Morgunblaðið - 21.02.2019, Qupperneq 1
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Ráðist var á Róbert Aron Hostert,
leikmann Vals, í miðbæ Reykjavíkur
á dögunum þar sem hann beið eftir
leigubíl eftir að hafa verið að
skemmta sér með félögum sínum í
handknattleiksliði Vals. Árásar-
maðurinn tók til fótanna eftir að hafa
veitt Róberti þungt hnefahögg rétt
neðan við vinstra augað.
Róbert Aron staðfesti þetta í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Sagði
hann árásina hafa verið tilefnislausa.
Hann hefði ekki átt í orðaskiptum við
árásarmanninn hvorki fyrir né á eftir
árásina. Róbert Aron segist heldur
ekki þekkja til árásarmannsins.
Vegna þessa leikur Róbert Aron
ekki með Val næstur vikurnar en
hann gekkst undir aðgerð á sjúkra-
húsi á síðasta föstudag vegna
sprungunnar sem kom í kinnbeinið
við höggið.
„Reiknað er með að það taki mig
sex vikur að ná fullum bata,“ sagði
Róbert Aron í gær. Hann fer í skoð-
un hjá lækni í dag. Þá skýrist hver
staðan nákvæmlega er.
„Ég spilaði einn leik eftir að hafa
orðið fyrir árásinni en var ekki alveg
eins og ég átti að vera. Í fyrstu var
talið að ég væri aðeins með glóðar-
auga sem myndi jafna sig. Staðan
væri ekki alvarlegri, en annað kom í
ljós,“ sagði Róbert Aron.
„Ég lét mynda kinnbeinið og þá
kom sprungan í ljós. Það hefði getað
verið hættulegt ef ég hefði fengið
annað högg í leiknum sem ég spilaði,“
sagði Róbert Aron, sem sló á létta
strengi enda gott að brosa gegnum
tárin.
„Áður en ég fór í myndatökuna
grunaði mig að ekki væri allt með
felldu þegar ég sá með vinstra aug-
anu tvo markverði,“ sagði Róbert Ar-
on Hostert, handknattleiksmaður hjá
Val. Hann er þriðji markahæsti leik-
maður Valsliðsins í deildinni með 56
mörk.
Úr leik í ótiltekinn tíma
Félagi Róberts Arons, Agnar
Smári Jónsson er með brjósklos á
byrjunarstigi. Hann verður frá
keppni um ótiltekinn tíma. „Ég hafði
verið hálfslappur síðasta mánuðinn
en versnaði til muna í leiknum við ÍR
á dögunum. Þá fékk ég svakalegan
verk í bakið eitt skiptið þegar tók
skot á markið,“ sagði Agnar Smári.
„Ég er í góðum höndum í endurhæf-
ingu hjá mínu félagi um þessar mund-
ir en verð að gæta mín á að fara ekki
of geyst í sakirnar. Það er ekkert inni
í myndinni að fara undir hnífinn,“
sagði Agnar Smári sem hefur skoraði
52 mörk fyrir Val í deildarkeppninni.
Ráðist var á Róbert
Aron í miðbænum
Valsliðið er vængbrotið Agnar Smári með brjósklos
Morgunblaðið/Ívar
Kinnbeinið Róbert Aron Hostert
verður frá í einar sex vikur.
Morgunblaðið/Ívar
Bakið Agnar Smári Jónsson glímir
við brjósklos og spilar ekki strax.
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2019
ÍÞRÓTTIR
Kveðjustund Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson leika síðasta landsleik sinn í Laugar-
dalshöll í kvöld þegar Ísland mætir Portúgal í forkeppni Evrópumóts karla í körfuknattleik. 2-3
Íþróttir
mbl.is
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Þetta er vonandi fyrsta skrefið af
fleirum á næstu árum. Mér líst vel á
og ég hlakka til,“ sagði handknatt-
leiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson í
samtali við Morgunblaðið í gær eftir
að upplýst var að hann hefði skrifað
undir tveggja ára samning við
sænska úrvalsdeildarliðið Alingsås.
Samningurinn tekur gildi í sumar og
þá yfirgefur Aron Dagur Stjörnuna í
Garðabæ eftir tveggja ára veru.
Alingsås er frá samnefndum bæ
skammt frá Gautaborg. Liðið er eitt
af rótgrónari handknattleiksliðum
Svíþjóðar og situr um þessar mundir
í 7. sæti úrvalsdeildarinnar. Haukar
mættu liði Alingsås í annarri umferð
EHF-keppninnar í október 2016 og
töpuðu samanlagt með fjögurra
marka mun í tveimur leikjum heima
og að heiman.
Aron Dagur heimsótti félagið og
skoðaði aðstæður hjá því áður en
hann skrifaði undir samninginn.
Einnig ræddi Aron Dagur við Mikael
Franzén þjálfara og heyrði ofan í
hann hvert hlutverk hans verður.
„Ég er fenginn til liðsins sem lyk-
ilmaður og er ætlað að leika stórt
hlutverk jafnt í vörn sem sókn. Þar
af leiðandi stendur upp á mig að
standa mig þegar tímabilið hefst,“
sagði Aron Dagur, sem verður 22 ára
á þessu ári og er 199 sentimetrar á
hæð, eftir því sem segir á heimasíðu
sænska félagsins. Hann leikur jafnt
sem leikstjórnandi og skytta vinstra
megin og býst við að gera það áfram.
Aron er næstmarkahæsti leikmaður
Stjörnunnar í Olísdeildinni með 70
mörk að loknum 15 leikjum.
„Þjálfarinn gerir ekkert upp á
milli miðjumanna og skyttanna.
Hann vill að sínir menn geti leikið
báðar stöður. Ég reikna þó með að
vera meira í skyttustöðunni vinstra
megin ef Svínn Felix Claar leikur
áfram með Alingsås á næstu leiktíð.
Annars er ég tilbúinn að leika hvora
stöðuna sem er,“ sagði Aron Dagur
þegar hann var spurður hvort hann
hefði gert upp við sig hvora sóknar-
stöðuna hann vildi leika.
Kann vel við varnarhlutverkið
Aron Dagur á að leika í miðri vörn-
inni eða sem fremsti maður í 5/1 vörn
en það er hlutverk sem hann kann
vel við og hefur náð ágætum tökum á
með Stjörnunni, Gróttu á sínum tíma
og einnig með yngri landsliðum Ís-
lands. „Mér finnst geggjað að leika
sem fremsti maður í vörn,“ sagði
Aron Dagur ákveðinn.
„Ég held að um þessar mundir sé
ég vel búinn undir að fara til Alings-
ås, þá á ég við varðandi hlutverk
mitt, stöðu liðsins og fyrir hvað það
stendur. Mér finnst samsetning liðs-
ins vera góð. Flestir leikmenn eru á
mínum aldri auk þriggja sem eru
nokkuð eldri og tveggja yngri og
efnilegra spilara,“ sagði Aron Dagur,
sem verður væntanlega annar
tveggja útlendinga hjá liðinu á næstu
leiktíð. Hinn leikmaður liðsins sem
ekki er af sænsku bergi brotinn er
finnskur. „Ég þarf að fara að læra
sænskuna, kemst ekki upp með
annað.“
Í fótspor föður síns
Þegar Aron Dagur hleypir heim-
draganum í sumar fetar hann í fót-
spor föður síns, Páls Þórólfssonar,
hornamanns Aftureldingar, Fram og
fleiri liða. Páll lék sem atvinnumaður
í handknattleik með Tusem Essen í
Þýskalandi um tveggja ára skeið frá
1997 til 1999, um það leyti sem Aron
Dagur var að stíga sín fyrstu skref í
lífinu.
Aron Dagur er þriðji ungi hand-
knattleiksmaðurinn í Olísdeildinni
sem skrifar undir samning við erlent
félagslið á síðustu vikum. Hinir tveir
eru nafnarnir Elvar Örn Jónsson og
Elvar Ásgeirsson. Sá fyrrnefndi
samdi við Danmerkurmeistara
Skjern en hinn síðarnefndi við Stutt-
gart í Þýskalandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svíþjóð Aron Dagur Pálsson er á leiðinni til Alingsås í sumar.
Ætlað að verða lykilmaður
Aron Dagur Pálsson úr Stjörnunni samdi við Alingsås í Svíþjóð og fer þangað
í sumar Þriðji íslenski leikmaðurinn sem er á förum eftir tímabilið
Ásta Eir Árnadóttir, knattspyrnu-
kona úr Breiðabliki, hefur verið
valin í íslenska landsliðshópinn fyr-
ir Algarve-bikarinn í Portúgal sem
hefst í næstu viku. Hún kemur í
staðinn fyrir Söndru Maríu Jessen,
leikmann Leverkusen í Þýskalandi,
sem þurfti að draga sig út úr hópn-
um vegna meiðsla.
Ásta Eir er 25 ára gömul og hef-
ur leikið sem hægri bakvörður í Ís-
lands- og bikarmeistaraliði Breiða-
bliks. Hún hefur ekki leikið með
A-landsliði Íslands áður en spilað
25 leiki með yngri landsliðunum og
á að baki 94 leiki með Breiðabliki í
efstu deild.
Ásta fetar þar með í fótspor móð-
ur sinnar, Kristínar Arnþórsdóttur,
sem lék lengi með Val og spilaði 12
A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
vs@mbl.is
Ásta Eir valin
í stað Söndru
Morgunblaðið/Eggert
Nýliðinn Ásta Eir Árnadóttir fer
með landsliðinu til Portúgals.