Morgunblaðið - 19.02.2019, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur Þjálfarar Vals, Guðlaugur Arnarsson og Snorri Steinn Guðjónsson, voru fyrstir
til að bóka sæti í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í karlaflokki með öruggum sigri á Selfossi. 3
Íþróttir
mbl.is
NÆRMYND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Arnar Guðjónsson stýrði Stjörnunni
til sigurs í Geysis-bikarkeppni karla í
körfuknattleik í Laugardalshöllinni á
laugardaginn. Arnar tók við liði
Stjörnunnar síðasta sumar og landaði
nú sínum fyrsta bikar í stærstu
keppnunum hérlendis.
Blaðamaður á Morgunblaðinu
hafði á orði í gær að Arnar væri eins
konar huldumaður í körfuboltanum, í
það minnsta í einhverjum skilningi.
Var þar átt við að þegar Arnar kom
inn í þjálfarateymi karlalandsliðsins
árið 2014 var hann lítt þekktur í ís-
lensku íþróttalífi. Af meistaraflokks-
þjálfara að vera er Arnar auk þess í
yngri kantinum, 33 ára.
„… hef ég mikla trú á Arnari Guð-
jónssyni þjálfara. Gaman verður fyrir
hann að sanna sig almennilega hérna
heima,“ sagði Finnur Freyr Stefáns-
son aðstoðarlandsliðsþjálfari í Morg-
unblaðinu áður en Íslandsmótið fór af
stað en hann starfaði með Arnari í
mörg ár í íslenska landsliðinu. Þar
reyndist Finnur sannspár og sendi
hann Arnari kveðjur á Twitter þegar
bikarinn var farinn í Garðabæinn á
laugardagskvöldið: „Virkilega flottur
og vel útfærður bikarsigur hjá
Stjörnunni. Minn maður Arnar að
þagga niður í ansi mörgum efasemd-
armönnum, fagnar þessu eflaust í
kvöld með soðinni ýsu, smjöri og
aukaskammti af kartöflum og
kannski eins og einum bauk. Til ham-
ingju Stjarnan.“
Uppalinn í Borgarfirðinum
Arnar Guðjónsson er frá Brekku-
koti í Reykholtsdal í Borgarfirði og
lék körfubolta með Reykdælum,
Skallagrími og Sindra. Arnar þjálf-
aði hjá Sindra á Hornafirði og FSu á
Selfossi. Viss þáttaskil urðu hjá
Arnari sem þjálfara árið 2009 þegar
hann hugðist fara í Íþróttakennara-
skólann um haustið og feta í fótspor
föður síns sem er íþróttakennari á
Kleppjárnsreykjum. Amor greip inn
í þá atburðarás og þess í stað elti
Arnar kærustu sína til Árósa þar
sem hún nam læknisfræði.
Úr varð að Arnar fór til Árósa og
þjálfaði hjá Abyhöj. Starfaði hann
um tíma með Allan Foss, fyrrver-
andi landsliðsþjálfara Dana. Arnar
var aðstoðarþjálfari 2009-2011 en
stýrði liðinu 2011-2013.
Þaðan fór Arnar til Svendborgar
og gerðist aðstoðarþjálfari Craigs
Pedersen. Hófst þar þeirra sam-
starf. Arnari tók við starfinu af Ped-
ersen árið 2015 en hætti þegar
samningur hans rann út 2017.
Þegar Pedersen var ráðinn lands-
liðsþjálfari Íslands árið 2014 kom
Arnar inn í þjálfarateymi landsliðs-
ins ásamt Finni Frey Stefánssyni.
Arnar hafði komið að þjálfun ung-
lingalandsliðs Dana.
Hreinskilinn og harðduglegur
Morgunblaðið leitaði til Axels
Kárasonar og bað hann að lýsa
Arnari. Axel var leikmaður hjá
Svendborg og var einnig í íslenska
landsliðinu á EM í Berlín. Hann
þekkir því vel til Arnars. „Það fyrsta
sem kemur upp í hugann er að Arnar
er alveg harðduglegur í öllum þeim
þáttum sem snúa að þjálfuninni. Ég
held að hann hafi fengið gott uppeldi
sem þjálfari hjá Brynjari Karli (Sig-
urðssyni) þegar þeir störfuðu saman
á Selfossi. Var það örugglega lær-
dómsríkt aðstoðarþjálfarastarf sér-
staklega hvað varðar alla undirbún-
ingsvinnu fyrir leiki, skipulag og
fleira. Það fyrsta sem ég tók eftir var
hversu fær hann er í ýmsum þáttum
sem lenda á aðstoðarþjálfurum eins
og vídeóvinnslu.
Hann er auðvitað mjög ungur og
eðlilega vantaði hann til að byrja með
einhverja eiginleika sem þjálfari sem
stjórnar þarf að hafa. Eins og að
stjórna hópnum og vera pólitíkus.
Hann hefur tekið miklum framförum
í því finnst mér enda nálgast hann lið-
in með opnum huga. Hann aðlagar
sig hópnum sem hann hefur frekar en
að troða leikmönnum inn í einhver
hólf. Hann er góður í að átta sig á
hvar styrkleikar manna liggja sem er
kostur þegar þú þjálfar lið þar sem
ekki er endalaust hægt að sækja
menn til að fylla skörðin, eins og í
hálfatvinnumannaliðum á Íslandi.
Auk þess er hann hreinskilinn í sam-
skiptum en í einhverjum tilfellum
getur það einnig verið ókostur.“
Persóna sem kryddar tilveruna
„Hans helsti ókostur er að hann
hefur svokallað Brekkukotsskap sem
þýðir að hann er skapstór. Sást það
glögglega í Ásgarði í vetur í leik á
móti KR eins og frægt varð. (Arnar
stormaði þá inn á völlinn í miðjum
leik og fékk leikbann fyrir. Innsk
mbl.). Þá kom upp í hugann að þar
þekkti ég minn mann enda kom þessi
uppákoma mér ekkert á óvart,“ sagði
Axel og hló.
„Utan vallar er hann mjög áhuga-
verð persóna. Er ekki eins og fólk er
flest að mörgu leyti í jákvæðum skiln-
ingi. Hann er allt annað en leiðinlegur
og er skemmtilegt krydd í tilveruna.“
Axel hafði þekkt Arnar lengi þegar
Arnar tók þá ákvörðun síðasta sumar
að koma heim og taka við Stjörnunni.
Átti Axel von á því að Arnar yrði far-
sæll í Garðabænum? „Ég ræddi við
Arnar þegar hann var nýkominn.
Þegar ég heyrði hann lýsa sam-
skiptum hans við stjórnina varð ég
mjög bjartsýnn fyrir hans hönd. Þeg-
ar ég heyrði hvernig hann og stjórn-
armennirnir höfðu lagt línurnar. Þá
hugsaði ég með mér að hann væri
kominn á góðan stað. Arnar er fag-
legur og vinnur eftir prinsippum sem
ég er hrifinn af. Hann þarf því að
vera í góðu umhverfi,“ sagði Axel
Kárason.
Morgunblaðið/Eggert
Bikarmeistari Arnar Guðjónsson fer yfir sviðið með leikmönnum sínum í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn þar sem Stjarnan vann Njarðvík 84:68.
Allt annað en leiðinlegur
Hvaðan kom bikarmeistarinn Arnar Guðjónsson inn í íslenskan körfubolta?
„Brekkukotsskapið“ sýndi sig í atvikinu á móti KR að mati Axels Kárasonar
Hlynur Bærings-
son, landsliðsfyr-
irliði í körfuknatt-
leik og fyrirliði
bikarmeistara
Stjörnunnar, til-
kynnti í gær að
leikur Íslands og
Portúgals í for-
keppni EM karla í
Laugardalshöll á
fimmtudags-
kvöldið yrði kveðjuleikur sinn með
landsliðinu. Áður hafði verið gefið út
að þar myndi Jón Arnór Stefánsson
spila sinn 100. og síðasta leik fyrir Ís-
lands hönd.
Hlynur, sem er 36 ára og lék fyrsta
landsleikinn fyrir nítján árum, spilar
þar sinn 125. leik en hann er sjötti
leikjahæsti leikmaður landsliðsins frá
upphafi og hefur verið í stóru hlut-
verki þar um árabil, m.a. farið með
liðinu í lokakeppni EM 2015 og 2017.
Hlynur sagði í viðtali við mbl.is sem
sjá má þar í heild sinni að hann vildi
hætta á meðan hann væri enn valinn í
liðið „… en ekki bara fljótandi með af
því að maður hefur alltaf verið
þarna“.
Auk Hlyns og Jóns Arnórs eru eft-
irtaldir í 17 manna hópi fyrir leikinn
sem Craig Pedersen tilkynnti í gær:
Collin Pryor, Dagur Kár Jónsson,
Elvar Már Friðriksson, Gunnar Ólafs-
son, Haukur Helgi Pálsson, Haukur
Óskarsson, Hjálmar Stefánsson,
Hörður Axel Vilhjálmsson, Kristinn
Pálsson, Kristófer Acox, Maciej Bag-
inski, Martin Hermannsson, Sig-
tryggur Arnar Björnsson, Tryggvi
Snær Hlinason og Ægir Þór Steinars-
son. vs@mbl.is
Hlynur kveð-
ur líka á
fimmtudag
Hlynur
Bæringsson
„Það var kær-
komið að komast
út á völlinn aftur
og ná að leika
með í 35 mín-
útur,“ sagði Arn-
ór Þór Gunn-
arsson, landsliðs-
maður í hand-
knattleik og
leikmaður þýska
1. deildar liðsins
Bergischer HC, við Morgunblaðið í
gær. Arnór Þór skoraði sex mörk á
sunnudaginn þegar Bergischer vann
Wetzlar, 26:22, í þýsku 1. deildinni.
Það var fyrsti leikur Arnórs síðan
hann tognaði á læri í viðureign Ís-
lands og Þýskalands á HM í hand-
knattleik laugardaginn 19. janúar.
„Ég fann það alveg að þessar fjórar
vikur tóku hlaupapústið úr mér en
gott að fá nokkrar mín til að ná því
upp aftur,“ sagði Arnór Þór sem
fann ekki sársauka í lærvöðvanum í
leiknum. iben@mbl.is
Kærkomið að
komast út á
völlinn aftur
Arnór Þór
Gunnarsson