Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 16

Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 16
dk iPos snjalltækjalausn fyrir verslun og þjónustu Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri 510 5800, dk@dk.is, www.dk.is dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar. Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu. VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Vildi Icelandair aftur að borðinu Loka Skelfiskmarkaðinum og.............. WOW air fær mánaðarfrest Hætta að hafa opið í hádeginu Tugprósenta afskriftir í húfi Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um 0,8% frá því á mánudag- inn síðasta sé miðað við gengis- vísitölu Seðlabanka Íslands sem mælir styrk íslensku krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum. Seðlabanki Íslands greip inn í gjaldeyrismarkað í gær með kaup- um á gjaldeyri en bankinn hefur ítrekað gripið inn í undanfarna mán- uði til þess að stemma stigu við veik- ingu íslensku krónunnar. Sé litið til eins árs aftur í tímann hefur gengi krónunnar lækkað um rúmlega 20% gagnvart bandaríkjadal og um tæp- lega 11% gagnvart evru. Að sögn Daníels Svavarssonar, forstöðumanns hagfræðideildar Landsbankans, má líklega rekja hreyfinguna á genginu undanfarna daga til afnáms hafta á aflands- krónur en lögin um breytingar á lög- um um gjaldeyrismál og meðferð krónueigna sem voru háðar sér- stökum takmörkunum tóku í gildi á mánudag. „Einu opinberu upplýsingarnar sem hafa komið fram og gætu verið að hreyfa þetta er afnám hafta á aflandskrónurnar. Líklega er það að spila inn í. Ef þessir fjárfestar hafa metið það sem svo að þeir vilji fara út með krónurnar sínar þá veldur það útflæði á gjaldeyrismarkaði,“ segir Daníel. Hann tekur þó fram að afnám bindiskyldu á innstreymi nýs innstreymis erlends gjaldeyris opni á aukið innflæði til styrkingar ís- lensku krónunni. Sé litið til 12 mánaða aftur í tím- ann segir Daníel að það verði að setja í samhengi við það hvar Ísland er statt í hagsveiflunni. „Krónan hefur gefið talsvert eftir. Það tengist almennt hvar við erum stödd í hagsveiflunni og horfum í ferðaþjónustu og þess háttar,“ segir Daníel við ViðskiptaMoggann. Morgunblaðið/Ómar Gengi íslensku krónunnar hefur gefið töluvert eftir undanfarin misseri. Aflandskrónur veikja gengið Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað undanfarna daga. Ný lög um aflands- krónar spila þar stærsta rullu. Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Samkvæmt mati samtakannaTransparency International er Ísland í 14. sæti á lista yfir þau ríki sem búa við minnsta spillingu í op- inbera geiranum. Danmörk er efst, jafnir í þriðja sæti eru svo m.a. Finn- ar og Svíar, en Norðmenn eru næstir. Í þessum fyrirmyndarríkjum kemstþó lítið annað á dagskrá í við- skiptafréttum en fréttir af stærstu peningaþvættismálum sögunnar. Í gegnum þessi fyrirmyndarríki hafa hundruð milljarða evra streymt frá Rússlandi og öðrum fyrrum Sovét- lýðveldum í gegnum útibú hinna ýmsu norrænu banka. Fréttir af Danske Bank bárust ásíðasta ári um að 200 milljörðum evra hefði verið hleypt í gegnum útibú bankans í Eistlandi á milli ár- anna 2007 og 2015. Nýlegar fréttir bendla Swedbank við þann vef. Í þessari viku sögðu Berlingske og YLE fréttir af því að Nordea- bankinn hefði einnig verið nýttur til þess að hvítþvo milljarða danskra króna og að á þriðja hundrað af- landsfélaga hefðu verið skráð fyrir reikningum í útibúi Nordea-bankans við Vesterport á árunum 2004-2014. Eftir því sem ViðskiptaMogginnkemst næst eru litlar líkur á því að þessi bylgja hafi teygt sig hingað til lands, þrátt fyrir að Ísland hafi á síðasta ári fengið falleinkunn frá FATF hvað varðar tæki yfirvalda til þess að stemma stigu við peninga- þvætti og fjármögnun hryðjuverka. Að hluta til má „þakka“ fjármagns- höftunum fyrir það. En nú er eins gott að vera á tánum. Streymt í gegnÞeir höfðu himin höndum gripiðviðmælendur spjallaþátta- stjórnandans á sunnudag. Þeir höfðu séð pistil á vefsíðu RÚV þar sem útlistað var hversu ógeðslegt það væri að búa á Íslandi. Stærð- fræðingurinn og Skriðjökullinn tóku heilshugar undir þá heimssýn og bentu á að ef þeir fengju hugð- arefnum sínum framgengt yrði staðan allt önnur og betri á eftir. Síðar í sama þætti var „reynslu-bolti á sviðinu“ kallaður til skrafs og ráðagerða, einkum vegna reynslu sinnar af vettvangi Vinnu- veitendasambandsins (VSÍ) og rík- isstjórnar. Sá hafði lausnir á reiðum höndum. Arftaki VSÍ sem í dag nefnist SA ber höfuðábyrgð á stöðunni á íslenskum vinnumarkaði. Og af hverju? Jú, vegna þess að enn hefur evrunni ekki verið troðið í vasa launamanna um landið þvert og endilangt. Það er ótrúlegt að enginn hafi séð þetta fyrr. Alveg er það víst að formaður Eflingar myndi láta af hermdarverka- starfseminni ef hún fengi bara greitt í evrum. Eða hvað? Lengi var það háleittmarkmið verkalýðshreyfing- arinnar að tryggja öllum launa- mönnum 300 þúsund króna lág- markslaun fyrir fullt starf. Sú er t.d. staðan í dag hjá verslunar- og skrifstofufólki en það jafngildir því að launamaður fái að lágmarki 1.752 kr. fyrir hverja unna vinnu- stund. Hvernig skyldi því háttað í Þýskalandi, búa þeir sem starfa í sæluríki evrunnar við svo bágan kost? Nei, þar er öðru til að dreifa, en reyndar minna. Þar eru lág- markslaunin 9,19 evrur á tímann, jafnvirði 1.253 kr. á tímann. Hafa þessi laun hækkað um 4% frá árinu 2018. Ísland er ekki himnaríki og sístætter það verkefni að búa sam- félagsgerðina þannig úr garði að sem flestir fái notið sín, flestir á eigin forsendum alfarið en að til staðar sé stuðningur við þá sem að- stoðar eru þurfi. En þegar litið er til annarra ríkja heimsins er Ísland ekki ógeðslegt og raunar benda hagtölur til að á komandi misserum verði ríkari færi en annars staðar á að gera enn betur. Því til staðfest- ingar má benda á að Hagstofa Ís- lands gerir ráð fyrir 2,9% hagvexti í ár og 2,7% á því næsta. OECD ger- ir ráð fyrir að í fyrrnefndu sæluríki verði hagvöxturinn 0,7% í ár og 1,1% á því næsta. Það er ekki ógeðslegt að búa á Íslandi. Ef það er ekki „ógeðslega“ gott nú þegar, þá má benda á að allar forsendur eru til að svo megi verða. Er það ógeðslega gott? Hagvöxtur á heims- vísu mun nema 3,3% í ár, samkvæmt ný- birtri hagspá OECD sem lækkar um 0,2%. Hægir á al- þjóðahagkerfinu 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.