Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.03.2019, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 13FRÉTTIR Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili BÓKIN Leitun er að einstaklingum sem njóta meiri virðingar en snjallt at- hafnafólk sem kýs að nota auðæfi sín og velgengni til að láta gott af sér leiða. James O‘Toole, prófessor við Mars- hall School of Bus- iness í Kaliforníu, hefur skrifað mikinn doðrant um þennan merkilega hóp úr- valsmanneskja, og bendir þar m.a. á að það er allt annað en auðvelt að hafa stórt hjarta og fallegar hugsjónir í hörðum heimi bandarísks at- vinnulífs. Bókin heitir The Enlightened Capitalist: Cautionary Tales of Bus- iness Pioneers Who Tried to Do Well by Doing Good. O‘Toole nefnir sem dæmi mann- vinina Ben Cohen og Jerry Green- field, stofnendur ísbúðaveldisins Ben & Jerry‘s. Þeir lögðu af stað með háleitar hugsjónir, s.s. að aldrei yrði meira en fimmfaldur munur á launum stjórnenda og lægst launuðu starfsmanna fyrirtækisins, og að all- ir myndu njóta góðs af velgengni fé- lagsins. Rákust þeir á endanum á vegg þegar þeir vildu verja allgóðum skerf af digrum sjóðum fyrir- tækisins í stórhuga verkefni á borð við að koma heilli neðanjarð- arlestarstöð í New York í gott horf. Ekki hugnaðist öllum góð- mennskan jafn vel og reglur markaðarins settu þeim skorður. Höfundur bendir á að þó góðgerðarstarf og kauphallarkapítal- ismi virðist stundum ekki geta átt samleið þá kunni það að vera að breytast með til- komu svokallaðra B-fyrirtækja (þar sem „B“ stendur fyrir „benefit“). Þannig félög eru þannig gerð frá grunni að aðalmarkmið starfsemi þeirra er að gera öllum gagn: starfs- fólki, umhverfi, og samfélagi – og lögin leyfa stjórnendum að reka þessi fyrirtæki með þeim hætti að fleira en bara hagsmunir hluthafa sé haft að leiðarljósi. ai@mbl.is Góðhjartaðir kapítal- istar koma til bjargar Fyrir skömmu var fjallað á þessum vettvangi umábyrgð stjórnenda og stjórnarmanna í rekstr-arvanda hlutafélaga. Það er óhjákvæmilegur fylgifiskur rekstrar af öllu tagi að ekki tekst alltaf vel til og stundum kemur til þess að félög lenda í rekstr- arvanda sem getur endað með því að tjón hlýst af, svo sem vegna gjaldþrotaskipta eða nauðasamninga. Eitt af megineinkennum hlutafélaga er hin tak- markaða ábyrgð sem þeim fylgir. Þannig ábyrgist fé- lagið sjálft að jafnaði skuldbindingar sínar með öllum eigum sínum og réttindum, hvaða nafni sem nefnast. Er almennt talið að hlutafélaga- formið sé mikilvægur drifkraftur athafnalífs, einmitt vegna hinnar takmörkuðu ábyrgðar, og geri að verkum að hugmyndum er komið í framkvæmd, mörgum þeirra með góðum árangri. Til stofn- unar hlutafélags leggja hluthafar þess fram áhættufé í formi hluta- fjár og takmarka þannig ábyrgð sína á skuldbindingum félagsins. En þar með er ekki öll sagan sögð. Stjórnarmenn og stjórn- endur hlutafélags, endurskoð- endur og skoðunarmenn geta þurft að axla ábyrgð persónulega vegna tjóns sem þeir valda hlutafélaginu sjálfu í störf- um sínum, hvort sem er af ásetningi eða gáleysi. Þessir aðilar geta með öðrum orðum orðið bótaskyldir vegna starfa sinna ef þeir hafa með athöfnum sínum eða athafnaleysi brotið gegn skyldum sínum gagnvart félaginu. Er um þetta atriði fjallað í 134. gr. laga um hlutafélög. Í dómaframkvæmd, m.a. í málum sem risu í kjölfar falls bankanna, hefur verið leitt í ljós að einstakur hluthafi getur í þessu sambandi átt sjálfstæðan rétt til að leita réttar síns gagnvart fyrirsvarsmönnum félags og ekki skipti máli þótt aðrir hluthafar kunni að eiga sambærilegan rétt. En ábyrgð fyrirsvarsmanna félags getur einnig vaknað í rekstrarerfiðleikum. Í 64. gr. laga um gjald- þrotaskipti o.fl. eru tvær reglur sem varða atriðið um hvenær getur komið til gjaldþrotaskipta að kröfu fé- lagsins sjálfs. Annars vegar er 1. mgr., sem leyfir fé- laginu, eða skuldaranum, eins og það er nefnt í ákvæðinu, að krefjast skipta á búi sínu. Hins vegar er í 2. mgr. lögð á hann skylda að óska gjaldþrotaskipta. Í Hæstaréttarmáli nr. 187/2016, þar sem tekist var á um viðurkenningu skaðabótaskyldu af þessu tagi, var komist að þeirri niðurstöðu að fyrirsvarsmenn fé- lags væru skaðabótaskyldir vegna tjóns sem lán- ardrottinn félagsins varð fyrir vegna vanrækslu þeirra að gangast fyrir því að bú félagsins yrði tekið til gjaldþrotaskipta eftir að það varð ógjaldfært. Mat þess hvort ógjaldfærni sé til staðar er á hinn bóginn hvorki klippt né skorið. Stund- um geta aðstæður verið þannig að fyrir liggur óyggjandi vís- bending um það, svo sem ef fjárnámi eða kyrrsetningu er lokið án árangurs. Annars má hafa hliðsjón af orðalagi 1. mgr. 64. gr. gjaldþrotaskiptalaga. Þar segir að skuldari geti kraf- ist þess að bú sitt verði tekið til gjaldþrotaskipta ef hann getur ekki staðið í fullum skilum við lánardrottna sína þegar kröfur þeirra falla í gjalddaga og ekki verði talið sennilegt að greiðsluörðugleikar hans muni líða hjá innan skamms. Hér þarf að ákvarða hvað „í fullum skilum“ merkir. Ganga verður út frá að það þýði fullnaðaruppgjör skuldbindinga á gjalddaga en ekki greiðsla að hluta. Þá þarf einnig að meta hvað „innan skamms“ merkir. Það er að sönnu ekki ná- kvæmur mælikvarði og verður að leggja til grundvall- ar að það sé ekki meira en valdið er af mánaðarlegum eða árstíðarbundnum sveiflum í viðkomandi atvinnu- grein. Almennt má ganga út frá því að þessi mæli- kvarði verði ekki teygður fram úr bókstaflegri merk- ingu orðanna þannig að úr verði fjöldi mánaða eða misseri. Til grundvallar mati þess sem telur sig hafa orðið fyrir tjóni vegna þess að félag var ekki gefið upp til skipta má þá eftir atvikum leggja gögn um greiðsluörðugleika, fréttaflutning af bágum fjárhag o.s.frv. Meira um ábyrgð fyrirsvarsmanna hlutafélaga í rekstrarvanda LÖGFRÆÐI Jón Þórisson magister juris og starfar á lögmannsstofunni Drangi lögmenn ” Stjórnarmenn og stjórnendur hlutafélags, endurskoðendur og skoðunarmenn geta þurft að axla ábyrgð persónulega vegna tjóns sem þeir valda hlutafélaginu sjálfu í störfum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.