Morgunblaðið - 27.02.2019, Blaðsíða 27
Tónlistarráði Íslands 1999-2007 og
formaður 2005-2007, var í Norræna
félaginu á Íslandi 2002 -2009, vara-
formaður 2003-2005 og formaður
2005-2009, formaður stjórnar Kirkju-
bæjarstofu, rannsókna- og menn-
ingarseturs 2007-2010, formaður
rekstrarstjórnar Hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Klausturhóla 2007-
2010 og varaformaður stjórnar Vina
Vatnajökuls 2009-2015.
Bjarni hefur verið fulltrúi Íslands
á fjölmörgum ráðstefnum og sér-
fræðifundum víða um lönd um óperu-
starfsemi, listmenntun, hönnun,
hönnunarmenntun, kennaramenntun
og rannsóknir í menntamálum. Hann
hefur einnig komið fram fyrir hönd
Norðurlandanna við fjöldamörg
tækifæri í mörgum löndum. Hann
var eigandi og vert í Sjávarpakkhús-
inu, sumarveitingastað í Stykkis-
hólmi 2000-2005.
„Ég hætti að vinna þegar ég var 68
ára og elti konuna mína til Lúxem-
borgar þar sem hún var að vinna en
við erum nýkomin heim þaðan. Núna
er ég farinn að mála svolítið, hef enga
framadrauma á því sviði en er þó far-
inn að huga því að halda sýningu. Ég
fór aðeins að fikta við að mála fyrir
tíu árum en þá hafði liðið langur tími
frá því ég málaði síðast. Ég ætlaði
mér samt alltaf að verða skúlptúristi
en endaði á bak við skrifborðið.“
Þegar Bjarni lítur til baka er hann
þó mjög sáttur við starfsferilinn. „Ég
er búinn að koma víða við og satt að
segja hefur allt verið skemmtilegt og
spennandi. Kannski var eftir-
minnilegast að vera óperustjóri. Það
var allur pakkinn þar.“
Fjölskylda
Eiginkona Bjarna er Valgerður
Gunnarsdóttir Schram, f. 26.10. 1950,
sjúkraþjálfari og lýðheilsuræðingur.
Foreldrar hennar voru Rannveig G.
Ágústsdóttir, f. 1925, d. 1996, fram-
kvæmdastjóri Rithöfundasambands
Íslands, og Gunnar G. Schram, f.
1931, d. 2004, prófessor.
Börn Bjarna og Valgerðar eru 1)
Dýrleif, f. 1970, heimspekingur og
kennari í Albany, New York-ríki,
BNA; maki: Peter Matsuo, eðlis-
fræðingur og framkvæmdastjóri,
börn: Valgerður Þóroddsdóttir, ljóð-
skáld og útgefandi, Bjarni Þórodds-
son, stjórnmálafræðingur og verk-
efnastjóri í Ráðhúsi Reykjavíkur,
Benjamín Matsuo, og Ísak Matsuo;
2) Finnur, f. 1973, óperusöngvari,
bús. í Lewes, S-Englandi, maki: Sally
Matthews óperusöngkona, börn: Óð-
inn Finnsson Bell; Íris Matthews
Finnsdóttir og stjúpdóttir hans er
Grace Watmough; 3) Daníel, f. 1979,
tónskáld og hljómsveitarstjóri, maki:
Elísabet Alma Svendsen listfræð-
ingur, börn: Ríkharður Daníelsson
og Bjarni Daníelsson.
Systkini Bjarna eru Guðný Daní-
elsdóttir, f. 1939, læknir; Friðrik
Daníelsson, f. 1947, verkfræðingur,
og hálfbróðir samfeðra er Hörður
Rafn Daníelsson, f. 1934, ljósmynd-
ari.
Foreldrar Bjarna voru hjónin
Daníel Á. Daníelsson, f. 21.5. 1902, d.
22.11. 1995, læknir á Dalvík, og Dýr-
leif Friðriksdóttir, f. 14.10. 1906, d.
18.6. 1994, ljósmóðir og húsfreyja á
Dalvík.
Úr frændgarði Bjarna Daníelssonar
Bjarni Daníelsson
Finnur Daníelsson togaraskipstjóri áAkureyri
Guðný
aníelsdóttir
æknir í Rvík
D
l
Daníel Ágúst
Haraldsson
söngvari í
GusGus
Guðný Guðnadóttir
húsfreyja á Kirkjubóli
Finnur Eiríksson
bóndi á Kirkjubóli í
Valþjófsdal, Önundarfirði
Guðný Kristín Finnsdóttir
húsfreyja í Önundarfirði, á
Suðureyri, Ísafirði og í Rvík
Daníel Bjarnason
hákarlaskipstjóri í Önundarfirði, síðar
skipasmiður á Suðureyri og Ísafirði, síðast í Rvík
Guðrún Björnsdóttir
húsfreyja í Tannanesi
Bjarni Jónsson
bóndi í Tannanesi í Önundarfirði
Daníel Á. Daníelsson
læknir á Dalvík
Dýrleif Friðriksdóttir
ljósmóðir á Dalvík
Friðrik Sæmundsson
bóndi á Efri-Hólum og víðar í Núpasveit
Þórný Jónsdóttir
húsfreyja í Narfastaðaseli
Sæmundur Jónsson
bóndi í Narfastaðaseli í Reykjadal, S-Þing.
Dýrleif Kristjánsdóttir
húsfreyja á Syðri-Brekkum
Guðrún Halldórsdóttir
ljósmóðir í Núpasveit
Þórný Friðriksdóttir skólastj. Húsmæðrask. á Hallormsstað
alldóra Friðriksdóttir
kennari í Rvík
HGuðrún Sigurðardóttir
úsfreyja á Hallormsstaðh
S.Björn Blöndal gítarleikari
í Ham og fv. borgarfulltrúi
óhann Friðriksson
orstjóri Kápunnar
J
f
Ingibjörg Jóhannsdóttir
skólastj. Landakotsskóla
Sæmundur Friðriksson frkvstj.Bændahallarinnar
Guðrún Sigríður Friðriksdóttir kennari áAkureyri
Kristján Friðriksson forstjóri ÚltímaGuðrún Kristjánsdóttirmyndlistarmaður
Karl Björnsson frkvstj.
Sambands ísl. sveitarf.
Björn Þórhallsson formaður
VR og varaforsetiASÍ
Margrét Friðriksdóttir
húsfr. á Kópaskeri
Guðrún Stefánsdóttir arkitekt Svanhvít Friðriksdóttir háskólalektor
Halldór Guðbrandsson
bóndi á Syðri-Brekkum á
Langanesi
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019
Kjartan Ólafsson fæddist 27.febrúar 1919 á Krosshóli íSvarfaðardal. Foreldrar
hans voru hjónin Ólafur Sigurðsson,
f. 1891, d. 1952, bóndi á Krosshóli og í
Syðra-Holti, og Kristjana Jónsdóttir,
f. 1882, d. 1970, húsfreyja. Foreldrar
Ólafs voru hjónin Sigurður Ólafsson,
bóndi á Krosshóli, og Júlía Runólfs-
dóttir. Foreldrar Kristjönu voru Jón
Halldórsson, bóndi og smáskammta-
læknir á Hofsá og víðar í Svarfaðar-
dal, og Helga Guðmundsdóttir, bú-
stýra Jóns.
Kjartan vann að búi foreldra sinna,
uns hann lauk gagnfræðaprófi 1939
frá Menntaskólanum á Akureyri eftir
tveggja vetra skólasetu þar. Hann
stundaði síðan daglaunastörf á sumr-
um við höfnina í Reykjavík og víðar
meðan hann var í menntaskóla og há-
skóla. Hann lauk stúdentsprófi utan-
skóla frá Menntaskólanum í Reykja-
vík árið 1942 og læknaprófi frá
Háskóla Islands árið 1952. Nám í
menntaskóla og háskóla hafði þá
dregist á langinn vegna fjárskorts.
Kjartan hafði þá einnig fyrir heim-
ili að sjá því að árið 1949 hafði hann
kvænst Klöru Kristinsdóttur, f. 21.10.
1922, d. 2.1. 2010, hjúkrunarkonu.
Börn þeirra eru Þorsteinn, f. 1950,
Ólafur Kristinn, f. 1954, og Þórunn
Sólveig, f. 1955.
Kjartan starfaði fyrst á ýmsum
stöðum við læknisstörf, t.d. á sjúkra-
húsum í Reykjavík og á Blönduósi.
Hann var læknir við ameríska sjúkra-
húsið á Keflavikurflugvelli 1954-1956,
og lagði þá jafnframt stund á tann-
læknanám við HÍ sem hann lauk
1957.
Sama ár varð hann læknir á
Seyðisfirði og stundaði jafnframt
tannlækningar víða á Austurlandi.
Hann tók við stöðu héraðslæknis á
Seyðisfirði 1968.
Kjartan sat í bæjarstjórn Seyðis-
fjarðar frá 1962 til dauðadags og var
þekktur fyrir dugnað sinn og ósér-
plægni bæði í læknastörfum sínum og
sveitarstjórnarmálum.
Kjartan fékk kransæðastíflu 13.
desember 1973 og lést sama dag.
Merkir Íslendingar
Kjartan
Ólafsson
100 ára
Líney Guðmundsdóttir
95 ára
Brynhildur Jónsdóttir
90 ára
Sigríður S. Guðmundsdóttir
Þorgeir Þorkelsson
85 ára
Erla Eggertsdóttir
Guðrún M. N. Friðriksdóttir
Jónína Sigurðardóttir
Ólafía Jóhanna Bjarnadóttir
80 ára
Einar Hilmar Jónmundsson
Kristín Valtýsdóttir
Oddný Guðfinna Jóhannsd.
75 ára
Alexander Georg Árnason
Auður Sigurðardóttir
Ásgrímur Ingi Ingólfsson
Guðlaug Steingrímsdóttir
Jóhann Jóhannsson
Jóna Steinunn Sveinsdóttir
70 ára
Bjarni Daníelsson
Guðrún Kristjánsdóttir
Katrín Gísladóttir
Margrét Anna Hjaltadóttir
Ragna Fossberg
Ragnheiður Hauksdóttir
Sveinbjörn Kr. Stefánsson
Þorvaldur Kristjánsson
60 ára
Anna B. Steindórsdóttir
Aree Naxdontree
Ásdís Einarsdóttir
Bryndís Guðjónsdóttir
Guðmundur B. Kristinsson
Haukur Emilsson
Helga Margrét Björnsdóttir
Ingigerður Arnljótsdóttir
Jarle Reiersen
Jón Einarsson
Kristín Magnúsdóttir
Óskar Baldursson Bech
Páll Brynjarsson
Rósa Hansen
Sigurður Þorri Sigurðsson
Sigurgeir E. Jóhannsson
Sigurjón Helgi Hjelm
50 ára
Arnar Tryggvason
Ecaterina Vilceanu
Guðni G. Borgarsson
Hlynur Sigmarsson
Jón Auðun Sigurjónsson
Kristján B. Thorlacius
Kristján Garðarsson
Maríanna Garðarsdóttir
Svandís Guðmundsdóttir
40 ára
Benedikt Viðarsson
Eðvarð Árni Kjartansson
Emma Ann Shannon
Ester Jóhannesdóttir
Ester Marít Arnbjarnard.
Gintaras Rutkauskas
Jessica Faustini Aquino
Pedro N.F.M. Peneiras
Sigríður Björnsdóttir Arnar
Sigurrós Jónasdóttir
30 ára
Arnar Friðrik Albertsson
Ásta Kristín Svansdóttir
Daniel Tytla
Elías Sæbjörn Eyþórsson
Ernir Skorri Pétursson
Ingvi Már Gíslason
Jan Budka
Jóna Sigríður Halldórsd.
Jurgita Mazeikaité
Kristrún Anna Óskarsdóttir
Sigurlaug Arna Sævarsd.
Þórdís Hrund Þórðardóttir
40 ára Árni er frá Súðavík
en býr á Akureyri. Hann er
vinnslurafvirki hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa.
Maki: Margrét Sonja Við-
arsdóttir, f. 1974, vinnur
hjá Skíðaþjónustunni.
Börn: Kara Margrét, f.
2009, Maron Már, f. 2012,
og Lovísa Mía, f. 2014.
Foreldrar: Skafti Jóhanns-
son, f. 1960, smiður í Mos-
fellsbæ, og Ragnheiður
Árnadóttir, f. 1961, rekur
gistiheimili á Laugum.
Árni Kristinn
Skaftason
30 ára Bryndís er úr
Kópavogi en býr í Hafnar-
firði. Hún er vaktstjóri í
flugumsjón hjá Wow air.
Maki: Finnbogi Árnason,
f. 1988, smiður hjá ÞG
verki.
Dóttir: Snædís Lilja, f.
2015.
Foreldrar: Pétur Arnar-
son, f. 1956, flugstjóri hjá
Icelandair, og Magnea
Lilja Haraldsdóttir, f.
1958, bókari hjá ÁTVR.
Þau eru bús. í Kópavogi.
Bryndís
Pétursdóttir
40 ára Lena er Breiðhylt-
ingur, er með BS í ferða-
málafr. og viðskiptafr. og
vinnur hjá Sensa.
Maki: Vignir Daði Val-
geirsson, f. 1976, rafvirkja-
meistari og eigandi RBM.
Börn: Valgeir Nils, f.
2002, Hulda Hanna, f.
2006, og Óliver Atli, f.
2011.
Foreldrar: Nils Nilsen, f.
1943, d. 2015, og Edda
Hulda Waage, f. 1946, d.
2015.
Lena Hulda
Nilsen
Til hamingju með daginn
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
2-3 svefnherbergi
2 baðherbergi
Flott hönnun, vandaður frágangur
Frábært útsýni
Geymsla og stæði í bílakjallara
Hægt að velja um tilbúnar íbúðir
eða íbúðir í byggingu
Alg jör paradís fyrir golfara
Verð frá 32.700.000 iskr.
(246.000 evrur, gengi 1evra/133 Ikr)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
GLÆSILEGAR LÚXUSÍBÚÐIR
Las Colinas
margverðlaunað sem eitt besta golfsvæðið á Spáni