Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 6

Morgunblaðið - 07.03.2019, Page 6
Ef gefin yrði út reglugerð fyrir mak- rílveiðar á árinu 2019, sem byggð væri á veiðireynslu áranna 2013 til 2018, er líklegt að úthlutun aflaheim- ilda samkvæmt henni myndi skapa ríkinu skaðabótaskyldu. Þetta er ein af meginniðurstöðum starfshóps, sem fenginn var til að fara yfir þýðingu þeirra dóma Hæstaréttar sem féllu í byrjun des- ember og vörðuðu úthlutun afla- heimilda í makríl á árunum 2011 til 2014. Með dómunum var viðurkennd skaðabótaábyrgð íslenska ríkisins vegna tjóns tveggja útgerðarfélaga, en talið var að skipum þeirra hefði verið úthlutað minni aflaheimildum en skylt var samkvæmt lögum. Starfshópurinn hefur nú skilað skýrslu sinni til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem meðal annars er farið yfir valdheimildir ráðherra að óbreyttum lögum og jafnframt helstu valkosti ef valið verður að bregðast við dómunum með lagasetningu. Hópurinn bendir í fyrsta lagi á að ráðherra sé samkvæmt núgildandi lögum skylt að ákveða leyfilegan heildarafla í makríl fyrir næsta veiðitímabil. Þá sé honum aðeins heimilt að ákveða með reglugerð að miða aflahlutdeild í makríl við veiði- reynslu þriggja bestu veiðitímabil- anna af síðustu sex árum, þ.e. 2013 til 2018, en eins og áður sagði er talið líklegt að slík úthlutun myndi skapa ríkinu skaðabótaskyldu. Ráðherra myndi með þeim hætti halda áfram að baka þeim útgerðum tjón sem fengju minna úthlutað en þær hefðu fengið á grundvelli veiðireynslu fyrir árið 2011. Með öðrum orðum væri slík reglu- gerð byggð á formlega fullnægjandi lagastoð en efnislega myndi hún við- halda ólögmætu ástandi. Fjórir valkostir reifaðir Bendir hópurinn þess vegna á að löggjafinn hafi ýmsa kosti til að greiða úr núverandi ástandi með lagasetningu. Í 3. málslið 1. greinar laga nr. 116/ 2006 um stjórn fiskveiða segir að út- hlutun veiðiheimilda samkvæmt lög- unum myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Með hlið- sjón af þessu ákvæði og dómafram- kvæmd Hæstaréttar er það mat starfshópsins að löggjafinn hafi nokkuð rúmar heimildir til að ákveða veiðistjórnun og úthlutun hlutdeilda samkvæmt eigin mati. „Lagabreyting sem fæli í sér hóf- lega skerðingu á úthlutuðum eða væntum aflahlutdeildum á grund- velli lögmætra markmiða og reist væri á efnislegum mælikvarða væri ekki til þess fallin að skapa bóta- skyldu,“ segir í skýrslu hópsins. Í þeim tilgangi að auðvelda undir- búning mögulegrar lagasetningar eru í kjölfarið reifaðir fjórir ólíkir valkostir við stefnumörkun sem mögulegt væri að ráðast í, án þess að skapa ríkinu bótaskyldu að mati hópsins. Í fyrsta lagi er nefndur sá kostur að veita ráðherra heimild til að miða við veiðireynslu áranna 2005 til 2010 við úthlutun aflaheimilda. Með því væri undið ofan af ólögmætri stjórn- sýsluframkvæmd og ráðherra gefin heimild með lögum til að láta af slíkri framkvæmd. Hins vegar væri með lagasetningu af þessum toga verið að skerða verulega hagsmuni þeirra sem veitt hafa makríl og eftir atvikum fjárfest í þeirri sókn í góðri trú allt frá árinu 2011. Hugsanlegt sé að koma einhvern veginn til móts við þá skerðingu með því að taka frá hluta aflamagns hvers árs og úthluta sérstaklega til þeirra. Fordæmi fyrir slíku séu til staðar. Í öðru lagi er nefndur sá kostur að veita ráðherra heimild við ákvörðun aflahlutdeilda til að festa núverandi úthlutun í sessi. Með því væri tekið tillit til hagsmuna fleiri aðila og lög- gjafinn tæki þá nokkra ábyrgð á því fyrirkomulagi sem þrifist hefur um sjö ára skeið, að því er segir í skýrslu hópsins. Vandséð sé að þessi leið gæti bakað ríkinu bótaskyldu. Það sé ekki náttúrulögmál að afla- hlutdeild sé alltaf ákveðin á grund- velli veiðireynslu. Í þriðja lagi er nefndur sá kostur að veita ráðherra heimild til að miða veiðireynslu við lengra tímabil við úthlutun aflaheimilda en samkvæmt gildandi lögum, á sama hátt og gert hafi verið við úthlutun aflaheimilda úr norsk-íslenska síldarstofninum. Bent er á að verði þessi leið fyrir val- inu mætti segja að rétt væri að horfa á heildarveiðireynslu frá árinu 2005 eða 2006 til ársloka 2017. „Með því móti fengist ákveðin viðurkenning á því sjónarmiði að veiðar fyrstu árin hefðu aukið vægi en að tillit væri einnig tekið til hags- muna þeirra sem stunduðu veiðar eftir árið 2017 (án veiðireynslu) á grundvelli reglugerða ráðherra sem nú hafa verið metnar ólögmætar,“ segir í skýrslunni. Einnig sé það kostur að Hæstiréttur hafi áður fjallað um þessa leið. Ekki langur tími til stefnu Í fjórða lagi er nefndur sá kostur að veita ráðherra heimild til að ákveða aflahlutdeild með blönduðum hætti þar sem að hluta væri byggt á fyrsta kostinum sem nefndur var hér að ofan, og að hluta á öðrum kostinum sem nefndur var, með áþekkum hætti og gert hafi verið með sérstökum lögum um veiði- stjórn á úthafsrækju. „Væri þessi fyrirmynd hagnýtt mætti sjá fyrir sér að ákvörðun aflahlutdeilda byggðist að mestu leyti á veiði- reynslu næstliðinna ára en að nokkru á veiðireynslu áranna fyrir árið 2011,“ segir í skýrslunni. Bent er á að þessir fjórir kostir séu ekki þeir einu í stöðunni, en þeir séu settir fram með hliðsjón af mála- vöxtum og þeim fyrirmyndum sem finna megi í eldri löggjöf á sviði fisk- veiðistjórnar. Þá vekur hópurinn at- hygli á því að komi til nýmæli um veiðistjórn í makríl með lögum þurfi þau að öðlast gildi fyrir upphaf næsta veiðitímabils. Því sé ekki ýkja langur tími til stefnu. Óbreytt veiði- stjórn makríl- veiða ekki í boði Skúli Halldórsson sh@mbl.is Ráðherra getur ekki við- haldið þeirri veiðistjórn makrílveiða sem hefur ver- ið lítt breytt frá árinu 2011, í kjölfar þeirra dóma Hæsta- réttar sem féllu í desember. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leyst úr poka. Með dómunum var viðurkennd skaðabótaábyrgð ríkisins vegna tjóns tveggja útgerðarfélaga. 6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 Bílaviðgerðir Almennar bílaviðgerðir fyrir tegundir bíla Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Bjóðum úrval af rafstöðvum og bátavélum frá Cummins BÁTAVÉLAR RAFSTÖÐVAR K38 850-1000HP C44 D5 / 72 kW K50-CP 1050kW K38-CP 762 kW QSK 19 660-800HP QSK38 920-1400HP Þjónusta við skip og báta Varahluta þjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.