinnar eru, í stafrófsröð:
Aino Freyja Jarvela forstöðu-
maður; Bjarni Þór Sigurðsson
framkvæmdastjóri; Bryndís
Einarsdóttir skólastjóri; Finnur Þ.
Gunnþórsson tryggingaráðgjafi;
Freyja Gunnlaugsdóttir aðstoð-
arskólameistari; Guðni Tómasson
listsagnfræðingur og dagskrár-
gerðarmaður; Gunnar Guðjónsson
MSc. í menningarfræðum; Hlynur
Ingason lögfræðingur; Jóhanna
Vigdís Arnardóttir verkefnastjóri;
Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri;
Lára Sóley Jóhannsdóttir verk-
efnastjóri; Magnús Bjarni Bald-
ursson viðskiptastjóri; Ólafur
Reynir Guðmundsson verkefna-
stjóri; Ólafur Kjartansson við-
skiptastjóri; Salvör Sigríður Jóns-
dóttir móttökuritari; Signý Leifs-
dóttir MA í menningarstjórnun;
Sverrir Jensson veðurfræðingur;
Tómas Örn Tómasson kvikmynda-
tökumaður; Þór Finnbogason
framkvæmdastjóri og Þór Saari
framkvæmdastjóri.
Tuttugu sóttu um hjá SÍ
Sóttu um stöðu framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það gefur Þjóðleikhúsinu smá
hlýju í hjartað og það er gaman að
geta stutt við leiklist á Grænlandi.
Það er einnig ánægjulegt að geta
flutt þekkingu og sérfræðikunnáttu
okkar til annarra landa,“ segir Ari
Matthíasson þjóðleikhússtjóri, en
Þjóðleikhúsið á í samstarfi við hið
nýstofnaða þjóðleikhús Grænlend-
inga um tvö verkefni, Þjóðleik og
nýja sýningu á
Ronju ræn-
ingjadóttur.
Ari segir
Grænlendinga
hafa sett Ronju
ræningjadóttur,
Ronja piiaasup
pania eins og
verkið útleggst á
grænlensku, á
svið í þjóðleik-
húsi Grænlendinga sem tekið var í
notkun árið 2011. Ronja ræningja-
dóttir er fyrsta leiksýningin sem
þjóðleikhúsin á Íslandi og Græn-
landi hafa sett upp í samstarfi.
Björn Ingi Hilmarsson leikstýrir,
Finnur Arnar Arnarson er leik-
myndahönnuður og Ólafur Ágúst
Stefánsson ljósahöfundur. Allir þrír
hafa komið að sýningunni Ronju
ræningjadóttur í Þjóðleikhúsinu, en
þar er um aðra uppsetningu að
ræða.
Þjóðleikur er að sögn Ara leik-
listarverkefni sem staðið hefur yfir
í 10 ár og er til þess hugsað að
styðja leikhópa 14 til 20 ára ung-
menna sem eru að taka sín fyrstu
skref í leiklist
„Þjóðleikhúsið fær þrjá góða ís-
lenska höfunda til að semja verk
fyrir leikhúsin á landsbyggðinni og
býður upp á námskeið í leikstjórn,
lýsingu og sviðsetningu. Eitt verk
er valið til að setja upp á hverjum
stað og á tveggja ára fresti er hald-
in hátíð þar sem afraksturinn er
sýndur,“ segir Ari, sem bendir á
nauðsyn þess að ungmenni fái að
efla sig og láta ljós sitt skína hvar á
landinu sem þau búa.
Stóð okkur nærri að hjálpa til
Ari segir að Íslendingar hafi ver-
ið í svipaðri stöðu og Grænlend-
ingar fyrir rúmum 100 árum þegar
þeir vildu vera þjóð meðal þjóða í
menningunni og eignast sitt eigið
þjóðleikhús.
„Það stóð okkur því nærri að
hjálpa til þegar Grænlendingar
eignuðust sitt fyrsta þjóðleikhús og
við buðum þjóðleikshússtjóra og
leikstjóra grænlenska þjóðleikhúss-
ins til okkar í kynningu á Þjóðleik
og starfseminni. Við höfum að auki
undanfarin fimm ár í samstarfi við
Kalak, vinafélag Grænlands og Ís-
lands, boðið börnum í 5. bekk
grunnskóla á austurströnd Græn-
lands á leiksýningu í Borgarleikhús-
inu og kynnisferð um húsið,“ segir
Ari og bendir á að uppfærslan á
Ronju á Grænlandi sé ný, verkið sé
farandsýning sem löguð sé að
grænlenskum aðstæðum með nýrri
tónlist eftir Gerth Lyberth. Leik-
arar í sýningunni séu átta en þátt-
takendur í Ronju í Þjóðleikhúsinu
séu á þriðja tug. Að sögn Ara hann-
aði Finnur leikmyndina þannig að
hægt sé að flytja hana milli staða á
Grænlandi með bát eða flugvél því
ekki sé hægt að keyra á milli staða
á Grænlandi nema á Nuuk-svæðinu.
Grænlensk uppsetning Ronju
Að því er Ara skilst er uppselt á
nær allar sýningar á Grænlandi.
Hann segir Þjóðleikhúsið og fleiri
eiga þann draum að geta boðið
Grænlendingum til Íslands með
sýninguna.
„Vigdís Finnbogadóttir og Auður
Hauksdóttir, forstöðumaður stofn-
unar Vigdísar, komu til fundar við
mig til að ræða möguleika á sam-
starfi stofnunar Vigdísar og Þjóð-
leikhússins. Ég stakk upp á að fá
grænlensku uppsetninguna á Ronju
ræningjadóttur til sýningar í Veröld
– húsi Vigdísar. Við þurfum að
finna leiðir til þess að fjármagna
það og vonandi getur vestnorræna
ráðið komið inn í verkefnið með
okkur,“ segir Ari, sem horfir aðal-
lega til kostnaðar vegna flugs og
gistingar.
Hann segir að vinna sé líka í
gangi um samvinnu við leikhús
Færeyinga.
„Í tímans rás og með auknu
tengslaneti leikstjóra og stjórnenda
leikhúsa bjóðast nú tækifæri til
þess að flytja út íslenska þekkingu
og færni og fá í staðinn listræna
þekkingu að utan og nýja sýn sem
hægt er að staðfæra að aðstæðum í
íslenskum leikhúsum,“ segir Ari og
bendir á vinnu Unu Þorleifsdóttur,
leikstjóra hjá Þjóðleikhúsinu, sem
dæmi um útflutning á íslenskri sýn
og stefnu.
Ari segir að Þjóðleikhúsinu hafi
boðist að senda til Póllands sýningu
á síðasta leikári en því miður hafi
ekki orðið af því. Úr hafi orðið að
Una Þorleifsdóttir leikstjóri færi til
Kielce í Póllandi og leikstýrði upp-
setningu á verkinu Um það bil eftir
Jonas Hassem Khemiri Kielce.
Leikritið hafði Una fært áður á svið
í Þjóðleikhúsinu. Um það bil verður
frumsýnt 16. mars að sögn Ara sem
segir að stefnt sé að leikferð til Pól-
lands á næsta ári.
Grænlensk Ronja
ræningjadóttir
Samstarf þjóðleikhúsanna á Íslandi og Grænlandi
Ljósmynd/Finnur Arnar Arnarson
Sígilt Ronja ræningjadóttir nýtur vinsælda í þjóðleikhúsi Grænlands.
Ari
Matthíasson
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn
Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn
Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 Auka
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 Auka
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn
Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn
Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn
Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Fim 7/3 kl. 18:00 Auka Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Fös 8/3 kl. 18:00 13.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 27/3 kl. 20:00
Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 28/2 kl. 19:30 Lau 2/3 kl. 22:00 Lau 9/3 kl. 19:30
Fös 1/3 kl. 19:39 Fim 7/3 kl. 19:30 Lau 9/3 kl. 22:00
Fös 1/3 kl. 22:00 Fös 8/3 kl. 19:30
Lau 2/3 kl. 19:30 Fös 8/3 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Miðasalan er hafin!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s
Lau 2/3 kl. 20:00 206. s Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Fös 8/3 kl. 20:00 207. s Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 9/3 kl. 20:00 208. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Sun 3/3 kl. 20:00 14. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Sun 10/3 kl. 20:00 49. s
Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 13/3 kl. 20:00 50. s
Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Fim 14/3 kl. 20:00 51. s
Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Lau 9/3 kl. 20:00 48. s Fös 15/3 kl. 20:00 52. s
Athugið, takmarkaður sýningafjöldi.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 1/3 kl. 20:00 39. s Fös 8/3 kl. 20:00 41. s Fös 15/3 kl. 20:00 43. s
Lau 2/3 kl. 20:00 40. s Lau 9/3 kl. 20:00 42. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fim 28/2 kl. 20:00 Frums. Sun 3/3 kl. 20:00 2. s Fim 7/3 kl. 20:00 3. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!