Morgunblaðið - 23.02.2019, Page 3
Eitt
ogannað
Valdís Þóra Jónsdóttir lék annan
hringinn á Australian Ladies Classic
mótinu í Bonville í Ástralíu í fyrrinótt á
tveimur höggum yfir pari. Hún var því
samtals á níu höggum yfir pari eftir
tvo hringi og komst ekki yfir niður-
skurðinn. Valdís hefði þurft að spila á
einum undir pari í fyrrinótt til að kom-
ast áfram. Mótið er liður í Evrópu-
mótaröð kvenna í golfi.
Jón Guðni Fjóluson og samherjar
hans í rússneska liðinu Krasnodar
drógust í gær gegn Valencia frá Spáni
í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í
fótbolta. Arsenal mætir Rennes frá
Frakklandi, Chelsea mætir Dynamo
Kiev frá Úkraínu. Þá mætast Zenit og
Villarreal, Sevilla og Slavia Prag, Na-
poli og Salzburg, Dinamo Zagreb og
Benfica, Frankfurt og Inter Mílanó.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019
Manchester City freistar þess að vinna enska
deildabikarinn í knattspyrnu annað árið í röð
og í þriðja skipti á fjórum árum þegar ensku
meistararnir mæta Chelsea í úrslitaleik
keppninnar á Wembley-leikvanginum í Lond-
on á morgun. City vann Arsenal 3:0 í úrslita-
leik keppninnar í fyrra en þessi bikar hefur
ekki farið út fyrir Manchesterborg undanfarin
þrjú ár því United vann hann árið 2017.
Manchester City og Chelsea hafa unnið
keppnina fimm sinnum hvort félag, jafnoft og
Manchester United og Aston Villa, en aðeins
Liverpool hefur unnið hana oftar, eða átta sinnum. Enskir fjöl-
miðlar hafa að undanförnu fjallað um hvort Pep Guardiola og
hans menn í City geti unnið alla fjóra titlana sem í boði eru og
þetta er sá fyrsti af þeim. vs@mbl.is
Fyrsti titillinn af fjórum?
Pep
Guardiola
Óhætt er að segja að mikið verði undir á Old
Trafford á morgun þegar gömlu erkifjend-
urnir í enska fótboltanum, Manchester United
og Liverpool, mætast í 27. umferð úrvalsdeild-
arinnar. Fjórtán stig skilja liðin að í deildinni,
þar sem Liverpool er í öðru sæti og myndi ná
þriggja stiga forskoti á Manchester City með
sigri. Liverpool hefur aðeins tapað einu sinni í
26 leikjum í deildinni í vetur. Manchester
United er komið uppfyrir Arsenal og Chelsea
og í fjórða sæti deildarinnar eftir mikla sigur-
göngu frá 19. desember þegar Ole Gunnar Sol-
skjær tók við stjórn liðsins í kjölfarið á brottrekstri José Mour-
inho. Norðmaðurinn hefur fagnað ellefu sigrum í þrettán leikjum
frá þeim tíma og er taplaus í deildinni þar sem United hefur feng-
ið 25 stig af 27 mögulegum undir hans stjórn. vs@mbl.is
Erkifjendur eigast við
Ole Gunnar
Solskjær
Valgarð Reinhardsson keppti á þremur áhöld-
um í gær á heimsbikarmóti í áhaldafimleikum
sem fram fer í Melbourne í Ástralíu. Eins og í
fyrradag var um undankeppni að ræða en úr-
slit fara fram næstu daga. Valgarð keppti í
sinni sterkustu grein í gær, stökki, og fékk þar
13,541 í einkunn en endaði í 14. sæti. Igor
Radivilov frá Úkraínu varð efstur með 14,766 í
einkunn en áttundi og síðasti maður inn í úrslit
var með 14,216 í einkunn.
Valgarð varð hins vegar í 11. sæti bæði á
tvíslá og svifrá og er þar með þriðji varamaður
inn í úrslit í báðum greinunum. Hann fékk 13,100 í einkunn á
tvíslá en áttundi maður inn í úrslit var með 13,566 í einkunn. Val-
garð fékk svo 12,966 í einkunn á svifrá en áttundi maður þar inn í
úrslit var með 13,466. sindris@mbl.is
Skammt frá úrslitum
Valgarð
Reinhardsson
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Bandaríkjamaðurinn Michael Craion,
leikmaður Keflavíkur, var besti leik-
maður Dominos-deildar karla í febr-
úarmánuði að mati Morgunblaðsins.
Hann er jafnframt þriðja mánuðinn í
röð í fimm manna úrvalsliði blaðsins
en þar var hann einnig í desember og
janúar.
Craion sýndi mjög jafna og góða
frammistöðu með Keflavíkurliðinu í
þremur sigurleikjum þess í mánuð-
inum en liðið náði fullu húsi stiga í
febrúar og skoraði yfir 100 stig í öll-
um leikjunum. Craion var í lykilhlut-
verki eins og alltaf í vetur, en eins og
sjá má hér að ofan er hann næst-
stigahæstur í deildinni, er í fjórða
sæti yfir flest fráköst og sjötta sæti í
flestum stoðsendingum. Hann lék
sérstaklega vel í þriðja leiknum, gegn
Skallagrími, en þar skoraði Craion 23
stig, tók 14 fráköst og átti 6 stoðsend-
ingar, sem færði honum 38 framlags-
stig.
Craion er 29 ára gamall, 197 cm á
hæð, og hefur ýmist leikið sem fram-
herji eða miðherji. Hann lék með
Keflavík 2012-14, með KR 2014-16 og
var síðan tvö ár í frönsku C-deildinni
með Lorient og Saint-Vallier en sneri
aftur til Keflavíkur í haust.
Hlynur aftur í fararbroddi
Hlynur Bæringsson fráfarandi
landsliðsfyrirliði er besti Íslending-
urinn í deildinni annan mánuðinn í
röð en eins og Craion er hann þriðja
mánuðinn í röð í liði mánaðarins hjá
Morgunblaðinu.
Hlynur hefur verið í lykilhlutverki í
ósigrandi liði Stjörnunnar sem er bú-
in að vinna alla sína mótsleiki á árinu
2019 og varð bikarmeistari um síð-
ustu helgi. Ennfremur kvaddi hann
íslenska landsliðið á eftirminnilegan
hátt í stórsigri þess á Portúgölum í
forkeppni EM í Laugardalshöllinni í
fyrrakvöld.
Hilmar Smári enn og aftur
Enn og aftur verður bakvörðurinn
efnilegi Hilmar Smári Henningsson
úr Haukum fyrir valinu hjá okkur
sem besti ungi leikmaður mánaðar-
ins. Hann fékk sömu útnefningu í
uppgjörum okkar fyrir nóvember-
mánuð og janúarmánuð. Hilmar, sem
er 18 ára gamall, hefur heldur betur
stimplað sig inn sem lykilmaður í
Hafnarfjarðarliðinu og var geysilega
drjúgur í fremur óvæntum sigrum
þess á Njarðvík og KR. Þá var hann
besti maður Haukanna í eina tapleik
þeirra í mánuðinum, gegn Skalla-
grími.
Keflvíkingar og Stjörnumenn eru
áberandi í úrvalsliði febrúarmánaðar,
enda voru þessi tvö lið bæði með fullt
hús stiga í deildinni í umferðunum
þremur, og Stjarnan varð bikarmeist-
ari að auki.
Morgunblaðið hefur nú staðið fyrir
þessu mánaðarlega vali í fimm skipti
og gerir það í sjötta og síðasta sinn í
mars, auk þess sem þá verður valið
úrvalslið tímabilsins í deildinni 2018-
2019.
Craion bestur í febrúarmánuði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjarnan Hlynur Bæringsson hefur
átt eftirminnilegan mánuð.
Morgunblaðið/Hari
Keflavík Mindaugas Kacinas frá
Litháen hefur reynst góður liðsauki.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjarnan Ægir Þór Steinarsson á
flestar stoðsendingar í deildinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þór Þ. Nikolas Tomsick er með þeim
efstu í stigum og stoðsendingum.
Lið febrúarmánaðar
Dominos-deild karla 2018-19
Stigahæstu leikmenn
Julian Boyd, KR 410
Michael Craion, Kefl avík 408
Nikolas Tomsick, Þór Þ. 403
Aundre Jackson, Skallagrími 375
Kinu Rochford, Þór Þ. 355
Gerald Robinson, ÍR 348
Jeb Ivey, Njarðvík 312
Antti Kanervo, Stjörnunni 312
Jordy Kuiper, Grindavík 310
Aleks Simeonov, Val 306
Sigtryggur Arnar Björnsson, Grindavík 305
Brynjar Þór Björnsson, Tindastóli 295
Hörður Axel Vilhjálmsson, Kefl avík 287
Matej Buovac, Skallagrími 279
Elvar Már Friðriksson, Njarðvík 278
Halldór Garðar Hermannsson, Þór Þ. 273
Frákastahæstu leikmenn
Kinu Rochford, Þór Þ. 227
Gerald Robinson, ÍR 181
Julian Boyd, KR 180
Michael Craion, Kefl avík 176
Hlynur Bæringsson, Stjörnunni 173
Ragnar Nathanaelsson, Val 172
Aundre Jackson, Skallagrími 155
Mario Matasovic, Njarðvík 155
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, ÍR 143
Urald King, Tindastóli 136
Aleks Simeonov, Val 136
Jordy Kuiper, Grindavík 135
Ólafur Ólafsson, Grindavík 132
Snorri Vignisson, Breiðabliki 128
Björgvin Ríkharðsson, Skallagrími 120
Kristófer Acox, KR 111
Flestar stoðsendingar
Ægir Þór Steinarsson, Stjörnunni 142
Nikolas Tomsick, Þór Þ. 132
Hörður Axel Vilhjálmsson, Kefl avík 126
Björgvin Ríkharðsson, Skallagrími 104
Jeb Ivey, Njarðvík 100
Michael Craion, Kefl avík 88
Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóli 83
Jón Arnór Stefánsson, KR 82
Eyjólfur Á. Halldórsson, Skallagrími 81
Sigtryggur Arnar Björnsson, Grindavík 73
Hlynur Bæringsson, Stjörnunni 70
Emil Barja, KR 70
Arnór Hermannsson, Breiðabliki 69
Kinu Rochford, Þór Þ. 69
Hilmar Smári Henningsson, Haukum 61
Brynjar Þór Björnsson, Tindastóli 60
Hlynur Bæringsson
Stjörnunni
Varamenn
Kinu Rochford, Þór Þ.
Julian Boyd, KR
Domogoj Samac, Skallagrími
Hörður Axel Vilhjálmsson, Kefl avík
Brandon Rozzell, Stjörnunni
Elvar Már Friðriksson, Njarðvík
Hilmar Smári Henningsson, Haukum
Hversu oft leik-
maður hefur verið valinn
í lið mánaðarins
2
Michael Craion
Kefl avík
14
Nick Tomsick
Þór Þ.
4 3
3
Ægir Þór Steinarsson
Stjörnunni
Mindaugas Kacinas
Kefl avík
8 5
11
2 2
KNATTSPYRNA
England
Cardiff – Watford .................................... 1:5
Aron Einar Gunnarsson sat á vara-
mannabekk Cardiff allan leikinn.
West Ham – Fulham................................ 3:1
Þýskaland
Werder Bremen – Stuttgart................... 1:1
Aron Jóhannsson hjá Bremen er frá
keppni vegna meiðsla.
Frakkland
Dijon – Saint-Étienne.............................. 0:1
Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamanna-
bekk Dijon allan leikinn.
Holland
Ajax – PSV Eindhoven............................ 1:0
Anna Björk Kristjánsdóttir og Berglind
Björg Þorvaldsdóttir voru báðar í byrjun-
arliði PSV.
Danmörk
AaB – SönderjyskE ................................. 3:0
Eggert Gunnþór Jónsson sat á vara-
mannabekk SönderjyskE allan leikinn.
Svíþjóð
Bikarinn, 32 liða úrslit, riðlakeppni:
Assyriska – Norrköping ......................... 0:2
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn fyrir Norrköping en Alfons Sampsted
var ekki í leikmannahópnum.
Ítalía
AC Milan – Empoli................................... 3:0
Spánn
Espanyol – Huesca................................... 1:1
Lengjubikar karla
A-deild, 3. riðill:
HK – Afturelding..................................... 1:1
Bjarni Gunnarsson 50. – Alexander Aron
Davorsson 89.
Fjölnir – Valur ......................................... 2:2
Viktor Andri Hafþórsson 55., Albert Brynj-
ar Ingason 74. – Gary Martin 18., 32.
A-deild, 4. riðill:
Grótta – Haukar ...................................... 1:0